Skessuhorn - 06.11.2019, Page 5
Miðvikudaginn 13. nóvember næstkomandi fylgir með Skessuhorni sérblað tileinkað Matarauð Vesturlands - vestlenskri matarmenningu. Það er Markaðsstofa Vestur-lands sem gefur blaðið út í samráði við Sóknaráætlun Vesturlands og Skessuhorn.
Þar verður verkefnið Veisla á Vesturlandi kynnt, matarþema sem stendur yfir allan nóvember-
mánuð en með sérstaka áherslu á tímabilið 13.-23. nóvember. Þétt dagskrá verður í gangi þar
sem fjölbreyttir matartengdir viðburðir verða á dagskrá hjá veitingaaðilum og fleirum víðsvegar
um landshlutann; tilboð, veislur og skemmtun þar sem vestlenskur matur verður í öndvegi.
Hápunktur Veislu á Vesturlandi verður svo matarhátíð sem verður á
Hvanneyri laugardaginn 23. nóvember kl. 12:00 – 16:00.
Þar verður mat og matarhandverki gert hátt undir höfði,
m.a. haldinn matarmarkaður og úrslit kynnt í Aski 2019
kynnt (sjá: www.matarhatid.is).
Skessuhorni verður, auk hefðbundinnar dreifingar,
dreift inn á öll heimili á Vesturlandi í næstu viku í
um sex þúsund eintökum. Þeir sem vilja koma sér á
framfæri í gegnum auglýsingar í blaðinu er bent á
að hafa samband sem fyrst og panta pláss - í síðasta
lagi föstudaginn 8. nóvember nk.
með að senda tölvupóst á:
auglysingar@skessuhorn.is eða hringja í
síma 433-5500.
Ljósm. Gunnhildur Lind Hansdóttir.
Matarblað og Skessuhorn
í fjöldreifingu
í næstu viku
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9