Skessuhorn - 06.11.2019, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 2019 11
Nú er veturinn genginn í garð og því mikilvægt að huga
að öryggisbúnaði við útiveru. Í Líflandi færðu mikið úrval
af öryggisfatnaði og vörum bæði fyrir menn og dýr.
Til þess að styðja við notkun öryggisbúnaðar ætlum
við að vera með Öryggisdaga í verslunum okkar og bjóða
allt að 20% afslátt af öryggisvörum dagana
7. – 16. nóvember.
Þitt öryggi skiptir okkur máli
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2019
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.,
Vesturbraut 20
Fimmtudagur 14. nóvember
Föstudagur 15. nóvember
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090 SKE
SS
U
H
O
R
N
2
01
9
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
ÚTBOÐ – Sala ljósleiðarakerfis
Sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit áformar að selja ljósleiðarakerfi sem sveitarfélagið á
og rekur og nær til um 240 notenda í Hvalfjarðarsveit.
Um er að ræða ljósleiðarastrengi í jörðu, tilheyrandi búnað í dreifistöðvum, tengiskápa,
jarðvegsbrunna o.fl., sem nánar er lýst í útboðsgögnum vegna sölunnar.
Sveitarfélagið óskar eftir verðtilboðum frá áhugasömum aðilum, í samræmi við
Útboðsgögn 2019-SL1, „Sala ljósleiðarakerfis“. Væntanlegir bjóðendur geta óskað eftir
að fá útboðsgögnin afhent sér að kostnaðarlausu frá og með 4. nóvember nk. með því
að senda tölvupóst til Guðmundar Gunnarssonar á netfangið gg@raftel.is og óska þess
að fá gögnin send.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, Hvalfjarðarsveit fyrir
kl. 11:00, mánudaginn 18. nóvember nk. og verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra
bjóðenda sem þar mæta.
F.h. Hvalfjarðarsveitar,
Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri
Ásmundur einar Daðason félags
málaráðherra talaði í síðustu viku
fyrir frumvarpi á Alþingi um breyt
ingu á lögum um almennar íbúð
ir. Þar eru lagðar til breytingar sem
sníða af agnúa sem í ljós komu eft
ir gildistöku nýrra laga um almenn
ar íbúðir frá 15. júní 2016. Breyt
ingunni nú er ætlað að ná betur því
markmiði að bæta húsnæðisöryggi
og lækka húsnæðiskostnað tekju
og eignalágra leigjenda. Í frumvarp
inu er lögð til hækkun á tekju og
eignamörkum leigjenda almennra
íbúða þannig að hærra hlutfall
landsmanna eigi kost á almennum
íbúðum. Þá er lagt til að unnt verði
að veita sérstakt byggðaframlag til
byggingar eða kaupa á leiguíbúð
um á svæðum þar sem verulegur
skortur er á leiguhúsnæði og mis
vægi er á milli byggingarkostnaðar
og markaðsverðs íbúðarhúsnæðis.
Lagt er til grundvallar að sérstakt
byggðaframlag standi einungis
til boða sveitarfélögum, félögum,
þar með talið húsnæðissjálfseign
arstofnunum, og félagasamtökum
sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni
og hafa það sem langtímamarkmið
að eiga og hafa umsjón með rekstri
leiguíbúða.
Þá eru í frumvarpinu einnig lagð
ar til ýmsar breytingar til að lækka
fjármagnskostnað stofnframlags
hafa. Lagt er til að við mat umsókna
um stofnframlög hjá Íbúðalánasjóði
verði veitt heimild til að líta til al
menningssamgangna á viðkomandi
svæði í því skyni að umsóknum um
stofnframlög sem varða verkefni
þar sem góðar almenningssam
göngur eru fyrir hendi verði veittur
forgangur við afgreiðslu. einnig er
lagt til að lögfest verði tímabundin
forgangsregla þess efnis að Íbúðal
ánasjóður skuli við afgreiðslu um
sókna miða við að að minnsta kosti
tveir þriðju hlutar þess fjármagns
sem til úthlutunar er hverju sinni
renni til íbúða sem ætlaðar eru
tekju og eignalágum leigjendum á
vinnumarkaði.
mm
Mæðrastyrksnefnd Akraness stefn
ir á að árleg jólaúthlutun fari fram
föstudaginn 13. desember næstkom
andi. nú vinna konur í nefndinni
að söfnun styrkja og leitar aðstoð
ar frá fyrirtækjum, félagasamtökum
og einstaklingum til að gera úthlut
unina mögulega. „Við stefnum á að
styrkir að þessu sinni verði að mestu
leyti í formi gjafakorta í matvöru
verslunum,“ segir María Ólafsdótt
ir , formaður nefndarinnar, í sam
tali við Skessuhorn. Þegar nær dreg
ur úthlutun verður nánar sagt frá
hvernig umsóknum um styrki verð
ur háttað.
Þeir sem vilja styðja við bakið á
Mæðrastyrksnefnd Akraness er bent
á að reikningur er: 055214402048
og kt. 4112760829. mm/ Ljósm. jho.
Mæðrastyrksnefnd stefnir
á úthlutun fyrir jólin
Lagðar til
breytingar á almenna
íbúðakerfinu
Hús í reisingu á Akranesi í sumar.