Skessuhorn - 16.01.2019, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 11
Víðir Arnar Kristjánsson Bjarni StefánssonÓlafur Sævarsson
Ertu í söluhugleiðingum
á nýju ári?
Höfum opnað útibú á Akranesi
Verið velkomin í kaffi
FASTEIGNASALA VENJULEGA FÓLKSINS - STILLHOLT 16-18 - WWW.DOMUSNOVA.IS - SÍMI 5271717
FRÍTT V
ERÐMA
T
Slökkvilið Grundarfjarðar
og Slökkvilið Snæfellsbæjar
nýttu liðna helgi til að læra á
nýjustu tæki liðanna. Þá komu
leiðbeinendur frá Slökkvilið-
inu í Vík og Brunavörnum
Austurlands og kenndu mönn-
um á nýju Flir-IR myndavél-
arnar sem liðin tóku nýver-
ið í notkun. Mjög góð mæt-
ing var á námskeiðið sem stóð
í tvo daga. IR myndavélarnar
nema hitageisla og munu auka
öryggi og alla nálgun í starfi
slökkviliðsmanna.
tfk
Héldu námskeið í notkun hitamyndavéla
Slökkviliðsmennirnir Vigfús Þráinn Bjarnason og Matthías Páll Gunnarsson eru
hér að brúka hitamyndavél og virðast vera að mæla hitann hjá ljósmyndara
Skessuhorns.
Axel Rafn Benediktsson, íbúi á
Akranesi, náði myndbandi af bíl
aka á ofsahraða niður Hvalfjarð-
argöngin sunnanmegin á mánu-
dag. Myndbandið birti hann á Fa-
cebook-síðu sinni sem og í íbúa-
hópi Akurnesinga og vakti athygli
á ofsaakstrinum.
Myndbandið er tekið úr farþega-
sæti bíls sem ekið er um Hvalfjarð-
argöng með hraðastillinguna á 70
km/klst., sem er hámarkshraði í
göngunum, að því er fram kemur
í myndbandinu. Eftir stutta stund
má sjá svartan jeppa þjóta framúr
bílnum, greinilega á töluvert meiri
hraða en Axel. „Svona á alls ekki
að aka, sértaklega í göngunum.
Það þarf svo lítil til að það verði
hrikalegt slys þarna. Einn bíll get-
ur grandað fleirum en bara sjálf-
um sér,“ segir Axel í færslu sinni.
kgk
Ofsaakstur í Hvalfjarðargöngum
Skjáskot úr myndbandi Axels.
Stjórn Faxaflóahafna samþykkti á
fundi sínum 11. janúar sl. að semja
við hollensku skipasmíðastöðina
Damen Shipyard um smíði á nýj-
um dráttarbát. Faxaflóahafnir höfðu
áður óskað eftir tilboði í smíði á
32-35 metra löngum báti með 80
tonna togkrafti áfram og afturábak.
Alls bárust 15 tilboð frá átta fyrir-
tækjum.
Tilboð Damen hljóðar upp á rétt
tæpar 7,6 milljónir evra, eða sem
samsvarar rúmum einum milljarði
íslenskra króna. Ákvörðun um að
semja við hollenska fyrirtækið var
tekin á grundvelli niðurstöðumats
ráðgjafa og óháðs aðila á þeim til-
boðum sem bárust, að því er fram
kemur í frétt á vef Faxaflóahafna.
„Niðurstaða yfirferðar tilboðanna
var að bátur Damen Shipyards fékk
hæstu heildareinkunn þegar búið
var að leggja saman einkunn fyrir
verð og gæði. Að mati þeirra sem
komu að matinu ber bátur Damen
Shipyards af hvað varðar tæknilegar
útfærslur og öryggi. Þá ber þjálfun-
arnámskeið hjá Damen jafnframt af
samanborið við önnur tilboð,“ segir
í minnisblaði Gísla Jóhanns Halls-
sonar yfirhafnsögumanns.
Gísla Gíslasyni hafnarstjóra var
falið að ganga frá smíðasamningi
nýja dráttarbátsins við hollenska
skipasmíðafyrirtækið. Samkvæmt
tilboðinu verður báturinn afhentur
eigi síðar en í febrúar á næsta ári.
Þeir bátar sem Faxaflóahafnir hafa
yfir að ráða fyrir eru allir smíðaðir af
hollensku skipasmíðastöðinni. kgk
Láta smíða
nýjan dráttarbát
Magni er öflugastur þeirra dráttarbáta sem Faxaflóahafnir eiga fyrir. Hér er hann
við bryggju á Akranesi skömmu eftir að hann kom nýr til landsins árið 2006.
Ljósm. úr safni.
Á auka aðalfundi Landssambands
fiskeldisstöðva (LF) 14. desemb-
er síðastliðinn var tekin sameigin-
leg ákvörðun aðildarfyrirtækjanna
um að sækja um aðild að Samtök-
um fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS).
Jafnframt var ákveðið að leggja
niður daglega starfsemi LF og mun
henni framvegis verða sinnt af SFS.
Þá hefur verið ákveðið að Einar K.
Guðfinnsson, formaður stjórnar
LF, gangi til liðs við teymi SFS
og sinni þar verkefnum sem snúa
að fiskeldismálum. „Fiskeldi hér á
landi hefur aukist á undanförnum
árum og verkefni Landssambands-
ins hafa þar með orðið fleiri og fjöl-
þættari. Það er mat stjórnar Lands-
sambandsins að þeim verkefnum
verði betur sinnt innan vébanda
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi,“
segir í ályktun aðalfundar LF.
Einar K. Guðfinnsson seg-
ir mikla uppbyggingu hafa verið
í fiskeldi á undanförnum árum og
verkefnin sem þurfi að leysa séu
orðin umfangsmeiri og flóknari en
áður. „Ég tel þetta því rökrétt skref
í þróun samtakanna og fiskeldis á
Íslandi, að verða hluti af samtök-
um sem byggja á gömlum grunni.
Laxeldi hefur alla burði til þess að
verða undirstöðuatvinnugrein á Ís-
landi á sama hátt og sjávarútvegur-
inn hefur verið um langt skeið og
verða þar með enn ein stoðin undir
efnahagslegri hagsæld Íslendinga.
Að því munum við vinna,“ segir
Einar Kristinn.
mm
Fiskeldisfyrirtæki
ganga til liðs við SFS