Skessuhorn - 06.11.2019, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 201930
MT: Stefán Gísli með verðlauna
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hver er uppáhalds
drykkurinn þinn?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Georg Guðmundsson
Kristall með bláa tappanum.
Jóhanna Gestsdóttir og Tómas
Pálmi Freysson
Malt og appelsín.
Gylfi Karlsson
Vatn.
Jónasína Oddsdóttir
Íslenskt vatn.
Katrín Þóra Víðisdóttir Bernd-
sen
Vatn.
Knattspyrnumaðurinn Ívar Reynir
Antonsson hefur skrifað undir nýj
an samning við Víking Ó. út tíma
bilið 2021. Ívar er fæddur árið 2000
og er uppalinn hjá félaginu. Und
anfarin tvö ár hefur hann leikið 39
fyrir lið Ólafsvíkinga í deild og bik
ar. „Það er mikið gleðiefni að Ívar
hafi ákveðið að framlengja við okk
ur enda mikla vonir bundnar við
hann í framtíðinni,“ segir í tilkynn
ingu á Facebooksíðu Víkings Ó.
kgk
Knattspyrnufélag Kára á Akranesi
hefur samið við Jón Kristjánsson
um þjálfun liðsins í 2. deild karla í
knattspyrnu næsta sumar. Jón þjálf
aði lið elliða í 4. deild síðasta sum
ar og undir hans stjórn tryggði lið
ið sér sæti í 3. deildinni. Áður hefur
hann þjálfað meistaraflokka kvenna
hjá Val og Fylki, KF og Hamar í 2.
deild og einnig Skallagrím, Þrótt
Vogum, ÍH og Reyni Sandgerði.
kgk
Skallagrímskonur gerðu góða ferð
til Keflavíkur síðasta miðvikudag,
þegar þær sigruðu lið Keflvíkinga,
7075, í Domino‘s deild kvenna í
körfuknattleik. Skallagrímskon
ur höfðu yfirhöndina lungann úr
leiknum, en Keflvíkingar voru ná
lægt því að vinna upp afgerandi for
skot í lokafjórðungnum. Leikurinn
var því æsispennandi undir lokin,
en fór svo að lokum að Borgnes
ingar höfðu betur.
Jafnt var á með liðunum í upp
hafi leiks. Skallagrímskonur náðu
yfirhöndinni seint í fyrsta leikhluta
og með 90 kafli síðustu mínúturn
ar skilaði þeim ellefu stiga forystu
eftir upphafsfjórðunginn, 1021.
Keflvíkingar virtust aðeins vera að
vakna til lífsins í öðrum leikhluta,
en Skallagrímskonur létu það ekki
á sig fá og héldu í kringum tíu stiga
forskoti nær allan leikhlutann. Allt
þar til undir lok fyrri hálfleiks, að
þær tóku smá rispu og fóru 15 stig
um yfir inn í hálfleikinn.
Skallagrímskonur komu mjög
ákveðnar til síðari hálfleiks, bættu
við forskot sitt og leiddu mest með
24 stigum um miðjan þriðja leik
hluta, í stöðunni 3459. Þá svör
uðu Keflvíkingar aðeins fyrir sig og
náðu að laga stöðuna í 4663 fyrir
lokafjórðunginn. Þar voru heima
konur sterkari og litlu mátti muna
að þær næðu að vinna upp 17 stiga
forskot Borgnesinga. Keflvíkingar
spiluðu þétta vörn og héldu Skalla
grímskonum stigalausum fyrstu
þrjár mínúturn leikhlutans. Hægt
en örugglega komu þær sér nánast
alveg upp að hlið Skallagríms og
áðu að minnka muninn í tvö stig
þegar ein og hálf mínúta lifði leiks.
en Skallagrímskonur stóðu sína
plikt það sem eftir lifði og sigruðu
að lokum með fimm stigum, 7075.
Keira Robinson var atkvæðamest
í liði Skallagríms með 29 stig, níu
fráköst, fimm stoðsendingar og þrjá
stolna bolta. emilie Hesseldal skor
aði 19 stig, tók tólf fráköst og gaf
fimm stoðsendingar og Sigrúm Sjöfn
Ámundadóttir var með ellefu stig og
tíu fráköst. Árnína Lena Rúnarsdótt
ir skoraði átta stig, Maja Michalska
var með sex og Gunnhildur Lind
Hansdóttir skoraði tvö stig.
Daniela Morillo var atkvæða
mest í liði Keflavíkur með 25 stig
og tíu fráköst, Anna Ingunn Svans
dóttir skoraði 15 stig og emilía Ósk
Gunnarsdóttir var með tólf.
Skallagrímskonur lyftu sér með
sigrinum upp í fjórða sæti deildar
innar. Þær hafa sex stig eftir fimm
leiki, stigi meira en Keflavík en
tveimur stigum á eftir næstu lið
um fyrir ofan. næsti leikur liðsins
er gegn Breiðabliki í Borgarnesi í
kvöld, miðvikudaginn 6. nóvem
ber.
kgk/ Ljósm. úr safni/
Skallagrímur.
Dregið var í 16liða úrslit karla og
kvenna í Geysisbikarnum í gær.
Kvennalið Snæfells fær Íslands
og bikarmeistara heim í Stykkis
hólm en Skallagrímskonur sitja hjá
í fyrstu umferð. Alls voru tólf lið í
hattinum en einungis átta lið dreg
in upp. njarðvík fær nágranna sína
í Keflavík í heimsókn, Haukar fara
norður og spila gegn Tindastóli og
loks munu KRingar keppa gegn
Fjölni í þessari umferð. Breiðablik,
ÍR og Grindavík sitja hjá ásamt
Skallagrími. Leikið verður dagana
5.7. desember næstkomandi. glh
Keppni hófst í 2. deild kvenna í
körfuknattleik um síðustu helgi.
Metþátttaka er í deildinni þenn
an veturinn, en alls eru skráð til
keppni 13 lið frá 11 íþróttafélög
um svo að skipta þurfti deild
inni upp í tvo riðla. Þeirra á með
al eru Skallagrímur B og Snæfell
B. Fyrsta umferðin var leikin um
helgina í Hafnarfirði annars vegar
og á Hvammstanga hins vegar.
Snæfellskonur léku norður á
Hvammstanga þar sem þær byrj
uðu á að vinna stórsigur á Hetti,
4413. Þær máttu síðan sætta sig
við tap gegn Stjörnunni B1 í öðr
um leik dagsins, 33:50. Snæfell
hefur því tvö stig og situr í þriðja
sæti riðils 1.
Skallagrímskonur gerðu sér lít
ið fyrir og sigruðu báða leiki sína
í Hafnarfirðinum þessa helgina.
Þær lögðu Hauka B með 24 stigum
gegn 22 og sigruðu síðan Sindra
örugglega, 4826. Liðið hefur því
fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina
og situr á toppi riðils 2.
kgk
Jón Kristjánsson, nýr þjálfari Kára
og Sveinbjörn Geir Hlöðversson,
formaður félagsins, handsala
samninginn.
Ljósm. Knattspyrnufélag Kára.
Kári semur
við þjálfara
Ívar áfram
hjá Víkingi
Jóhann Pétursson, formaður meistara-
flokks Víkings Ó. og Ívar Reynir
Antonsson. Ljósm. Víkingur Ó.
Sigur eftir spennandi lokamínútur
Hart tekist á í leik Skalla-
gríms B og Sindra um liðna
helgi.
Ljósm. Skallagrímur.
Vesturlandslið fara vel af stað
Skallagrímsstúlkur sitja hjá í 16-liða úrslitum Geysisbikarsins. Ljósm. Skallagrímur.
Snæfell fær Val
í Geysisbikarnum