Skessuhorn


Skessuhorn - 16.01.2019, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 16.01.2019, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 201914 Gréta Sigurðardóttir er fædd í Reykjavík en bjó í Borgarnesi til sex ára aldurs. Þá flutti hún til Reykjavíkur þar sem hún ólst upp fram á unglingsár þegar fjölskyld- an flutti í Kópavoginn. Á fullorð- insárum hefur Gréta lengst af búið í Reykjavík en einnig í Stykkis- hólmi árin 1972 til 1987 og ól þar upp börnin sín. Árið 2007 flutti Gréta að nýju í Stykkishólm og opnaði gistiheimilið Bænir og Brauð árið 2009 og árið 2012 opn- aði hún Hótel Egilsen. Gréta kom við á skrifstofu Skessuhorns fyr- ir skömmu og ræddi við blaða- mann um lífið í Stykkishólmi, hót- elrekstur og bókahátíðina Júlíönu sem hún hefur haldið ár hvert í sex ár og nú er sjöunda hátíðin fram- undan. Sterk tenging á Snæfellsnesið Gréta hefur allt sitt líf haft ann- an fótinn á Stykkishólmi en amma hennar og afi bjuggu á eyjunni Jónsnesi sem er út af Helgafells- sveit. Þar dvaldi Gréta gjarnan yfir vor- og sumartímann þegar hún var barn og segir hún allar sínar bestu æskuminningar vera frá Jónsnesi. „Ég hef alltaf leitað mikið til Jóns- ness í huganum og það er svo skrýt- ið en fram undir 25 ára aldur, ef ég las skáldsögur, var sögusviðið allt- af Jónsnes,“ segir Gréta. „Ég hefði viljað dvelja þar öllum stundum ef ég hefði getað. En foreldrar mínir voru leiguliðar svo við fluttum oft. Jónsnes var því alltaf fasti punkt- urinn í tilverunni hjá mér,“ segir Gréta og brosir dreymin um leið og hún hugsar til baka. Eins og fyrr segir bjó Gréta í Stykkishólmi um skeið á áttunda og níunda áratugn- um. Árið 1987 lá leið hennar aft- ur til Reykjavíkur en Stykkishólm- ur togaði þó alltaf. Árið 2006 ákvað hún að kaupa sér þar hús til að nýta sem sumarhús og var þá Laufásveg- ur 1 keyptur. Þremur árum síðar stóð hún á krossgötum í lífinu og ákvað þá að opna gistiheimili í hús- inu við Laufásveg. Hugmyndin var að opna þar lítið gistiheimili sem hún myndi hafa opið yfir sumarið en dvelja svo í Reykjavík yfir vet- urna. Opnaði Hótel Egilsen Strax fyrsta sumarið sem gisti- heimilið var opið var allt fullbók- að og svo fór að Gréta ákvað að reka gistiheimilið allt árið. Ári síð- ar kom á sölu hús í Stykkishólmi sem ber nafnið Höfðagata gisting en í því húsi hafði Gréta einmitt alið upp börnin sín. Á þessum tíma kom fjölskylda hennar inn í rekst- urinn og ákveðið var að festa einn- ig kaup á þessu gistiheimili. „Á þessum tíma var litla gistiheimilið mitt orðið fjölskyldufyrirtæki og Ella Birna systir mín sá um rekst- ur á Höfðagötu gistingu,“ segir Gréta. Þarna var ekki látið við sitja en árið 2011 var sett á sölu hús sem heitir Egilshús í Stykkishólmi. Gréta og fjölskylda gátu ekki lát- ið það framhjá sér fara og keyptu húsið og opnuðu þar tíu herbergja bútík hótel, Hótel Egilsen. Gréta hefur alla tíð lagt mikla áherslu á að bæði á hótelinu og gistiheim- ilinu sé boðið upp á fyrsta flokks gistingu. „Ég ákvað strax frá upp- hafi að vera aðeins með hágæða rúm og rúmfatnað og aðeins hvítt straujað lín fyrir gesti mína. Ég legg mikið upp úr að gestunum líði vel og njóti dvalarinnar,“ segir hún og bætir því við að morgunverð- urinn hafi alltaf verið sérstaklega vinsæll. „Gestir sem komið hafa til okkar hafa allir verið mjög ánægðir með morgunverðinn en hann hef- ur fengið góða dóma bæði á Trip Advisor og booking.com.“ Bókahátíðin Júlíana Gréta var hótelstjóri á Hótel Eg- ilsen til ársins 2016 ásamt því að reka Bænir og Brauð en þá ræður hún hótelstjóra í starfið. „Í ágúst á síðasta ári komu svo barnabarn- ið mitt, hann Arnór Hreiðarsson, og unnusta hans Sólrún Sigurðar- dóttir og tóku við og ég steig alfar- ið til hliðar,“ segir Gréta og bæt- ir því við að nú taki við ný verk- efni hjá henni vitandi af gistiheim- ilinu og hótelinu í góðum hönd- um. Gréta hefur alla tíð verið mik- ill bókaunnandi og frá því hún var ung stúlka hefur henni alltaf þótt gott að setjast niður og gleyma sér yfir góðri bók. Ást hennar á bóka- lestri var kveikjan af bókahátíðinni Júlíönu sem nú hefur verið haldin árlega frá 2013 í Stykkishólmi. Er þetta ein stærsta menningarhátíð sem haldin er í Hólminum. „Ég var eina nótt að ganga um Hótel Egil- sen þegar ég sest niður og hugsa með mér að mig langi til að gera eitthvað meira á hótelinu.“ Hún ákvað því að stofna til bókahátíðar og fékk hátíðin nafnið Júlíana eft- ir Júlíönu Jónsdóttur skáldkonu. Júlíana var fyrst íslenskra kvenna til að fá útgefna bók þegar hún gaf út ljóðabókina Stúlku árið 1876. Bókahátíðinni frestað vegna kvikmyndatöku Bókahátíðin Júlíana hefur ver- ið haldin ár hvert síðustu helgina í febrúar en í ár verður hátíðinni frestað um einn mánuð og hún því haldin 21. - 24. mars. Ástæð- an fyrir frestun hátíðarinnar eru upptökur á bíómynd í Stykkis- hólmi. „Bærinn verður undirlagð- ur á meðan á tökum stendur og gististaðir uppbókaðir. Við viljum ekki falla í skuggann á upptökun- um og var það því niðurstaðan að fresta bókahátíðinni,“ segir Gréta. „En ég er líka full tilhlökkunar fyr- ir kvikmyndaupptökunum,“ segir Gréta og rifjar það upp þegar kvik- myndin „The Secret Life of Wal- ter Mitty“ var tekin upp í bænum. „Það er skemmtilegt þegar fallegi bærinn okkar er valinn fyrir svona verkefni. Það var mikið líf í bæn- um og margt indælt fólk sem kom hingað þegar myndin um Walter Mitty var tekin upp. Margir þeirra gistu á Hótel Egilsen og voru þetta allt alveg einstaklega góðir gestir. Sem að sjálfsögðu voru allir yfir sig ánægðir með morgunverðinn,“ segir Gréta og hlær við. Smásagnasamkeppni Fyrir bókahátíðina hefur verið efnt til smásagnakeppni og er þátttaka öllum opin og vinningarnir hin- ir glæsilegustu. Fyrir bestu smá- söguna hlýtur höfundur gjafabréf í gistingu á Hótel Egilsen fyrir tvo með morgunverði. Gjafabréfið tekur strax gildi til 30. apríl og svo aftur frá 1. október til loka des- ember. Þá verður einnig í verðlaun þriggja rétta kvöldverður á Sjávar- pakkhúsinu og sigling um Breiða- fjörð með Sæferðum. Það er því vel þess virði að setjast niður með skriffærin og skrifa góða sögu. En þess ber að geta að sögurnar mega að hámarki vera fjögur þúsund orð og þær skal merkja með dul- nefni en rétt nafn skal fylgja í lok- uðu umslagi. Skilafrestur er til 1. mars. Leshópurinn vinsæll Bókahátíðin verður sett á fimmtu- dagskvöldinu á Vatnasafninu og þar verður einn verðugur Hólmari heiðraður sérstaklega. „Það sem ég er einna stoltust af er samstarfs- verkefni hátíðarinnar með grunn- skólanum þar sem við höfum feng- ið rappara og höfunda til að koma og vinna með grunnskólanum til eflingar móðurmáls og skapandi skrifa. Í ár mun Ævar Örn vís- indamaður koma og vinna með 4. – 7. bekk í grunnskólanum. Börn- in munu skrifa smásögur þar sem yfirskriftin er ótti og hugrekki og á föstudeginum verður árangurinn sýndur í bókasafninu klukkan 11,“ segir Gréta. Alla helgina verður fjölbreytt dagskrá þar sem lögð er áhersla á að hafa eitthvað fyrir alla aldurshópa. Meðal þess sem verð- ur í boði á föstudeginum er sögu- stund fyrir börnin, sögulestur og sögustundir í heimahúsum. „Það er nú ekki hægt að halda svona há- tíð nema vera með viðburð fyrir börnin, enda bóklestur afskaplega mikilvægur fyrir þau. Á föstudeg- inum verður lestur fyrir börnin á Hótel Egilsen þar sem boðið verð- ur upp á heitt súkkulaði og eitt- hvað gómsætt. Það er mikilvægt að börnin fái að vera þátttakend- ur í hátíðinni og munu nemend- ur á yngri deildum Grunnskólans í Stykkishólmi setja upp sýningu á verkum sínum á Amtsbókasafn- inu með yfirskriftinni ótti og hug- rekki,“ segir Gréta og brosir. Venja er fyrir því að stofnaður sé leshópur fyrir hátíðina og er öllum velkomnir að vera með. Leshópur- inn mun að þessu sinni lesa bók- ina Ástin Texas sögur eftir Guð- rúnu Evu Mínervudóttur. „Les- hópurinn er mjög vinsæll og ég á til dæmis von á því að tveir hóp- ar úr Reykjavík muni lesa sömu bók og koma á hátíðina,“ seg- ir Gréta. Laugardagurinn byrjar með að snædd verður hin marg- rómaða Júlíönusúpa Hótal Egilsen þar sem leshópurinn kemur saman og borðar súpu og hittir Guðrúnu Evu Mínervudóttur höfund bók- arinnar. „Ég er alltaf jafn spennt fyrir hátíðinni en hún hefur alltaf verið mjög vel sótt. Ekki væri hægt að halda svona hátíð þar sem frítt er inn á alla viðburði nema með góðum styrktaraðilum og er þeirra allra getið í dagskránni þegar við auglýsum hátíðina. Einnig er þetta ógjörningur nema fyrir til- stilli þeirra ágætu kvenna sem all- ar hafa lagt sitt á vogarskálina. Í ár er það auk mín, Þórunn Sigþórs- dóttir, Dagbjört Höskuldsdóttir og fyrrnefnd Sólrún Sigurðardótt- ir. Þetta er allt unnið í sjálfboða- vinnu og hefur alltaf verið,“ segir Gréta. Hátíðinni mun svo ljúka í Norska húsinu þar sem Þorgrímur Pétursson mun leika tónlist af nýja disknum sínum, Álög, sem er að koma út. „Vert er að geta þess að umræddur Þorgrímur er einmitt sambýlismaður Vilborgar Davíðs- dóttur sem tvívegis hefur komið og verið með okkur á hátíðinni, þeirri fyrstu og þeirri sjöttu,“ seg- ir Gréta að endingu. arg / Ljósm. úr safni Bókahátíðinni Júlíönu frestað um mánuð vegna kvikmyndatöku Rætt við Grétu Sigurðardóttir hóteleiganda í Stykkishólmi um bókahátíðina og sitthvað fleira Gréta Sigurðardóttir hefur alltaf haft sterka tengingu á Snæfellsnesið. Svipmynd frá bókahátíðinni Júlíönu á síðasta ári.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.