Skessuhorn


Skessuhorn - 06.11.2019, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 06.11.2019, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 13. nóvember næstkomandi fylgir með Skessuhorni sérblað tileinkað Matarauð Vesturlands - vestlenskri matarmenningu. Það er Markaðsstofa Vestur-lands sem gefur blaðið út í samráði við Sóknaráætlun Vesturlands og Skessuhorn. Þar verður verkefnið Veisla á Vesturlandi kynnt, matarþema sem stendur yfir allan nóvember- mánuð en með sérstaka áherslu á tímabilið 13.-23. nóvember. Þétt dagskrá verður í gangi þar sem fjölbreyttir matartengdir viðburðir verða á dagskrá hjá veitingaaðilum og fleirum víðsvegar um landshlutann; tilboð, veislur og skemmtun þar sem vestlenskur matur verður í öndvegi. Hápunktur Veislu á Vesturlandi verður svo matarhátíð sem verður á Hvanneyri laugardaginn 23. nóvember kl. 12:00 – 16:00. Þar verður mat og matarhandverki gert hátt undir höfði, m.a. haldinn matarmarkaður og úrslit kynnt í Aski 2019 kynnt (sjá: www.matarhatid.is). Skessuhorni verður, auk hefðbundinnar dreifingar, dreift inn á öll heimili á Vesturlandi í næstu viku í um sex þúsund eintökum. Þeir sem vilja koma sér á framfæri í gegnum auglýsingar í blaðinu er bent á að hafa samband sem fyrst og panta pláss - í síðasta lagi föstudaginn 8. nóvember nk. með að senda tölvupóst á: auglysingar@skessuhorn.is eða hringja í síma 433-5500. Ljósm. Gunnhildur Lind Hansdóttir. Matarblað og Skessuhorn í fjöldreifingu í næstu viku SK ES SU H O R N 2 01 9

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.