Skessuhorn - 06.11.2019, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 20192
Nú þegar sólin lætur ekki sjá sig
fyrr en þegar liðið er á morgun-
inn er vert að minna foreldra á að
passa upp á endurskinsmerki fyr-
ir börnin þegar þau eru á ferðinni
í morgunsárið. Einnig er vert að
minna ökumenn á að gæta vel að
börnum sem eru á ferð í myrkrinu.
Á morgun er útlit fyrir hæga suð-
læga eða breytilega átt og bjart
veður á Norður- og Austurlandi.
Dálítil slydda eða snjókoma um
tíma vestanlands og frost 0-10 stig,
en frostlaust við suður- og vestur-
ströndina að deginum. Á föstudag
er spáð hvassri suðaustanátt með
rigningu eða slyddu sunnanlands
og hiti verður á bilinu 0-5 stig.
Hægari vindur norðanlands, þurrt
og vægt frost. Á laugardag er spáð
austan- og suðaustanátt 10-18 m/s
og hvassast suðastanlands. Rign-
ing eða slydda, en þurrt norðan-
lands. Hiti 0-5 stig en vægt frost í
innsveitum fyrir norðan. Á sunnu-
dag er útlit fyrir suðaustanátt og
léttskýjað fyrir norðan en lítilshátt-
ar skúrir eða él við suður- og suð-
austurströndina. Hiti breytist lítið. Á
mánudag er spáð suðaustanátt og
rigningu eða slyddu á Suðurlandi
en þurrt norðanlands.
Í síðustu viku reyndum við að
varpa ljósi á hvar góði staðurinn er
sem við setjum mikilvæga hluti á,
en finnum svo ekki aftur. Ekki gekk
það eftir því 100% svarenda á vef
Skessuhorns bara mundu það ekki.
Reyndar vorum við með fíflaskap
og gáfum ekki aðra svarmöguleika.
Teljum líklegt að slíkir „góðir staðir“
finnist/gleymist á öllum heimilum.
Í næstu viku er spurt:
Þekkir þú áttirnar hvar sem
þú ert?
Undanfarið hefur björgunarsveita-
fólk staðið vaktina í sölu á neyðar-
konunni. Er þetta mikilvægur hluti
í fjáröflun björgunarsveitanna og
er þetta duglega fólk Vestlending-
ar vikunnar að þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Tilboði í
Laugar rift
DALABYGGÐ: Kauptil
boði í Laugar í Sælingsdal
hefur verið rift af bjóðend
um þar sem ekki náðist að
fjármagna kaupin. Það voru
félögin Rentleigumiðlun og
Celtic north ehf. sem áttu
tilboðið, en það hljóðaði upp
á 320 milljónir króna. RÚV
greindi frá. eignirnar á
Laugum eru áfram í sölu, en
ef ekki fæst tilboð mun sveit
arstjórn endurskoða stöð
una um áramótin. Þá verð
ur ákveðið hvort eignirnar
verða auglýstar til leigu eða
látnar bíða með tilliti til þess
hvernig rekstri í húsnæðinu
verður háttað næsta sumar,
að því er haft er eftir Krist
jáni Sturlusyni sveitarstjóra í
frétt RÚV. -kgk
Frumsýningu
frestað
AKRANES: Sýningum
á Litlu Hryllingsbúðinni,
í uppsetningu Skagaleik
flokksins, seinkar um eina
viku. Frumsýning verður
því föstudaginn 14. nóvem
ber. Áður auglýstar sýning
ar færast um eina viku. Seld
ir og pantaðir miðar hafa
verið færðir til í takt við þá
breytingu, nema að mið
ar á sýninguna fimmtudag
inn 14. nóvember hafa ver
ið færðir á sýningu föstudag
inn 22. nóvember kl. 20:30,
að því er fram kemur í til
kynningu sem midi.is hefur
sent á miðahafa. Þeim sem
þurfa að breyta miðum eða
eftir atvikum fá endurgreitt í
kjölfar breytinganna er bent
á að hafa samband við midi.
is, hafi þeir keypt miða þar.
Aðrir hafi samband á stjor
nin19@gmail.com. „Skaga
leikflokkurinn biður þá sem
verða fyrir óþægindum af
þessum sökun afsökunar og
vonast til að sjá sem flesta
káta og hressa á glæsilegri
sýningu í Bíóhöllinni á Akra
nesi,“ segir í tilkynningunni.
-kgk
Samtök sveitar-
félaga 50 ára
VESTURLAND: Samtök
sveitarfélaga á Vesturlandi
eru fimmtíu ára á þessu ári.
Af því tilefni verður boðað
til ráðstefnu föstudaginn 15.
nóvember nk. í Hjálmakletti
í Borgarnesi. Í upphafi ráð
stefnunnar sem hefst klukk
an 13 mun Sævar Kristins
son frá KPMG kynna niður
stöður úr sviðsmyndagrein
ingu um mögulega þróun
atvinnulífs og samfélags á
Vesturlandi. Í kjölfarið munu
nokkrir ungir Vestlendingar
kynna sína sýn á framtíðina
og dagskrá ráðstefnu mun
ljúka með pallborðsumræð
um. Að ráðstefnunni lokinni
munu samtökin standa fyr
ir afmælisfagnaði í Hjálma
kletti.
-mm
Umhverfisstofnun hefur kynnt
áform um friðlýsingu votlendis og
óshólma Fitjaár í Skorradal sem
friðland. Áformin eru kynnt í sam
starfi við landeigendur og Skorra
dalshrepp. „Víðlent votlendi er við
Fitjaá og er það að stærstum hluta
á náttúruminjaskrá. Tillagan nær
jafnframt yfir árósa Fitjaár þar sem
er að finna fjölbreytt fuglalíf. Star
ungsmýravist er ríkjandi á svæðinu
en hún er á lista Bernarsamningsins
yfir vistgerðir sem þarfnast verndar.
einnig eru fjölbreytt mýrargróður
samfélög og vatnaplöntur á svæð
inu auk þess sem jarðvegur votlend
isins hefur hátt kolefnisinnihald og
mikla vatnsgeymd. Svæðið telst því
hafa hátt verndargildi,“ segir í til
kynningu frá stofnuninni. Áform um
friðlýsingu eru kynnt í samræmi við
málsmeðferð náttúruverndarlaga en
gert er ráð fyrir að svæði sem ekki
eru á framkvæmdaáætlun náttúru
minjaskrár séu kynnt sérstaklega.
mm/ Ljósm. Kristbjörn Egilsson.
Þessa dagana er verið að undirbúa
flutninga Vínbúðarinnar á Akra
nesi, frá Þjóðbraut 13 að Kalmans
völlum 1. Að sögn Sveins Vík
ings Árnasonar, framkvæmdastjóra
rekstrarsviðs, er stefnt að því að
opna á nýjum stað fimmtudaginn
14. nóvember næstkomandi, sama
dag og sala jólabjórs hefst í versl
unum Vínbúðanna.
Aðspurður segir Sveinn að af
greiðsla muni ekki falla niður neina
daga vegna flutninganna. eftir lok
un að kvöldi 13. nóvember verði
síðustu handtökin við flutningana
unnin og síðan opnað á nýjum stað
morguninn eftir, fimmtudaginn 14.
nóvember sem fyrr segir.
Með flutningunum meira en tvö
faldast húsnæði Vínbúðarinnar á
Akranesi að stærð, fer úr tæpum
200 fermetrum í 440 fermetra. kgk
Ákvörðun hefur verið tekin um að
leggja af rekstur Upplýsingamið
stöðvar Vesturlands í Hyrnutorgi í
Borgarnesi. Var samningi um leigu
húsnæðis sagt upp fyrir lok septem
ber síðastliðins en leigusamningur
við Borgarland ehf., eiganda hús
næðisins, er með árs uppsagnar
fresti. Að sögn Páls S. Brynjarsson
ar, framkvæmdastjóra SSV, er með
þessari ákvörðun verið að fylgja eft
ir stefnu Ferðamálastofu sem hætt
er að styðja við rekstur landshluta
miðstöðva fyrir ferðamenn. Rík
ið styrkti þannig rekstur Upplýs
ingamiðstöðvar Vesturlands um 2,6
milljónir króna á þessu ári og aðra
landshluta eða sveitarfélög um sam
bærilega upphæð. Stefna Ferða
málastofu er nú sú að sá stuðning
ur sem hið opinbera hefur fram til
þessa lagt til upplýsingamiðstöðva
fari í stafræna upplýsingagjöf. Því
er samhliða þessari ákvörðun hætt
stuðningi við prentun bæklinga og
kynningarefnis, annars en efnis sem
miðlað er stafrænt. Síðasti árgang
ur af Ferðablaði Vesturlands Tra
vel West Iceland, sem komið hef
Upplýsingamiðstöðinni verður
lokað á næsta ári
ur út hjá Skessuhorni nær óslitið í
tuttugu ár, hefur því litið dagsins
ljós.
Markaðsstofan mun halda áfram
annarri starfsemi en beinni leið
sögn og upplýsingagjöf við ferða
menn og þátttöku í útgáfu kynn
ingarefnis á prenti. Stefna Ferða
málstofu er að komið verði á fót
áfangastaðastofum í öllum lands
hlutum, sem taki að sér skilgreind
verkefni, sem þó á eftir að útfæra
nánar, að sögn Páls.
mm
Þær starfa nú á upplýsingmiðstöðinni
í Borgarnesi og hjá Markaðsstofu
Vesturlands. F.v. Sonja Hille, Thelma
Harðardóttir og Björk Júlíana Jóels-
dóttir.
Upplýsingamiðstöð ferðamála í Hyrnutorgi í Borgarnesi verður lokað á næsta ári.
Vín í hillum Vínbúðarinnar á Akranesi.
Ljósm. úr safni/ kgk.
Fá jólabjórinn á nýjum stað
Áforma friðlýsingu votlendis við Fitjaá