Skessuhorn


Skessuhorn - 10.07.2019, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 10.07.2019, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 2019 21 Uppselt var á Lopapeysuna á laug- ardagskvöldið síðasta, sem er einn stærsti og aðsóknarmesti viðburð- ur landsins, haldin á bæjarhátíðinni írskum dögum á Akranesi ár hvert. Um er að ræða eitt skemmtileg- asta sveitaball ársins sem hefur ver- ið fastur liður í hátíðarhöldunum síðustu 16 ár og gaf viðburðurinn í ár hvergi eftir. Lopapeysan, sem skipulögð er af Vinum hallarinn- ar með Skagamanninn ísólf Har- aldsson í fararbroddi, hefur vax- ið töluvert að umfangi síðustu árin og spáðu skipuleggjendur að þetta yrði sú stærsta til þessa. „Þetta var svakalegt, maður hefur sjaldan séð annað eins,“ sagði ísólfur í sam- tali við Skessuhorn að helginni lok- inni. „Eftir að við lokuðum fyr- ir sölu á Midi.is um miðjan dag á laugardeginum þá voru 11.643 IP- tölur sem fóru á heimasíðuna til að reyna að verða sér úti um miða. Við sáum í hvert stemmdi og þurftum að bregðast við. Við lokuðum fyrir söluna á vefnum og vorum með 600 miða í sölu við innganginn en þeir, líkt og miðarnir á vefnum, ruku út nánast samstundis. Þetta var galið. Allt í einu var þetta bara orðið eins og 16 ára gamalt barn í alltof litlum buxum,“ útskýrir ísólfur. Aldrei séð annað eins Hefð er fyrir því að hátíðargestir fari á brekkusönginn við Akranes- völl og rölti svo að honum loknum meðfram sjónum, áleiðis að bryggj- unni þar sem Lopapeysan fer fram í sementsskemmunni. Einungis einn inngangur er inn á Lopapeysusvæð- ið og því myndaðist ákveðinn tappi þegar mannfjöldinn mætti allur á sama tíma til þess að skemmta sér. „Það er fyrir öllu að koma í veg fyrir að einhver slasist eða troð- ist undir. Á ákveðnum tímapunkti þegar mesta álag var við inngang- inn sáum við ekkert annað í stöð- unni en að opna hliðið tímabund- ið til að létta á straumnum. Ég hef aldrei séð annað eins. Svo er fólk aðeins búið að fá sér og það vill bara fara að skemmta sér en ekki bíða í röð,“ segir ísólfur um mann- fjöldann. ísólfur segir erfitt að spá í fjöldann sem var samankominn á Lopapeysusvæðinu þegar mest var, en alltaf hafa um 3.000 miðar farið í sölu. „Þegar álagið var sem mest við innganginn þurftum við, til að halda fólki óhultu, að opna tíma- bundið inn á svæðið. Því miður voru einhverjir einstaklingar sem nýttu sér krefjandi aðstæður skipu- leggjenda og komust inn á svæð- ið með falsaðan miða eða voru án miða. En heilt yfir gekk þetta virki- lega vel miðað við fjöldann.“ „Sáum merki um þetta í fyrra“ Viðburðurinn hefur ávalt ver- ið haldinn við bryggjuna á Akra- nesi og segir ísólfur það ákveð- inn sjarma að halda Lopapeysuna þar. En, getur verið að bryggjan sé sprungin fyrir eins stóran viðburð og Lopapeysan er orðin? „Við höf- um ekki horft til þess að fara eitt- hvað annað. Við sáum merki um þetta í fyrra og þurfum í rauninni bara að teikna þetta upp á allt ann- an hátt, setja meiri tíma í skipulag og undirbúning. Það er vel hægt. Við viljum fyrst og fremst að fólki finnist það öruggt á ballstað og að það sé nóg svigrúm til að dansa auk þess að við viljum fólk á fjölbreytt- um aldri, heimamenn ásamt brott- fluttum Skagamönnum. Við ger- um alltaf hærri kröfur til okkar eftir hvern viðburð og það verður ekkert öðruvísi í ár,“ segir ísólfur að end- ingu. glh Aldrei verið jafn margir á Lopapeysunni Ísólfur Haraldsson kom Lopapeysunni á laggirnar fyrir 16 árum. Ljósm. glh. Ekki var annað að sjá en að fólk hafi skemmt sér konunglega á Lopapeysunni í ár. Ljósm. Mummi Lú. Blöðrulistamaður var á svæðinu og voru krakkar duglegir að biðja um allskonar blöðrufígúrur. Hátíðargestir voru í sólskinsskapi, varla annað hægt eins og veðrið var um helgina. Metaðsókn var í brekkusönginn í ár. Ljósm. Pétur Magnússon. Brjáluð stemning var í skemmunni á Lopapeysunni að vanda. Ljósm. Mummi Lú.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.