Skessuhorn - 23.10.2019, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 201918
Sóley Rós Þórðardóttir er dótt-
ir þeirra Ingibjargar Jóhannsdótt-
ur frá Ási í Laxárdal í Dölum og
Þórðar Svavarssonar frá Búðardal á
Skarðsströnd. Sóley fæddist heima í
stofunni í Búðardal á Skarðsströnd.
„Það er pínu fyndin saga því pabbi
minn og báðir afar mínir fæddust í
þessari sömu stofu. En ég var á mik-
illi hraðferð í heiminn,“ segir Sóley
þegar Skessuhorn ræddi við hana í
liðinni viku. Sóley ólst upp á Mið-
brautinni í Búðardal þar sem hún
gekk í grunnskóla. Eins og mörg
ungmenni úti á landi þurfti hún að
fullorðnast hratt og flytja að heim-
an aðeins 16 ára gömul til að fara
í framhaldsskóla. Hún fór í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi
og bjó þar á heimavistinni. Hún tók
eitt ár á almennri námsbraut áður
en hún hélt til Reykjavíkur í kokk-
anám.
Ætlaði að
læra snyrtifræði
„Maður getur bara verið í eitt ár
á almennri braut en svo þurfti ég
að ákveða hvað ég vildi læra. Það
hafði alltaf verið draumur hjá mér
að verða snyrtifræðingur, bara al-
veg frá því ég var pínulítil.“ Sóley
ákvað því að kynna sér snyrtifræði-
námið en sá fljótlega að líklega væri
það ekki nám fyrir hana. „Þegar ég
fór að kynna mér þetta betur komst
ég að því að ég þyrfti að læra fót-
snyrtingu og ég er með rosalega fó-
bíu fyrir tám. Þetta var því einfald-
lega útilokað fyrir mig,“ segir hún
og hlær. Hugurinn snérist þá yfir í
matreiðsluna. „Ég var samt aldrei
þetta barn sem var alltaf að elda
eða baka, bara alls ekki. Ég hef ekki
hugmynd hvaðan þessi hugmynd
mín kom, að gerast kokkur. Ætli
mér hafi ekki bara fundist eitthvað
kúl við það,“ segir hún. Næsta skref
var að sækja um að komast í prufu
á Vox restaurant, sem nú heitir Vox
Brasserie & bar og er veitingastað-
ur á Hilton hóteli í Reykjavík. „Ég
fór með strætó suður og fór í prufu
í nokkra klukkutíma og í strætó á
leiðinni til baka ákvað ég að skrá
mig í kokkanámið. Þremur mánuð-
um síðar var ég farin að vinna sem
nemi á Vox,“ segir Sóley.
Kynntist Árdísi
Kokkanámið er sett þannig upp
að námið fer að mestu fram sem
starfsnám á veitingastöðum og eru
aðeins tvær annir kenndar í skóla.
„Þetta eru fjögur ár samtals og ég
tók fyrstu þrjú árin á Vox og fór
svo í skólann síðasta árið,“ útskýr-
ir Sóley. Á Vox kynntist Sóley Ár-
dísi Evu Bragadóttur sem í dag er
hennar besta vinkona og viðskipta-
félagi. Árdís ætlaði sér ekki heldur
að verða kokkur. Hún hafði unnið
hjá Flugfélaginu í tvö ár en stefndi
á að fara í háskólanám. „Ég hafði
mjög gaman af bakstri og var að
gæla við að gerast bakari eðe kondi-
tori þegar vinkona mín sem ég vann
með spyr af hverju ég fer ekki bara
í MK í kokkanám? Ég hafði ekkert
hugsað út í það en eftir því sem ég
hugsaði meira um þetta fannst mér
það frábær hugmynd fyrir mig því
þar lærir maður bæði að baka og
elda,“ segir Árdís. Hún sótti um á
Hilton hóteli og byrjaði námið þar,
eins og Sóley, en þær voru samstíga
í náminu allt frá upphafi þrátt fyr-
ir að hafa ekki kynnst fyrr en ári
eftir að þær hófu nám. „Við vor-
um báðar að vinna þarna á Hilton
en á sitthvorri vaktinni svo við hitt-
umst aldrei. Við vorum einu stelp-
urnar sem vorum nemar þarna og
ég var forvitin um hver þessi stelpa
væri á hinni vaktinni,“ segir Árdís.
Eftir eitt ár kynntust þær loksins
og hafa verið bestu vinkonur síðan.
„Við erum þekktar fyrir það í þess-
um bransa að vera alltaf saman, þú
nærð okkur ekkert í sundur,“ seg-
ir Sóley og hlær. „Þegar þú hittir
einhvern sem nær þér svona vel og
maður treystir og vinnur svona vel
með þá sleppir maður því ekki. Við
erum með sama áhugamálið, sömu
stefnuna og hugsum eins,“ bætir
Árdís við.
Tóku að sér kokkastarf
í veiðihúsum
Eftir útskrift úr náminu í desemb-
er 2016 ákváðu Sóley og Árdís að
prófa eitthvað nýtt og sóttu um að
vera kokkar í veiðishúsunum við
Hofsá og Selá í Vopnafirði. Þær
voru þar sumarið 2017 hvor í sínu
veiðihúsinu. „okkur langaði bara
að hoppa í djúpu laugina og treysta
á okkur sjálfar, elda sjálfar ekki með
neina yfirmenn,“ segir Sóley. Eftir
sumarið var þeim báðum boðið að
koma aftur á Hilton, Sóleyju sem
vaktstjóra á veitingastað hótelsins
og Árdísi sem kokkur í veislueld-
húsinu sem sér um alla viðburði á
hótelinu. „Þarna vorum við aftur
komnar saman á Hilton en á sitt-
hvorri hæðinni en við börðumst
samt alveg fyrir að fá að vinna sam-
an,“ segir Sóley og hlær. Eftir eitt
ár á Hilton ákváðu þær að skrá sig
í meistaranám sem þær hófu haust-
ið 2018 og samhliða því unnu þær
enn á Hilton. „Í febrúar á þessu ári
ákváðum við að það væri kominn
tími til að gera eitthvað nýtt svo við
hættum á Hilton. Kokkar eru yfir-
leitt alltaf á hreyfingu og ekki of
lengi á sama stað og það var bara
kominn tími fyrir okkur, enda bún-
ar að vera þarna í næstum sex ár,“
segir Sóley.
Moon veitingar
Í maí á þessu ári útskrifuðust þær
vinkonur úr meistaranáminu og
fóru í kjölfarið að huga að næstu
skrefum. Þær ákváðu að taka ann-
að sumar í veiðihúsi og fóru saman
í veiðihúsið við Hítará. Þar ákváðu
þær að fara saman í rekstur og
stofnuðu Moon veitingar. „Við fór-
um bara mjög hægt af stað og byrj-
uðum á að opna Instagram fyrir fyr-
irtækið okkar, sjá hvernig gengi að
fá fylgjendur. Við höfum mest verið
að nota samfélagsmiðla til að koma
okkur á framfæri en stefnum á að
fara enn lengra og skoða að aug-
lýsa okkur meira. Við tókum svo
að okkur þrjú brúðkaup í sumar,
reyndar allt brúðkaup í fjölskyld-
unni minni,“ segir Sóley og hlær.
„Það gekk mjög vel og við erum
núna búnar að vera að skipuleggja
hvernig veisluþjónustu við ætlum
að bjóða uppá,“ bætir hún við. „Það
sem við erum helst að gera núna er
að baka og selja vinsælar smákök-
ur eins og sörur, lakkrístoppa og
súkkulaðibitasmákökur fyrir jólin.
Við leggjum mikið upp úr gæðum
og að skila vörunni fallega frá okk-
ur. Við notum alltaf hágæða hráefni
og öskjurnar sem við notum und-
ir kökurnar eru hannaðar af okkur
og umhverfisvænar úr pappír og við
skreytum þær sjálfar,“ segir Árdís.
„Við viljum að þetta sé persónulegt
og fallegt,“ bætir Sóley við og Árdís
tekur undir það.
Makkarónurnar stjarna
fyrirtækisins
Spurðar hvernig veitingar þær
bjóða upp á hjá Moon veitingum
segja þær möguleikana í raun vera
endalausa. Þær hafa þó fram til
þessa mest verið með pinnamat og
kökur. „okkar markmið er að vinna
með kúnnanum og verða við þeim
óskum sem hann hefur. Hjá okkur
kaupir fólk ekki einhverja fyrirfram
mótaða pakka heldur kemur það
með óskir og við græjum það. Við
getum boðið upp á pinnamat, kök-
ur, mat og í rauninn bara hvað sem
er, „The sky is the limit“ og við vilj-
um fyrst og fremst að þjónustan sé
persónuleg,“ segir Sóley. „Makka-
rónurnar hjá okkur eru samt vin-
sælastar, þær eru eiginlega eins og
stjarna fyrirtækisins. Sóley er ótrú-
lega góð í að gera makkarónur og
hún kenndi sér þetta eiginlega bara
sjálf þegar hún vann á Hilton. Þær
eru alveg frábærar,“ segir Árdís.
„Við erum einmitt að bjóða upp á
að koma með svona makkarónut-
urna í veislur og þá einmitt sjáum
við alveg um það, gerum makka-
rónurnar og komum með turnana
og setjum þetta alveg upp. Það
skiptir bara máli fyrir okkur að gera
allt eins vel og við getum og veita
þjónustu alveg upp á tvöhundruð,“
segir Sóley að endingu.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að fá
Moon veitingar til að sjá um veisl-
una er hægt að hafa samband við
þær Sóleyju og Árdísi á netfangið
moonveitingar@gmail.com Þá get-
ur fólk einnig fundið þær á Facebo-
ok og Instagram.
arg/ Ljósm. úr einkasafni.
Ung Dalakona stofnaði veisluþjónustuna Moon veitingar
Rætt við kokkana Sóleyju Rós og Árdísi Evu
Sóley Rós til vinstri, Árdís Eva og lengst til hægri er Lilja Hrund Jóhannsdóttir vinkona þeirra, kokkur og eigandi Sker res-
taurant í Ólafsvík.
Sóley Rós einbeitt í eldhúsinu.
Makkarónurnar eru vinsælastar hjá Moon veitingum.
Verið að mynda veitingar fyrir sam-
félagsmiðla.
Hægt er að panta jólakökur frá Moon veitingum. Hér eru gómsætar sörur í boxi.
Lakkrístopparnir eru vinsælir. Súkkulaðibitakökurnar í boxi en
allar umbúðir eru umhverfisvænar úr
pappír.