Skessuhorn - 06.11.2019, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 45. tbl. 22. árg. 6. nóvember 2019 - kr. 950 í lausasölu
Þrír bankar
í Arion appinu
arionbanki.is
Við opnum Arion appið og bjóðum Landsbankann og Íslandsbanka velkomna.
Nú getur þú skoðað alla reikninga og kort í íslenskum bönkum í appinu.
Opin og þægileg bankaþjónusta fyrir alla.
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar sam
þykkti á síðasta fundi sínum sam
hljóða að komið yrði á fót svokall
aðri ungbarnastofu á leikskólanum
Kríubóli á Hellissandi, sem er önn
ur tveggja starfsstöðva Leikskóla
Snæfellsbæjar. „Um er að ræða til
raunaverkefni þar sem 12 til 18
mánaða börnum er boðin skóla
vist. Verkefnið hófst strax 14. októ
ber, mánudaginn eftir að bæjar
stjórn afgreiddi málið á fundi sín
um. Þá voru börn á biðlista tekinn
inn á Kríuból,“ segir Lilja Ólafs
dóttir bæjarritari og Kristinn Jón
asson bæjarstjóri skýtur því að í
samtali við blaðamann að með til
komu ungbarnastofunnar séu
nú þrír valkostir sem nýbökuð
um foreldrum í Snæfellsbæ standa
til boða. „Foreldrar 9 til 18 mán
aða barna geta sótt um svokallað
ar heimgreiðslur frá sveitarfélaginu
eftir að fæðingarorlofi lýkur og þar
til barn fær innritun á leikskóla.
Síðan eru í boði niðurgreiðslur fyr
ir þá sem vilja gerast dagforeldr
ar og svo bætist þessi lausn, ung
barnaleikskólinn, við sem valkost
ur núna,“ segir Kristinn Jónasson
bæjarstjóri. „Með þessu er ætlun
in fyrst og fremst að reyna að koma
til móts við foreldra ungra barna og
þar með reyna að gera samfélagið
okkar ennþá meira heillandi fyrir
barnafólk,“ bætir hann við og Lilja
tekur undir með honum.
Sem fyrr segir er um tilrauna
verkefni að ræða sem þegar er haf
ið. Ætlunin er að sjá hvernig til
tekst en Kristinn og Lilja segja ljóst
að ungbarnastofa verði aðeins starf
rækt á Hellissandi. „Við ætlum að
sjá hvort við ráðum ekki örugglega
við þetta verkefni, sem við teljum
okkur auðvitað gera og hvað þarf
síðan til að þróa verkefnið áfram.
Þetta er nefnilega meira en að segja
það. Börnin eru eins misjöfn og þau
eru mörg og eins árs gamalt barn er
ekkert það sama og eins árs gamalt
barn,“ segja þau. „Við viljum geta
haldið eins vel utan um þetta verk
efni og mögulegt er og þess vegna
ákváðum við að það verði aðeins
starfrækt ungbarnastofa á annarri
starfsstöð Leikskóla Snæfellsbæj
ar,“ segja þau Kristinn og Lilja að
endingu.
Fer vel af stað
Ingigerður Stefánsdóttir leikskóla
stjóri segir að með ungbarnastofu
sé reynt að koma til móts við þarfir
foreldra sem þurfa að snúa aftur til
vinnu þegar fæðingarorlofi lýkur,
enda misjafnt hvað hentar hverri
og einni fjölskyldu. Hún segir verk
efnið hafa gengið mjög vel þess
ar fyrstu þrjár vikur sem liðnar eru
síðan því var ýtt úr vör. „Strax voru
tekin inn tvö börn og hefur það
gengið mjög vel. Þau eru mjög af
slöppuð hjá okkur, fá ró og næði og
ég er mjög bjartsýn á framhaldið,“
segir Ingigerður. „Á ungbarnastof
unni aðlögum við okkur að þörfum
barnanna. Þau borða til að mynda
fyrr en önnur börn, fá hádegismat
inn korter í 11, fara fyrr að sofa en
hin börnin á leikskólanum því þau
þurfa lengri svefn og fleira í þeim
dúr,“ segir leikskólastjórinn. „Þeg
ar börnin hafa síðan náð 18 mánaða
aldri geta foreldrarnir valið hvort
börnin fara inn á starfsstöðvarnar
annað hvort í Ólafsvík eða á Hellis
sandi,“ bætir hún við.
Ingigerður segir að fyrst um sinn
verði hægt að taka við sjö börnum á
ungbarnastofuna, en þar starfa tveir
starfsmenn. „Við förum rólega af
stað, aðlögum okkur að þörfum
hvers barns og sjáum hvernig geng
ur. Ég er mjög bjartsýn og held að
þetta verði voða skemmtilegt,“ seg
ir Ingigerður að endingu.
kgk
Ungbarnastofa opnuð á Kríubóli
sími 437-1600
Alltaf eitthvað að gerast
í Landnámssetrinu
Borgarnesi
10. nóvember kl. 16:00
Ólafur Schram, bókakynning
14. nóvember kl. 20:00
Þorsteinn frá Hamri
16. nóvember kl. 20:00
Natan Jónsson uppistand
Sjá nánar á heimasíðu landnam.is
og á Facebook Landnámsseturs
Tilboð gilda út nóvember 2019
Gos úr vél frá CCEP fylgir meðBorgarnes:
Akranes: Gosflaska frá CCEP fylgir með
Cheeseburger
meal
1.490 kr.
Máltíð
Fjölmargt var í gangi á Vesturlandi í vikunni sem leið eins og lesa má um í Skessuhorni. Menningarviðburðir af ýmsu tagi, hrekkjavaka, opið hús, heimsókn forseta Ís-
lands á Snæfellsnes og árlegir basarar og tónleikar, svo fátt eitt sé nefnt. Þessi mynd var tekin í vöfflukaffi á Brákarhlíð í Borgarnesi þar sem íbúar héldu árlegan basar á
föstudaginn. Notaleg stemning og ilmur af vöfflum sköpuðu ljúfa stemningu. Ljósm. Gunnhildur Lind Hansdóttir.