Skessuhorn


Skessuhorn - 10.07.2019, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 10.07.2019, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 2019 9 VÍKURVAGNAR EHF. STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík - Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is Hjólastandar á bíla og í bílskúrinn. Hver standur er fyrir 2-3 hjól. Vönduð evrópsk framleiðsla. Dráttabeisli á allar gerðir bíla ásamt ásetningu. Fastar kúlur, smellukúlur og prófílbeisli. Ásetning á staðnum. nnan mál YFIR 30 ÁRA REYNSLA Í AÐ ÞJÓNUSTA VIÐSKIPAVINI - MIKIL ÞEKKING OG VÖNDUÐ VINNUBRÖGÐ - farangursbox á allar gerðir bíla.Stærðir 360 - 500 lítra Vönduð evrópsk framleiðsla. Þurrir AGM eða sýru rafgeymar fyrir tæki og rúllur Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • 577-1515 • www.skorri.is Mikið úrval • Traust og fagleg þjónusta Öflugir start rafgeymar í mörgum stærðumHleðslutæki KLÁRIR Í BÁTANA! Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is www.skessuhorn.is Eins og fram kemur hér fram- ar í blaðinu hefur ríkislögreglu- stjóri í samráði við Lögreglustjór- ann á Vesturlandi aflýst formlega óvissustigi vegna eldhættu á Vest- urlandi. Á meðan óvissustig var í gildi, frá 11. júní til 3. júlí, var mönnuð bakvakt slökkviliðsmanna í Borgarbyggð um helgar, en eld- hætta var talin einna mest á starfs- svæði þeirra. í kjölfarið afturkall- aði Borgarbyggð þessa bakvakt sem þýðir að ekki er tryggt um helgar að lágmarksmannskapur sé til stað- ar í héraðinu ef slökkvilið er t.d. boðað út vegna bruna eða ef bílslys verður í umdæminu sem krefst út- kalls tækjabíls. Bjarni Kristinn Þorsteinsson slökkviliðsstjóri kveðst aðspurður áhyggjufullur yfir að hafa ekki bak- vaktir slökkviliðsmanna á sumrin og því ekki hægt að tryggja mann- skap ef útkall berst. Auk mikillar umferðar um héraðið og fjölda bæj- arhátíða, megi búast við að dvalið sé í flestum sumarhúsum í héraðinu á sumarhelgum. „í ljósi aðstæðna var eftir því leitað sérstaklega að fá heimild til að manna lágmarks bak- vakt slökkviliðs um síðustu helgi og einnig um verslunarmannahelgi. Fyrir því reyndist ekki hljómgrunn- ur,“ segir Bjarni. Bjarni kveðst jafnan senda slökkviliðsmönnum smáskilaboð og biðla til þeirra sem verða heima- við um helgar að láta sig vita. „Hins vegar er ekki hægt að krefjast þess að menn séu til taks þegar þeir fá ekki greitt fyrir bakvaktir,“ segir Bjarni. Aðspurður segir hann það kosta sveitarfélagið verulega fjár- muni að manna bakvaktir um helg- ar, sem jafnan eru frá klukkan 18 á föstudegi til klukkan 6 að morgni mánudags. Þeir fjármunir séu ekki í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Gunnlaugur A júlíusson sveitar- stjóri staðfestir að bakvakt eins slökkviliðsmanns kosti 90 þúsund krónur, en um helgarnar í júní hafa sjö menn verið á bakvöktum hverju sinni. Viðbótarkostnaður við hverja helgi hafi því verið um 630 þúsund krónur. Geta má þess að t.d. hjá Slökkvi- liði Akraness og Hvalfjarðarsveitar eru mannaðar bakvaktir 14 helg- ar á sumri meðan sumarleyfistím- inn stendur sem hæst. Þá er tryggt að stjórnandi sé á vakt auk fimm slökkviliðsmanna allar helgar sem sumarleyfistíminn stendur yfir. Á starfssvæði þess slökkviliðs eru stór- iðjuverin á Grundartanga og um átta þúsund manna íbúðabyggð. mm Ekki bakvakt slökkviliðs um helgar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.