Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2019, Qupperneq 7

Skessuhorn - 23.10.2019, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 2019 7 Bókmenntakvöld - Fjallapund, lygamót og stangarskot! Rithöfundar lesa úr verkum sínum Fimmtudaginn 31. október kl. 20:00 á Bókasafni Akraness Sigurbjörg Þrastardóttir stýrir dagskrá SK ES SU H O R N 2 01 8 Bókasafn Akraness • Dalbraut 1 • s. 433 1200 bokasafn.akranes.is • bokasafn@akranessofn.is Allir velkomnir. Kaffiveitingar. Bækur til sölu á góðum kjörum. AKRANES Fram koma: Eva Björg Ægisdóttir: Stelpur sem ljúga Steinunn Sigurðardóttir: Dimmumót Bragi Ólafsson: Staða pundsins Kristín Helga Gunnarsdóttir: Fjallaverksmiðja Íslands Bergur Ebbi Benediktsson: Skjáskot Magnús Guðmundsson: Stöngin út – saga Halldórs í Henson SK ES SU H O R N 2 01 9 Búsetuþjónusta fatlaðs fólks á Akranesi auglýsir laust til umsóknar starf deildarstjóra. Búsetuþjón- ustan sér um að veita fötluðu fólki með langvarandi stuðningsþarfir aðstoð og stuðning til sjálfstæðs lífs og félagslegrar þátttöku í samfélaginu. Auglýst er eftir iðjuþjálfa, þroskaþjálfa, eða öðrum fagaðila með háskólamenntun í félags- eða heilbrigðisvísindum sem nýtist í starfi. Um er að ræða 80% stöðu í þjónustukjarna fyrir fólk með fötlun þar sem unnin er vaktavinna, virka daga og helgar. Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember næstkomandi. Nánari upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur ásamt umsóknareyðublaði má finna á www.akranes.is/lausstorf Laust starf deildarstjóra í Búsetuþjónustu fatlaðs fólks Grunnskóli Grundarfjarðar og Grunnskóli Snæfellsbæjar voru í síðustu viku með í gangi verkefni sem gengur undir nafninu „Menn- ingarmót“. Í Grundarfirði var dag- skráin hluti af Rökkurdagahátíðinni sem er í gangi, með hinum ýmsu viðburðum. Föstudaginn 18. októ- ber var svo opið hús í skólanum þar sem að nemendur sýndu afrakstur- inn í hádeginu. Sýningin heppnað- ist mjög vel og var margt forvitni- legt að sjá. Menningarmót fór sömuleiðis fram í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Verkefnið er einnig þekkt undir nafninu Fljúgandi teppi og um að ræða þverfaglega aðferð í starfi með börnum og fullorðnum. Er hún hu- gsuð til þess að varpa ljósi á fjöl- breytileika menningarheima þátt- takenda sem og styrkleika. Kristín R. Vilhjálmsdóttir kennari, men- ningarmiðlari og verkefnastjóri fjö- lmenningar hjá Borgarbókasafni er hugmyndasmiður þessa verkefnis. Hefur hún mótað og notað Men- ningarmót með góðum árangri í kennslu á Íslandi undanfarin tíu ár. Kristín leiðbeindi starfsfólki skólanna sem og nemendum með innleiðingu verkefnisins og fór hún yfir hugmyndafræði þess og hver- nig hægt væri að framkvæmda það á fjölbreytilegan hátt. tfk/þa Tinna Rós Þorsteinsdóttir er fædd og uppalin á Akranesi. Hún notar listamannanafnið Tinna Royal sem hún tekur beint frá skyndibúðingn- um sívinsæla. „Þetta er fimmta árið í röð þar sem ég tek þátt á Vöku- dögum hér á Akranesi. Fyrstu sýn- inguna mína hélt ég á Bókasafni Akraness fyrir hálfgerða tilvilj- un, þar sem ég sýndi handsaumuð pallíettu málverk og eftir það lof- aði ég mér að ég myndi alltaf taka þátt,“ segir Tinna. „Það er virkilega gaman að sjá hvað það eru margir gestir sem nýta sér að koma á þessa viðburði og þeim fjölgar alltaf með hverju árinu,“ bætir hún við. Tinna Rós segir að á annarri sýn- ingunni hennar hafi hún verið með risastórar vatnslitamyndir af börn- um að borða kleinuhringi. „Í fyrra sýndi ég glassúraðar styttur sem ég keypti á nytjamörkuðum og þar á meðal var ég með Jón í lit, en það leiddi til þess að ég fór í samstarf með vöruhönnuðinum Almari og við gerðum 20 eintök af þessum sérstaka Jóni. En í ár ætla ég að halda aðra olíumálverka sýningu og þótt ég leiki mér í allskyns miðlun og efnum þá þykir mér alltaf vænst um olíuna.“ Árið 2011 fór Tinna Rós í forn- ám og svo fagurlistnám í Mynd- listaskólanum á Akureyri þar sem hún segist hafa lært ómetan- leg handtök hjá einstökum kenn- urum. „Ég hef svo síðustu átta árin verið að temja olíuna að mínu skapi. Sýningin í ár er haldin í Betri stofunni í Gall- eríi Bjarna Þórs en hann á einmitt stóran þátt í því að ég vildi verða mál- ari þegar ég yrði stór. Öll verkin á sýningunni eru glitrandi ný, og eins og Royal aðdáendur ættu að þekkja, stútfull af kleinuhringjum og sæta- brauði. Smáfuglar úr íslenskri nátt- úru fá stórt hlutverk að þessu sinni og njóta þessara yfirgefnu veitinga. Sýningin ber titilinn „Lof þeim að borða köku“ og vil ég bjóða öllum velkomin á opnunina fimmtudag- inn 24. október frá klukkan 16 - 20 og þiggja léttar veitingar.“ Sýningin Tinnu Royal stendur yfir til 23. desember og er aðgengi- leg á opnunartíma Gallerí Bjarna Þórs. mmHilmar Már Arason skólastjóri í GSNB og Kristín R Vilhjálmsdóttir kennari. Ljósm. þa. Menningarmót í grunnskólum á Snæfellsnesi Svipmynd frá menningarmóti í Grundarfirði í hádeginu á föstudaginn. Ljósm. tfk. Sýningin ber heitið Lof þeim að borða kök u. Tinna Royal opnar sýningu í Galleríi Bjarna Þórs Tinna Rós Þorsteinsdóttir, Tinna Royal, við nokkur verka sinna.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.