Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2019, Page 15

Skessuhorn - 23.10.2019, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 2019 15 Drög að samgönguáætlun fyr- ir tímabilið 2020-2034 hafa ver- ið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Um er að ræða upp- færða og endurskoðaða sam- gönguáætlun til fimmtán ára á grunni þeirrar sem samþykkt var á Alþingi síðasta vetur. Einnig er kynnt uppfærð aðgerðaáætlun fyr- ir fyrsta tímabilið 2020-2024. Sig- urður Ingi Jóhannsson samgöngu- ráðherra kynntu áætlunina á fundi síðastliðinn fimmtudag. Nú fá allir sem kjósa svo tækifæri til að senda inn umsagnir eða ábendingar en frestur til að skila þeim rennur út 31. október næstkomandi. Í sam- gönguáætluninni er sérstök áhersla lögð á að flýta framkvæmdum inn- an tímabilsins frá því sem áður var og stefnt að innheimtu veggjalda. Einnig eru nýjar stefnur kynntar um flug á Íslandi og almennings- samgöngur milli byggða. Mest til vegagerðar Bein framlög til samgöngumála nema alls tæpum 633 milljörð- um króna á fimmtán ára tímabili samgönguáætlunar. Til vegagerð- ar falla tæpir 560 milljarðar, um 37 milljarðar renna til flugvalla og flugleiðsögu, rúmir 14 milljarðar til hafnamála, rúmir 19 milljarð- ar í stjórnsýslu, öryggis og eftirlits og rúmir 2,5 milljarðar til Rann- sóknarnefndar samgönguslysa. Unnið verður að framkvæmd- um til að aðskilja akstursstefnur frá höfuðborgarsvæðinu að Borg- arnesi, austur fyrir Hellu og að Leifsstöð. Helstu framkvæmd- ir sem flýtt verður á Vestursvæði eru uppbygging aðskildra akst- ursstefna Akrafjallsvegur-Borgar- nes, sem áætlað er að ljúka á 2. og 3. tímabili samgönguáætlunar, en áætlaður kostnaður við verkið er um 8 milljarðar króna. Þá verður á fyrsta tímabili áætlunar lokið við Dynjandisheiði en verkið kostar um 5,8 ma. kr. Loks verður Bíldu- dalsvegur-Vestfjarðavegur klárað- ur á öðru tímabili áætlunarinnar og kostar það 4,8 ma. kr. Framkvæmdum flýtt Við endurskoðun fjármálaáætl- unar síðasta vor var samþykkt að auka framlög til vegagerðar um- talsvert. Þeim fjármunum er m.a. ráðstafað í aukin framlög til ný- framkvæmda, viðhalds vega og þjónustu. Framlögin hækka um 4 milljarða á ári á tímabilinu 2020-2024 frá því sem áður var. Fjölmörgum framkvæmdum verð- ur flýtt á tímabili áætlunarinnar með sérstakri áherslu á að bæta umferðaröryggi og tengingar milli byggða. Á tímabilinu verður fram- kvæmdum, sem í heild eru metnar á um 214,3 milljarða króna, flýtt. Þar af eru framkvæmdir fyrir um 125,5 milljarða króna utan höfuð- borgarsvæðisins og 88,8 milljarða króna í samræmi við samgöngu- sáttmála höfuðborgarsvæðisins. Í samgönguáætlun eru kynnt áform um helstu verkefni sem geta hentað vel fyrir samvinnuverkefni (PPP) ríkis og opinberra aðila en slík fjármögnun getur flýtt mörg- um verkefna samgönguáætlunar. Sérstök jarðgangaáætlun er kynnt en þar er gert ráð fyrir að fram- kvæmdir við Fjarðarheiðargöng hefjist þegar á árinu 2022. Bein fjármögnun ríkisins í samgöngu- sáttmála höfuðborgarsvæðisins er staðfest í samgönguáætluninni. Sáttmáli ríkis og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu felur í sér sameiginlega sýn og heildarhugs- un fyrir fjölbreyttar samgöngur á svæðinu og eiga að kosta um 120 milljarða króna. Gjaldtaka í öll jarðgöng Sérstök jarðgangaáætlun birt- ist nú í samgönguáætlun. Miðað er við að jafnaði sé unnið í ein- um göngum á landinu á hverjum tíma og þannig leitað fyrirmyndar frá Færeyjum. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við Dýrafjarðar- göng ljúki árið 2020. Þá er miðað við að flýta upphafi framkvæmda við Fjarðarheiðargöng þannig að þær hefjist árið 2022 eða talsvert fyrr en áður hefur verið ráðgert. Fjarðarheiðargöng eru sett í for- gang, í samræmi við niðurstöðu verkefnishóps um jarðgangakosti á Austurlandi. Gert er ráð fyrir að verkefnið muni klárast á gild- istíma áætlunarinnar. Í kjölfar- ið hefjast framkvæmdir á göngum milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarð- ar og síðan frá Mjóafirði til Norð- fjarðar og þannig verði komið á hringtengingu á svæðinu. Gert er ráð fyrir því að framlög af sam- gönguáætlun standi undir helm- ingi framkvæmdakostnaðar jarð- ganga. Þá er stefnt að því að gjald- taka af umferð í jarðgöngum á Ís- landi standi undir hinum helmingi kostnaðar við framkvæmdir en einnig að sú innheimta muni fjár- magna rekstur og viðhald gang- anna að framkvæmdum loknum. Þannig má gera ráð fyrir því að gjaldtaka hefjist til dæmis að nýju í Hvalfjarðargöngum. Veggjöld greiði helming Í samgönguáætluninni er lögð enn meiri áhersla en áður á að auka samvinnu milli hins opinbera og einkaaðila við að hraða uppbygg- ingu framkvæmda, sem í senn auka umferðaröryggi og eru þjóð- hagslega hagkvæm. Nokkrar stærri framkvæmdir eru tilgreindar sem hentugar í slík samvinnuverkefni svo sem Sundabraut og tvöföldun Hvalfjarðarganga. Framkvæmdir sem bjóða upp á vegstyttingu og val um aðra leið koma einnig til greina eins og ný brú yfir Ölfusá og jarðgöng um Reynisfjall/lág- lendisvegur um Mýrdal. Að end- ingu er einnig stefnt að því að einstaka framkvæmdir verði fjár- magnaðar að hluta með þessum hætti eins og ný brú yfir Horna- fjarðarfljót og vegur yfir Öxi. Landsmenn eru hvattir til að kynna sér Samgönguáætlun í heild sinni inni á samráðsgátt stjórn- valda. Athygli vekur að stuttur tími er gefinn til að koma með at- hugasemdir, en frestur rennur út um mánaðamótin. mm/ Ljósm. Kolbrún Ingvarsdóttir. DAGAR FRAMKVÆMDA 24. okt.– 2. nóv. Nú erum við í framkvæmdaskapi! Komdu við og græjaðu útihúsið fyrir veturinn. Fimmtán ára samgönguáætlun komin í kynningu Gert ráð aðskildum akreinum og að veggjöld standi undir helmingi kostnaðar Síðasti opnunardagur Kaffi Em- ils í Grundarfirði verður næstkom- andi föstudag, 25. október. Undan- farin þrjú og hálft ár hafa mæðg- urnar olga Sædís Aðalsteinsdótt- ir og Elsa Fanney Grétarsdóttir átt veg og vanda að rekstri kaffihúss- ins, með aðstoð eiginmanna sinna, þeirra Grétars Höskuldssonar og Markúsar Inga Karlssonar. Blaða- maður hitti olgu að máli síðastlið- inn fimmtudag. Hún sagði að nú hefðu þrjú af fjórum snúið sér að öðrum verkefnum. Hún hafi rekið kaffihúsið áfram undanfarin misseri en tekið ákvörðun um að föstudag- urinn 25. október yrði síðasti dag- urinn sem opið verður á Kaffi Emil. „Þetta hefur gengið vel alla tíð og aðsóknin verið góð. Við höfum ver- ið einstaklega heppin með starfs- fólk og þetta hefur verið óskaplega skemmtilegt,“ segir olga. „Alla tíð höfum við haft listaverk til sýn- is og sölu og fallegt handverk eftir heimafólk, sem og haldið reglulega tónleika á kaffihúsinu. Þeirri stefnu héldum við alla tíð og erum stolt af því,“ bætir hún við. Spurð hvað taki við kveðst hún auðvitað aðeins getað svarað fyrir sjálfa sig. Fjölskyldan rekur einnig María Apartments í Grundarfirði og hafa verið uppi hugmyndir um að bæta við annarri íbúð á neðri hæð hússins, eða öðru ferðatengdu, þar sem leigjandi að hluta neðri hæðarinnar er á förum. „Nú leggst ég undir feld og velti fyrir mér hver verða næstu skref hjá mér, en ég get lofað því 100% að það verður eitthvað ferðaþjónustutengt,“ segir olga að endingu. kgk Mæðgurnar Olga Sædís Aðalsteinsdóttir (t.h.) og Elsa Fanney Grétarsdóttir. Ljósm. úr safni/ kgk. Síðasti opnunardagur Kaffi Emils á föstudag

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.