Skessuhorn - 23.10.2019, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 2019 23
„Íslenskt regluverk verður að vera
aðgengilegt og auðskiljanlegt,“
segja þau Kristján Þór Júlíus-
son, sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra og Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar-,
og nýsköpunarráðherra sem fyrr
í vikunni kynntu aðgerðaráætlun
um einföldun regluverks.
Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra
hefur fellt brott 1090 reglugerðir
á sviði sjávarútvegs og landbún-
aðar. Breytingarnar eru liður í
einföldun regluverks sem er for-
gangsverkefni í atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytinu. Verk-
efnið er unnið í samræmi við
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinn-
ar þar sem kveðið er á um að gert
verði átak í einföldun regluverks
í þágu atvinnulífs og almennings
og lögð áhersla á skilvirka og rétt-
láta stjórnsýslu. „Með því að fella
þessar reglugerðir brott er verið
að hreinsa til í regluverkinu á sviði
landbúnaðar og sjávarútvegs. Þar
með er öllum þeim sem þurfa að
fylgja því auðveldað að sjá í gegn-
um skóginn. Við munum á næst-
unni vinna að enn frekari einföld-
un regluverks. Það er eitt af for-
gangsmálum í ráðuneytinu,“ segir
Kristján Þór.
Einföldunin er meðal annars
gerð með því að uppfæra, sameina
og fella brott reglugerðir, þannig
að rúmlega 100 eldri reglugerð-
ir á sviði sjávarútvegs verða að
átta nýjum. Það gerir að verkum
að regluverk á sviði sjávarútvegs
verður aðgengilegra. Einnig er um
að ræða reglugerðahreinsun sem
fellir brott tímabundnar reglu-
gerðir sem hafa ekki lengur gildi.
Auk þess falla brott reglugerðir
sem meðal annars hafa verið settar
með stoð í lögum sem þegar hafa
verið felld úr gildi. Allt er þetta
liður í fyrsta áfanga aðgerðaáætl-
unar sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra til næstu þriggja ára
sem lítur að einföldun regluverks.
Áformaðar lagabreyt-
ingar í samráðsgátt
„Meginverkefni okkar á að vera
að horfa gagnrýnum augum á
þær reglur sem hafa verið sett-
ar og fækka þeim eins og mögu-
legt er. Slík einföldun regluverks
stuðlar að aukinni verðmæta-
sköpun, meiri skilvirkni, meiri
samkeppni, lægra verði og þar
með betri lífskjörum. Hér höf-
um við svo sannarlega verk að
vinna,“ segir Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar-
og nýsköpunarráðherra, en laga-
frumvarp hennar um breytingar
á ýmsum lögum til einföldund-
ar regluverks er nú í samráðsgátt
stjórnvalda. Frumvarpið er fyrsti
áfangi af þremur í aðgerðaráætl-
un ráðuneytisins um einföldun
regluverks á þessum málefna-
sviðum sem ráðgert er að standi
yfir fram á mitt ár 2021.
Með frumvarpinu eru lagðar til
breytingar sem fela í sér að skrán-
ingum verslana verði hætt, iðn-
aðarleyfi og leyfi til sölu notaðra
ökutækja verði lögð af, ráðherra
fái heimild til að framselja vald
til að veita undanþágur á grund-
velli laga um samvinnufélög, auk
annarra atriða sem horfa til ein-
földunar. Loks er lagt til í frum-
varpinu brottfall 16 úreltra laga
sem ekki hafa sérstakt gildi leng-
ur. mm
Á annað þúsund reglugerðir felldar úr gildi