Skessuhorn


Skessuhorn - 06.11.2019, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 06.11.2019, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 45. tbl. 22. árg. 6. nóvember 2019 - kr. 950 í lausasölu Þrír bankar í Arion appinu arionbanki.is Við opnum Arion appið og bjóðum Landsbankann og Íslandsbanka velkomna. Nú getur þú skoðað alla reikninga og kort í íslenskum bönkum í appinu. Opin og þægileg bankaþjónusta fyrir alla. Bæjarstjórn Snæfellsbæjar sam­ þykkti á síðasta fundi sínum sam­ hljóða að komið yrði á fót svokall­ aðri ungbarnastofu á leikskólanum Kríubóli á Hellissandi, sem er önn­ ur tveggja starfsstöðva Leikskóla Snæfellsbæjar. „Um er að ræða til­ raunaverkefni þar sem 12 til 18 mánaða börnum er boðin skóla­ vist. Verkefnið hófst strax 14. októ­ ber, mánudaginn eftir að bæjar­ stjórn afgreiddi málið á fundi sín­ um. Þá voru börn á biðlista tekinn inn á Kríuból,“ segir Lilja Ólafs­ dóttir bæjarritari og Kristinn Jón­ asson bæjarstjóri skýtur því að í samtali við blaðamann að með til­ komu ungbarnastofunnar séu nú þrír valkostir sem nýbökuð­ um foreldrum í Snæfellsbæ standa til boða. „Foreldrar 9 til 18 mán­ aða barna geta sótt um svokallað­ ar heimgreiðslur frá sveitarfélaginu eftir að fæðingarorlofi lýkur og þar til barn fær innritun á leikskóla. Síðan eru í boði niðurgreiðslur fyr­ ir þá sem vilja gerast dagforeldr­ ar og svo bætist þessi lausn, ung­ barnaleikskólinn, við sem valkost­ ur núna,“ segir Kristinn Jónasson bæjarstjóri. „Með þessu er ætlun­ in fyrst og fremst að reyna að koma til móts við foreldra ungra barna og þar með reyna að gera samfélagið okkar ennþá meira heillandi fyrir barnafólk,“ bætir hann við og Lilja tekur undir með honum. Sem fyrr segir er um tilrauna­ verkefni að ræða sem þegar er haf­ ið. Ætlunin er að sjá hvernig til tekst en Kristinn og Lilja segja ljóst að ungbarnastofa verði aðeins starf­ rækt á Hellissandi. „Við ætlum að sjá hvort við ráðum ekki örugglega við þetta verkefni, sem við teljum okkur auðvitað gera og hvað þarf síðan til að þróa verkefnið áfram. Þetta er nefnilega meira en að segja það. Börnin eru eins misjöfn og þau eru mörg og eins árs gamalt barn er ekkert það sama og eins árs gamalt barn,“ segja þau. „Við viljum geta haldið eins vel utan um þetta verk­ efni og mögulegt er og þess vegna ákváðum við að það verði aðeins starfrækt ungbarnastofa á annarri starfsstöð Leikskóla Snæfellsbæj­ ar,“ segja þau Kristinn og Lilja að endingu. Fer vel af stað Ingigerður Stefánsdóttir leikskóla­ stjóri segir að með ungbarnastofu sé reynt að koma til móts við þarfir foreldra sem þurfa að snúa aftur til vinnu þegar fæðingarorlofi lýkur, enda misjafnt hvað hentar hverri og einni fjölskyldu. Hún segir verk­ efnið hafa gengið mjög vel þess­ ar fyrstu þrjár vikur sem liðnar eru síðan því var ýtt úr vör. „Strax voru tekin inn tvö börn og hefur það gengið mjög vel. Þau eru mjög af­ slöppuð hjá okkur, fá ró og næði og ég er mjög bjartsýn á framhaldið,“ segir Ingigerður. „Á ungbarnastof­ unni aðlögum við okkur að þörfum barnanna. Þau borða til að mynda fyrr en önnur börn, fá hádegismat­ inn korter í 11, fara fyrr að sofa en hin börnin á leikskólanum því þau þurfa lengri svefn og fleira í þeim dúr,“ segir leikskólastjórinn. „Þeg­ ar börnin hafa síðan náð 18 mánaða aldri geta foreldrarnir valið hvort börnin fara inn á starfsstöðvarnar annað hvort í Ólafsvík eða á Hellis­ sandi,“ bætir hún við. Ingigerður segir að fyrst um sinn verði hægt að taka við sjö börnum á ungbarnastofuna, en þar starfa tveir starfsmenn. „Við förum rólega af stað, aðlögum okkur að þörfum hvers barns og sjáum hvernig geng­ ur. Ég er mjög bjartsýn og held að þetta verði voða skemmtilegt,“ seg­ ir Ingigerður að endingu. kgk Ungbarnastofa opnuð á Kríubóli sími 437-1600 Alltaf eitthvað að gerast í Landnámssetrinu Borgarnesi 10. nóvember kl. 16:00 Ólafur Schram, bókakynning 14. nóvember kl. 20:00 Þorsteinn frá Hamri 16. nóvember kl. 20:00 Natan Jónsson uppistand Sjá nánar á heimasíðu landnam.is og á Facebook Landnámsseturs Tilboð gilda út nóvember 2019 Gos úr vél frá CCEP fylgir meðBorgarnes: Akranes: Gosflaska frá CCEP fylgir með Cheeseburger meal 1.490 kr. Máltíð Fjölmargt var í gangi á Vesturlandi í vikunni sem leið eins og lesa má um í Skessuhorni. Menningarviðburðir af ýmsu tagi, hrekkjavaka, opið hús, heimsókn forseta Ís- lands á Snæfellsnes og árlegir basarar og tónleikar, svo fátt eitt sé nefnt. Þessi mynd var tekin í vöfflukaffi á Brákarhlíð í Borgarnesi þar sem íbúar héldu árlegan basar á föstudaginn. Notaleg stemning og ilmur af vöfflum sköpuðu ljúfa stemningu. Ljósm. Gunnhildur Lind Hansdóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.