Skessuhorn


Skessuhorn - 16.01.2019, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 16.01.2019, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 201912 Fyrirtækið Uppbygging ehf. stend- ur þessa dagana að þremur stórum verkefnum á Akranesi. Um er að ræða byggingu fjölbýlishúss við Asp- arskóga 29, sem er vel á veg kom- in, verslunar- og þjónustumiðstöð við Smiðjuvelli og hótel við Kirkju- braut. Síðarnefndu verkefnin tvö eru í skipulagsferli. Uppbygging ehf. er í eigu hjónanna Engilberts Runólfs- sonar og Kristínar Minneyjar Pét- ursdóttur. Skessuhorn hitti Engil- bert á skrifstofu fyrirtækisins fyr- ir helgi og ræddi við hann um þessi verkefni. Nýlega flutti fyrirtækið í nýja skrifstofu að Stillholti 23 á Akranesi, en í húsinu er einnig Café Kaja og Matarbúr Kaju, Gallerí Ozone og Dýrabær. Uppbygging keypti húsið á síðasta ári. „Við eigum allt húsið og höfum undanfarið verið að vinna að því að gera upp þann hluta sem við nýtum sem skrifstofu, auk efri hæðar hússins. Á efri hæðinni hefur verið innréttað gistiheimili í flokki 2, með rými fyrir um 30 manns. Það verður þó ekki rekið sem slíkt, held- ur er það fyrst og síðast ætlað starfs- mönnum Renova, sem er starfs- mannaleiga á okkar vegum sem stofnuð var til að manna ýmis störf í verkefnum Uppbyggingar ehf. um allt land,“ segir Engilbert, en auk áðurnefndra verkefna á Akranesi stendur fyrirtækið fyrir byggingu fjölbýlishúsa á Hvammstanga og Blönduósi í samvinnu við Loftorku. „Síðan erum við væntanlega að fara að byggja fjögur þúsund fermetra hús í Reykjavík fyrir landsþekkt fyr- irtæki, ef áætlanir ganga eftir,“ segir hann. Asparskógar 29 í sölu eftir mánuð Skóflustunga var tekin að tveimur fjölbýlishúsum við Asparskóga 27 og 29 í maí 2016. Bæði húsin eru á þremur hæðum og hvort um sig með tólf íbúðum sem eru annars vegar um 125 fermetrar að stærð og hins veg- ar 100 fermetra íbúðir. „Allar íbúð- irnar á Asparskógum 27 hafa verið seldar og framkvæmdir við Aspar- skóga 29 eru að fara á lokasprettinn. Húsið er að verða fokhelt þessa dag- ana og við stefnum á að það verði fullklárað eftir þrjá til fjóra mánuði eða svo. Ég á von á því að íbúðirn- ar á Asparskógum 29 verði settar á sölu eftir sirka mánuð, eða um miðj- an febrúar,“ segir Engilbert. „Þar að auki höfum við látið gera teikning- ar að fjölbýlishúsi við Asparskóga 18 sem fer í byggingu í sumar. Það hús verður stærra, samtals 34 íbúðir á tveimur, þremur og fjórum hæðum, en minni og nettari íbúðir og bíla- geymsla undir húsinu þar sem hverri íbúð fylgir eitt stæði,“ segir hann og bætir því við að hann hafi mikla trú á Akranesi sem búsetukosti til fram- tíðar. „Ég er mjög bjartsýnn á að það gangi vel að selja íbúðirnar á Aspar- skógum 29 og á Asparskógum 18 þegar þar að kemur og fullur bjart- sýni gagnvart Akranesi í heild. Bær- inn á mikið inni og hér eru mörg tækifæri. Mesti uppgangur á land- inu næstu tíu árin verður á Akra- nesi, það er mín trú. Tækifærin eru sannarlega til staðar og ég spái því að hér verði byggðar um það bil eitt þúsund íbúðir næstu tíu til fimmtán árin,“ segir Engilbert. Vonast til að byrja á Smiðjutorgi í vor Í Skessuhorni á síðasta ári var greint frá áformum Uppbyggingar ehf. um verslunar- og þjónustumiðstöð við Smiðjuvelli á Akranesi, verkefni sem gæti hljóðað upp á um fimm milljarða króna. Engilbert segir að Smiðjutorgið sé í skipulagsferli þessa dagana. „Samkvæmt síðustu fregnum sem ég heyrði er búið að vísa skipulaginu til umsagnar Skipu- lagsstofnunar. Ég vonast til þess að skipulagsferlinu verði að fullu lok- ið eftir þrjá mánuði. Um leið og það er afgreitt ætlum við að hefja fram- kvæmdir,“ segir hann. „Gert er ráð fyrir allt að sex byggingum, samtals um 17 þúsund fermetrar sem munu henta alls konar verslun og þjón- ustu, auk skrifstofubygginga,“ segir Engilbert og bætir því við að verk- efninu hafi verið sýndur mikill áhugi. „Smiðjutorgið hefur verið kynnt mörgum fyrirtækjum, stórum sem smáum, bæði hér á Akranesi og ann- ars staðar á landinu. Margir hafa sýnt þessu verkefni mikinn áhuga, enda verður þarna húsnæði fyrir hvers kyns verslun og þjónustu sem ekki hefur verið í boði á Akranesi í lang- an tíma. Ég held að þetta verði mik- il lyftistöng fyrir bæjarfélagið,“ seg- ir hann. „Ekki bær með bæjum fyrr en hér rís hótel“ Eigendur Uppbyggingar ehf. stefna á að hefja byggingu 56 eða 58 her- bergja hótels við Kirkjubraut 39 síð- ar á þessu ári. Lóð sem eldri bæj- arbúar þekkja sem Fólksbílastöð- ina en þar hafa ýmsar verslanir verið síðari árin til húsa. Núverandi hús á lóðinni verður rifið og hótel byggt í staðinn. Engilbert segir það verkefni komið örlítið styttra á veg en Smiðju- torgið en er nú í skipulagsferli. „Op- inn kynningarfundur vegna skipu- lags hótelsins verður haldinn núna einhvern tímann eftir miðjan mán- uðinn. Í kjölfar þess verður lögð loka- hönd á skipulagið, það síðan auglýst „Mesti uppgangur á landinu næstu tíu árin verður á Akranesi“ - segir Engilbert Runólfsson hjá Uppbyggingu ehf. Allar íbúðirnar tólf að Asparskógum 27 hafa verið seldar. Teikning að Smiðjutorgi, verslunar- og þjónustumiðstöð við Smiðjuvelli á Akranesi. Verkefnið er í skipulagsferli og vonast for- svarsmenn Uppbyggingar ehf. til þess að því verði að fullu lokið eftir þrjá mánuði. Teikning sótt á www.smidjutorg.is. Asparskógar 29, þar sem framkvæmdir eru að komast á lokasprettinn. Að sögn Engilberts er stefnt að því að setja íbúðirnar í sölu eftir mánuð eða svo. Hjónin Engilbert Runólfsson og Kristín Minney Péturs- dóttir, eigendur Uppbygg- ingar ehf. Asparskógar 29 í baksýn, þar sem lokasprettur framkvæmda er framundan.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.