Skessuhorn


Skessuhorn - 10.07.2019, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 10.07.2019, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 201926 Sjávarútvegur á íslandi hefur nán- ast frá landnámi verið undirstöðu- atvinnuvegur landsmanna. Ski- paskagi er eitt fyrsta sjávarútvegs- þorp sem myndaðist á landinu, en það var á sautjándu öld, á dögum hins hæstráðanda Brynjólfs bisk- ups Sveinssonar í Skálholti, sem þá var höfuðstaður íslands. Matark- isturnar í Skálholti voru flesta daga hlaðnar fiski frá Skipaskaga; full- verkuðum harðfiski og eitthvað af saltfiski, en harðfiskur var áður fyrr einn helsti matur íslendinga og hann gjarnan borðaður með smjöri eða sölvum. Ekki skaðar að harð- fiskur er sérlega próteinrík næring. útgerð var áfram stunduð af full- um krafti frá Akranesi, og þar var stórt útver á 19. öld, og um 1870 réru þaðan 78 bátar. Telur Lúðvík Kristjánsson rithöfundur að óvíða á landinu hafi verið jafn stór báta- floti og þar. Um miðbik síðustu aldar náði sjávarútvegur hvað hæstum hæðum hér á Akranesi og voru flestir íbú- ar bæjarins að mestu leyti tengdir honum á einn eða annan hátt. Þessi uppgangur í atvinnulífinu hafði víðtæk áhrif bæði í íþróttum sem og alls kyns menningarstarfsemi og of langt mál upp að telja. Til gamans getum við skoð- að vertíðina eitt árið; 1941. Það ár sýnir svo ekki verður um villst hvert stefnir. Á vetrarvertíðinni 1941 gengu frá Akranesi 22 bátar með 240 mönnum. Meðalróðra- fjöldi þessa fjóra mánuði (jan.-maí) var talinn vera 80. Eins og sjá má á róðrafjöldanum hafa gæftir verið ágætar og veiðarfæratap var tiltölu- lega lítið. í ársbyrjun 1942 voru íbúar Akraness 1850 að tölu, eða fjórum sinnum færri en í dag, og gefur þetta til kynna mikilægi sjáv- arútvegsins á þessum árum. Aflatölur og aflahlutir árið 1941 Mestan afla í róðri mun v.b. Fylkir hafa fengið, um 17 smálestir. Fylk- ir MB-6 var 40 brúttólestir, gerð- ur út af Þórði Ásmundssyni. Skip- stjóri var Njáll Þórðarson. Afla- hæstur á vertíðinni var v.b. Egill Skallagrímsson MB 73, sem gerð- ur var út af Haraldi Böðvarssyni. Skipstjóri var Ragnar Friðriksson. Egill Skallagrímsson var 28 brúttó- lestir að stærð. Aflamagn hans yfir vertíðina var 500 smálestir af fiski, slægðum með haus. Auk þess hefur verið saltaður afli hans úr fjórum róðrum. Aflaverðmæti þessa báts, miðað við nýjan fisk og hrogn var um 220 þúsund krónur. Nú árið 2019 væru þetta umreiknað ca 35 milljónir króna. Aflamagnið á þessum árum var miðað við slægðan fisk þannig að 500 tonna afli 1941 er í raun 625 tonn (25% hækkun). Lifrarfeng- ur þessara hæstu báta var á bilinu frá 35 til 40 þúsund lítrar. Hér ber að geta að v.b. Höfrungur MB 98 var með allt að því eins mikinn afla og Egill. Skipstjóri á Höfrungi var Ástvaldur Bjarnason, og báturinn í eigu H.B. & Co. Hér má árétta að Egill Skalla- grímsson var aðeins 28 tonn og afl- aði 500 tonn, en 20-30 árum síð- ar voru hæstu bátar á vetrarvertíð með um 600 til 900 tonn, en skip- in orðin 100 til 200 brúttólesti og tækjabúnaður og veiðarfæri allur annar og fullkomnari. Aflabrögð Akranesbáta voru óvanalega jöfn árið 1941 og stund- uðu flestir bátanna veiðar með línu og réru að jafnaði með 30 til 34 bjóð í róðri. Áætlaður aflahlutur í þessa fjóra mánuði vetrarvertíðar árið 1941 voru um 10.000 krónur, sem um- reiknaðar væru á núvirði um kr. 1.600.000. Skipstjórar Eins og áður sagði var Egill Skalla- grímsson talinn aflahæstur. Ragnar skipstjóri var 33 ára gamall og hafði þá verið skipstjóri í 10 ár. Hann var áður meðeigandi og skipstjóri á v.b. Hafþóri, sem þá var oft báta hæstur með afla. Meðeigendur með Ragn- ari voru vélstjórarnir Þorberg- ur Sveinsson á Setbergi (Setberg- ur) og Hjalti Benónýsson á Hauka- bergi. Ragnar Friðriksson og Eg- ill Skallagrímsson voru ekki aðeins hæstir árið 1941, heldur einnig árin 1942, 1944, 1945 og 1946, og var vertíðaraflinn hjá þeim að með- atali milli 500 og 700 tonn. Ragn- ar var um áratugaskeið skipstjóri á vélbátum frá Akranesi; mikill afla- maður, eins og áður hefur kom- ið fram og orðlagður sjósóknari. Hann var ókvændur og barnlaus og átti síðast heima á Auðnum, Vest- urgötu 46. Frumkvöðlar Frumkvöðlar í skipstjórn á vélbát- unum urðu margir hverjir lands- frægir sjósóknarar og aflamenn, en margar fórnir voru því miður færð- ar af sjómönnum við skyldustörf- in á hafinu. Brautina höfðu rutt bræðurnir jón og Bjarni Ólafssynir á Litlateig og bræðurnir Einar og Skafti jónssynir frá Hofi, en þeir höfðu drukknað ásamt félögum sínum, allt vöskum sjómönnum, á fjórða áratugnum. Á þessum árum komu í kjölfar- ið margir aflaskipstjórar, sem áttu eftir að gera garðinn frægan. Næg- ir að nefna Akrabræður, þá Berg- þór, jóhannes og Þórð Guðjóns- synir; einnig bræðurna frá Sýrup- arti, þá jóhannes á Auðnum og Þórð Sigurðssyni og bræðurna frá Sigurvöllum þá Björn og Valdimar Ágústssyni. Tveir bræður frá Sól- eyjartungu, þeir Halldór og Einar Árnason, voru nafntogaðir; einn- ig Einar Ingjaldsson á Bakka, Ást- valdur Bjarnason frá Sýruparti, Njáll Þórðarson úr Georgshúsi, Valdimar Kristmundsson í Mörk, Ármann Halldórsson á Hofteigi, Sigurbjörn jónsson í Tjörn, Kjart- an Helgason í Lambhúsum, Hákon Halldórsson á Hofteigi, Brynjólfur Nikulásson á Háteigi, Þóroddur Oddgeirsson frá Svalbarða og svo mætti lengi telja. Margir áttu einnig eftir að flytja til Akraness á þriðja og fjórða ára- tugnum; fóru þar í fararbroddi skipstjórarnir og bræðurnir Odd- ur og Sigurður Hallbjörnssynir frá Súgandafirði, bræðurnir Loftur og Þorkell Halldórsson frá Bíldudal, Marinó Árnason frá ísafirði, Elí- as Guðmundsson frá Hafnarfirði, Kristinn jónsson úr Dýrafirði og fleiri mætti telja. Tímamót Mjög afdrifarík tímamót urðu hér á Skaganum fyrir nokkrum árum þegar ráðamenn bæjarins og stærsta útgerðarfyrirtækisins hvöttu til sameiningar við útgerðarrisann Granda í Reykjavík. Það reyndust vera mikil mistök fyrir byggðina, og má segja að sögu Akraness sem sjávarútvegsbæjar hafi þá að miklu leyti verið lokið. Því meiri ástæða er að hvetja til þess að ritun á sögu Akraness verði lokið sem fyrst, það er tímabilinu frá 1800 til 2000, en skriflegar heimildir munu vera fyr- ir hendi, bæði hér í Héraðsskjala- safninu, sem og hjá Gunnlaugi Haraldssyni, þjóðháttafræðingi og fyrrverandi safnverði í Byggðasafn- inu í Görðum, sem ritaði fyrstu tvö bindin. Ásmundur Ólafsson Heimildir: Fiskifélag Íslands og Hagstofa Íslands; einnig Ljósmynda- safn Akraness. Apótek Fríðu Proppé á Suðurgötu 32, árið 1935. Hér við hornið á Apótekinu komu skipstjórarnir gjarnan saman til að “bræð´ann”, eins og sagt var; það er að bræða hann: gá til veðurs og bera saman bækurnar um næsta róður, hvort fært væri o.s.frv. Þá var öldin önnur, er Gaukur bjó á Stöng Ásmundur Ólafsson Egill Skallagrímsson MB 73, smíðaður í Danmörku 1927. Hæsti bátur á vetrar- vertíð í mörg ár. Aflakóngur var Ragnar Friðriksson; báturinn var í eigu H.B. & Co. Myndhöfundur óþekktur. Fylkir MB 6, smíðaður í Svíþjóð 1928. Þekkt aflaskip á árunum 1930-39. Skipstjóri Njáll Þórðarson; báturinn í eigu Þórðar Ásmundssonar. Myndhöfundur: Ólafur Árnason. Höfrungur MB 98, smíðaður á Akranesi 1929. Aflaskip; skipstjóri 1941 Ástvaldur Bjarnason; báturinn var í eigu Haraldar Böðvarssonar. Myndhöfundur: Árni Böðvarsson. Skipstjórarnir Ragnar Friðriksson sem segir frá í greininni er til hægri á myndinni. T.v. er Þórður Sigurðsson frá Sýruparti. Hann stundaði sjó frá 15 ára aldri og var lengi skipstjóri hjá H.B. & Co. Þórður hlaut franska riddaraorðu fyrir björgunar- tilraunir, þegar rannsóknarskipið Pouquoi pas? Fórst við Mýrar. Óþekktur ljós- myndari.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.