Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2019, Qupperneq 30

Skessuhorn - 23.10.2019, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 23. oKTóBER 201930 MT: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Klukkan hvað vaknar þú venjulega? Spurni g vikunnar (Spurt á Akranesi) Sigurveig Kristjánsdóttir: „Klukkan hálf sjö.“ Viktoría Vala Hrafnsdóttir: „oftast klukkan sjö.“ Hrafn Björnsson: „Ég reyni að vakna við sólarupp- rás, sem er vissulega breytileg.“ Guðmundur Gunnar Guðríð- arson: „Ég er eldri borgari.“ Inga Rún Guðjónsdóttir: (Með henni á myndinni er Vikt- or Gauti Pétursson, 4 ára) „Klukkan 7.“ Í sepember voru tvö ár liðin frá því Crossfit stöðin Ægir var opnuð á Akranesi en það voru bræðurn- ir Gunnar Smári og Jóhann Örn Jónbjörnssynir og Sunnefa Burgess sem opnuðu stöðina. Viðtökurn- ar voru strax mjög góðar og enn er alltaf að bætast við iðkendahópinn. Um mánaðamótin næstu er eitt ár liðið frá því útibú stöðvarinnar var opnað í Brákarey í Borgarnesi en um var að ræða tilraun til eins árs. Að sögn Gunnars Smára voru við- tökurnar ekki jafn góðar í Borgar- nesi og á Akranesi og hefur allan tímann verið erfitt að ná inn föstum iðkendahópi. „Ég var með í huga ákveðinn fjölda iðkenda sem þyrfti til að reka stöðina með núlli og sú tala hefur bara aldrei náðst,“ segir Gunnar Smári sem hefur ákveðið að draga sig úr rekstri stöðvarinnar í byrjun nóvember. Vonar að stöðin haldist opin Ekki er öll von úti um Cross- fit stöð í Borgarnesi, segir Gunn- ar Smári, en hann hefur verið að leita að áhugasömum iðkendum til að halda aðstöðunni opinni. „Það þyrftu að koma sér saman nokkr- ir aðilar til að borga leiguna og þá væri hægt að halda opnu. En ég mun draga mig frá því að kosta til þjálfara og allt slíkt. Ég myndi þá halda Wodify opnu í Borgarnesi áfram svo þar væri hægt að taka sömu æfingu dagsins og á Skagan- um,“ segir Gunnar Smári, en Wo- dify er forrit þar sem æfingar dags- ins eru skráðar inn og iðkendur geta skráð niður sinn árangur og haldið utanum hann þar. Í Borgar- nesi búa sex Crossfit þjálfarar sem gætu tekið að sér að vera með æf- ingar sé áhugi fyrir hendi. „Ég hef verið að tala við þessa þjálfara um að halda utan um stöðina áfram og ég er sjálfur tilbúinn til að gefa ráð og leiðbeina. Það er ekkert útilokað að halda áfram með stöð í Borgar- nesi en ég gat bara ekki haldið því áfram, það bara borgar sig ekki fjár- hagslega. Þetta er erfiður rekstur, það er dýrt að reka svona stöð, vera með þjálfara og reyna að hafa verð- ið ekki of hátt fyrir iðkendur. Sér- staklega þegar maður er líka í sam- keppni við sveitarfélögin sem halda úti líkamsræktaraðstöðu á mun lægra verði, það er nánast ómögu- legt,“ segir Gunnar Smári. Rekst- urinn á Crossfit stöðinni í Borgar- nesi hefur einnig gengið illa vegna þess hversu lítið húsnæði stöðvar- innar er. Gunnar Smári ræddi það við eigendur hússins sem stungu upp á því að stækka húsnæðið og báru það undir sveitarstjórn í Borg- arbyggð, til að fá leyfi fyrri stækk- un. „Þar var málið tafið í allt sum- ar og enn þann dag í dag er leyfið ekki komið,“ segir Gunnar Smári og bætir því við að þetta ferli hefur bæði tekið mikla orku og peninga sem spilar einnig inn í þá ákvörðun hans að hætta með stöðina í Borg- arnesi. Crossfitáhuginn eykst á Akranesi Crossfit stöðin á Akranesi hefur frá upphafi haft góðan iðkenda- hóp sem fer vaxandi og eru í dag um 300 manns með áskrift á öllum aldri. Þar er boðið upp á æfingar fyrir eldri borgara sem hefur notið mikilla vinsælda auk þess sem í boði er að koma með börn á æfingar og í haust var farið af stað með nám- skeið fyrir unglinga og gengur það mjög vel. „Við vorum líka að byrja með jóga sem tilraunaverkefni en markmiðið er að hafa alltaf eitt- hvað í salnum svo fólk geti komið og æft þegar það hentar hverjum og einum. Það ætti alveg að ganga hér á Akranesi,“ segir Gunnar Smári. Í þessar viku er að byrja nýjung í stöðinni, svokallaðir „brunatímar“. „Þetta eru æfingar með miklum hita og svita án stanga, klukkutími á mikilli ákefð. Þetta gefur fólki möguleiki að fara í eitthvað að- eins annað en hefðbundið Crossfit inn á milli. Það getur verið gott að hvíla sig aðeins á lyftingum og bara keyra sig út inn á milli. Við ætl- um að byrja með að hafa þetta inn í töflunni allavega tvisvar í viku og sjá hvernig gengur.“ Eitthvað fyrir alla Þessar vikurnar er Crossfit open í gangi en þar keppist fólk um all- an heim í sömu æfingunum. Fimm föstudaga í röð kemur inn ný æfing á netið sem iðkendur hafa út mánu- dag til að klára og skrá inn sinn ár- angur. Þannig getur fólk borið sinn árangur saman við árangur fólks um allan heim. Í ár eru 84 iðkend- ur í Crossfit Ægi skráði til leiks og segir Gunnar Smári stemninguna í hópnum mjög góða. „Þetta er nærri þriðjungur iðkendahópins okkar, sem er frábært. Það er allt- af svo gott andrúmsloftið hjá okk- ur og stemningin yfir open er svo mikil. Þetta er svo samheldinn og góður hópur. Við í Ægi leggjum upp úr því að allir séu velkomn- ir og allir eiga að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi. Við bjóðum upp á persónulega þjálfun og erum með mjög góða þjálfara og ég held að iðkendur okkar finni um leið hvað það er létt og gott viðmót í stöð- inni. Það hefur verið góð eftirspurn eftir grunnnámskeiðum hjá okkur í haust, mikið meiri en í fyrra. Það er greinilegt að við eigum enn Skaga- menn sem langar að prófa,“ segir hann. Næsta grunnnámskeið verð- ur helgarnámskeið í nóvember og er það síðasta grunnnámskeið árs- ins. Vantar hentugt húsnæði fyrir sjúkraþjálfun Auk þess að reka Crossfit Ægi er Gunnar Smári sjúkraþjálfari að mennt og starfar sem slíkur í Garða- bæ. Spurður hvort hann langi ekki flytja starfsemi sjúkraþjálfunarinnar á Akranes svarar hann því játandi. „Núna þar sem ég er fluttur hing- að upp á Skaga langar mig að opna sjúkraþjálfun hér en vantar bara hentugt húsnæði. Ég er að svipast um eftir því og draumurinn væri að geta fundið húsnæði undir crossfit og sjúkraþjálfun saman. Það þarf ekkert að vera tengt samt, það bara væri mjög gaman fyrir mig,“ svarar hann og brosir. arg Crossfit ekki náð sér á flug í Borgarnesi Rætt við Gunnar Smára um Crossfit í Borgarnesi og á Akranesi Gunnar Smári Jónbjörnssön opnaði Crossfit stöðina Ægi ásamt Jóhanni Erni Jónbjörnssyni og Sunnefu Burgess á Akranesi fyrir tveimur árum.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.