Skessuhorn - 23.10.2019, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 2019 21
Styrking minnihlutaverndar í veiði-
félögum, aðkoma Hafrannsókna-
stofnunar að gerð arðskráa veiðiáa
og afnám milligöngu hins opinbera
um greiðslu kostnaðar af arðskrár-
mati eru áherslur í nýju frumvarpi
um breytingar á lögum um lax- og
silungsveiði, sem Kristján Þór Júlí-
usson, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra, hefur lagt fram á Al-
þingi. Í frumvarpinu er að finna til-
lögur að þremur meginbreytingum
á núgildandi lögum:
Í fyrsta lagi verður minnihluta-
vernd í veiðifélögum styrkt með
sérstökum reglum um atkvæðavægi
á fundum. Breytingin hefur það
í för með sér að enginn einn aðili
geti drottnað yfir málefnum veiði-
félaga. Með breytingunni verður
hámark atkvæða sem sami aðili eða
tengdir aðilar geta farið með á fé-
lagsfundi, í krafti eignarhalds, mest
30 prósent.
Þá verður breytt skipan arðskr-
árnefndar. Lagt er til að Hafrann-
sóknastofnun geri ábendingu um
fulltrúa í nefndina í stað þess að
óskað verði tilnefningu Hæstarétt-
ar. Þetta er gert til að auka fisk-
fræðilega þekkingu í nefndinni og
er í samræmi við ábendingar starfs-
hóps um gerð arðskráa í veiðivötn-
um frá árinu 2015. Veiðifélögum
er skylt að gera arðskrá, sem sýnir
hluta af veiði eða arð af veiði sem
koma skal í hlut fasteigna, lögaðila
eða einstaklinga sem eiga veiðirétt
í vatni á félagssvæði, en arðskrár-
nefndin sker úr um ágreining um
arðskrá með matsgerð. Loks er
metin óþörf milliganga hins opin-
bera um greiðslu kostnaðar af
arðskrármati. Með þessu er lagt til
að veiðifélög greiði arðskrárnefnd
beint fyrir vinnu sína í stað þess að
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið greiði fulltrúum í nefndinni
og endurkrefji síðan veiðifélög.
mm
Grundarfjarðarbær stendur fyrir
opnum fundum þessa dagana um
stefnumótun og framtíðarsýn bæj-
arfélagsins. Yfirskriftin er Grund-
arfjarðarbær 2030. Íbúum bæjarins
var boðið að taka þátt en mánudag-
inn 21. október var almennur fund-
ur og þriðjudaginn 22. október var
fundur með ungu fólki 18-30 ára
og svo síðar þann sama dag var op-
inn fundur um menningarmál. Öll-
um fundunum var stýrt af ráðgjafa-
fyrirtækinu Capacent en þau Arn-
ar Pálsson og Ingunn Guðmunds-
dóttir stýrðu fundunum. Með þessu
er verið að endurskoða fjölskyldu-
stefnu bæjarins, menningarmál,
skólamál, íþróttir, tómstundir og
fleira.
tfk
„Arion banki hefur opnað á aðgengi
að reiknings- og kortaupplýsingum
frá öðrum bönkum í Arion banka
appinu. Um er að ræða tímamót í
fjármálaþjónustu hér á landi. All-
ir sem eru með reikninga eða kort
hjá fleiri en einum banka og veita
heimild fyrir flutningi gagna, geta
fengið heildstæða yfirsýn yfir fjár-
mál og útgjöld heimilisins á ein-
um stað í Arion appinu. Þessi nýja
þjónusta er unnin í samstarfi við
Meniga,“ segir í tilkynningu frá
Arion banka.
„Þessi nýjung er ekki aðeins fyr-
ir viðskiptavini Arion banka heldur
er hún öllum opin. Það eina sem
þarf að gera er að sækja Arion app-
ið, skrá sig inn með rafrænum skil-
ríkjum og tengja þá reikninga og
kort sem hver og einn vill sjá. Ein-
staklingur, sem er t.d. með debet-
kort hjá Arion banka en kreditkort
hjá öðrum bönkum, getur þannig
séð stöðu og hreyfingar á öllum
sínum kortum í Arion appinu. Að
auki eru þessar upplýsingar teknar
saman og flokkaðar eftir útgjalda-
liðum heimilisins. Hver og einn
getur svo unnið með flokkunina,
endurflokkað tilteknar færslur og
lagað að eigin þörfum. Þannig fæst
einstök yfirsýn yfir tekjur og út-
gjöld heimilisins og þróun þeirra
yfir ákveðið tímaskeið. Með þess-
ari nýjung er tekið mikilvægt skref
í þágu neytenda. Um er að ræða
notendavæna og þægilega lausn
sem er í anda opinnar bankaþjón-
ustu og nýrrar tilskipunar Evrópu-
sambandsins um greiðsluþjónustu
(PSD2) sem verður innleidd hér á
landi á næstu misserum,“ segir í til-
kynningunni. mm
Krakkar í æskulýðsstarfi kirkjunnar
í Snæfellsbæ stóðu fyrir kærleiks-
maraþoni um síðustu helgi. Til-
gangurinn með því var að safna sér
fyrir landsmóti ÆSKÞ sem fram
fer hér í ólafsvík um næstu helgi.
Höfðu þau í lok september safn-
að áheitum og fóru svo um síðustu
helgi og gerðu ýmis kærleiksverk.
Skiptu krakkarnir sér í hópa og
voru meðal annars á þvottaplan-
inu hjá söluskála óK og á Hellu á
Hellissandi þar sem þau buðust til
þess að þvo bíla hjá þeim sem komu
við. Aðrir fóru í verslanirnar Kass-
ann í ólafsvík og Hraðbúð Hellis-
sands þar sem reynt var að hjálpa,
til dæmis með því að bera poka fyr-
ir viðskiptavina út í bíl. Enn önnur
fóru á hjúkrunar- og dvalarheimilið
Jaðar þar sem þau ræddu við íbúa
og jafnvel spiluðu. Að lokinni hug-
ljúfri kvöldguðsþjónustu í ólafs-
víkurkirkju á sunnudagskvöld-
inu buðu krakkarnir upp á kaffi-
hús, bingó, andlitsmálun og boccia
endurgjaldslaust eins og allt hitt
sem boðið var uppá og fengu allir
sem þau hittu í kærleiksverkunum
og maraþoninu hjarta að gjöf með
áletrun.
Fyrirtæki á svæðinu styrktu ung-
linganna með myndarlegum vinn-
ingum fyrir bingóið og var mikil
spenna og fjör þar, auk þess stóðu
þau fyrir kökubasar í kirkjum sókn-
anna 6. október síðastliðinn. Hafa
alls safnast yfir 280 þúsund krónur
vegna landsmótsins og enn hægt að
styrkja þau með því að leggja inn
á reikning 0194 - 05 - 401623, kt.
430111-0350. Vildi æskulýðsfé-
lagið fá að koma á framfæri þakk-
læti fyrir stuðninginn og velvildina
þetta kemur að góðum notum um
næstu helgi en þá verður landsmót
ÆSKÞ haldið í þriðja sinn í ólafs-
vík en það var áður haldið í ólafs-
vík árin 2003 og 2008. Mun því
fyllast bærinn af ungu fólki en um
250 manns verða á mótinu þar af 28
unglingar frá Snæfellsbæ.
þa
Ingunn Guðmundsdóttir ráðgjafi Capacent er hér að fara yfir málin með íbúum.
Stefnumótun hjá
Grundarfjarðarbæ
Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri setti fundinn og bauð fólk velkomið.
Hérna eru þau Olga Sædís Einarsdóttir, Lúðvík Liston Karlsson, Ólafur Guðmunds-
son og Þorsteinn Hjaltason á fullu í hugmyndavinnu.
Æskulýðsstarfið í Snæfellsbæ
í kærleiksverkefnum
Svipmynd frá bingóinu.
Lög sem eiga að styrkja
minnihlutavernd í veiðifélögum
Ungur veiðimaður í Gljúfurá í Borgarfirði. Ljósm. úr safni.
Yfirsýn yfir reiknings- og kortaupplýsingar frá öðrum bönkum