Skessuhorn - 06.11.2019, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 20196
Landsmönnum
boðin dróna-
kona
LANDIÐ: Fyrir og um síð
ustu helgi fór fram um land
allt sala björgunarsveita
Slysavarnafélagsins Lands
bjargar á neyðarkallinum.
Að þessu sinni var neyðar
kallinn björgunarsveitar
kona með dróna, en þau tæki
hafa björgunarsveitir í vax
andi mæli tekið í sína notkun
við leit að týndu fólki. Björg
unarsveitarfólk stóð vakt
ina á fjölförnum stöðum og
bauð neyðarkallinn til sölu.
Hagnaður af sölunni rennur
óskiptur til reksturs björgun
arsveitanna og er m.a. notað
ur til að endurnýja búnað og
til þjálfunar björgunarsveit
arfólks. -mm
Skipaður þjóð-
leikhússtjóri
RVK: Lilja Alfreðsdótt
ir mennta og menningar
málaráðherra hefur skipað
Magnús Geir Þórðarson út
varpsstjóra í embætti þjóð
leikhússtjóra frá 1. janúar nk.
Skipunin gildir í fimm ár. Sjö
umsóknir bárust um embætt
ið. Starf útvarpsstjóra verður
auglýst laust til umsóknar.
-mm
Umsagnir um
plastfrumvarp
LANDIÐ: Umhverfis og
auðlindaráðuneytið óskar
eftir umsögnum um áform
um frumvarp til laga um
breytingu á lögum um holl
ustuhætti og mengunar
varnir. Frumvarpinu hefur
nú verið streymt á samráðs
gátt stjórnvalda þar sem fólki
gefst kostur á að koma með
athugasemdir til 11. nóvem
ber nk. „Markmið frum
varpsins verður að draga úr
áhrifum plasts á umhverf
ið og heilsu fólks. Jafnframt
að hreinsa plast úr umhverf
inu, vekja neytendur til um
hugsunar um neyslu og um
hverfisáhrif plasts, draga úr
notkun einnota plastvara
og styðja við notkun fjöl
nota vara,“ segir í kynn
ingu. Lagasetningin bygg
ir á innleiðingu nýrrar evr
óputilskipunar sem ætlað er
að koma í veg fyrir og draga
úr umhverfisáhrifum af til
teknum vörum úr plasti og
áhrifum þeirra á heilsu fólks.
Þá er fyrirhuguð lagasetning
liður í áherslu ríkisstjórnar
innar á aðgerðir gegn plast
mengun og eflingu hringrás
arhagkerfisins. -mm
Erilsamt hjá
lögreglu
VESTURLAND: Síðasta
helgi var mjög annasöm hjá
lögreglumönnum umdæmis
ins. Að sögn Ásmundar Kr.
Ásmundssonar aðstoðaryf
irlögregluþjóns voru bókuð
hvorki fleiri né færri en 140
mál í skráningarkerfi lög
reglu um helgina og þá eru
þau mál sem koma í gegnum
hraðamyndavélar ekki tal
in með. er það óvenju mik
ið í umdæmi Lögreglunnar á
Vesturlandi. Ásmundur seg
ir að umferðamál hafi ver
ið sérstaklega áberandi og af
ýmsum toga; allt frá allt of
hröðum akstri og aksturs án
bílbeltis til ölvunar og fíkni
efnaaksturs og kyrrsetningar
atvinnubifreiða vegna ófull
nægjandi frágangs á farmi.
-kgk
Spólað í hringi
AKRANES: Haft var sam
band við lögreglu á mánu
dagskvöld og kvartað yfir
ökumönnum sem voru að
spóla í hringi á bílastæðinu
við Garðavöll á Akranesi.
ekki er vitað hverjir voru
þar á ferðinni, því þeir voru
horfnir á brott þegar lög
reglu bar að garði. -kgk
Styttan Jöklarar, minnisvarði um
drukknaða sjómenn, hefur sett svip
sinn á Sjómannagarðinn á Hellis
sandi frá því hún var sett upp árið
1974. Styttan sem er eftir Ragn
ar Kjartansson er eitt elsta verk
eftir listamanninn. Var hún fyrir
rúmu ári síðan send í bronsun til
Þýskalands til fyrirtækis sem nefn
ist Kollinger þar sem hún var farin
að skemmast að utan. Það er Slysa
varnadeildin Helga Bárðardóttir
sem á styttuna og þær Aðalheiður
Aðalsteinsdóttir og Albína Gunn
arsdóttir tóku á móti styttunni síð
astliðinn föstudag og fylgdust með
því þegar Árni Jón Þorgeirsson
kom henni fyrir á stalli sínum í Sjó
mannagarðinum.
Þær Aðalheiður og Albína hafa
borið hita og þunga af því að koma
styttunni í viðgerð og flutning
hennar heim aftur. Voru þær því að
vonum glaðar þegar styttan var sett
á sinn stað í fallegu vetrarveðri um
liðna helgi. Vildu þær koma á fram
færi kæru þakklæti til þeirra fyrir
tækja sem studdu slysavarnadeildina
í þessu verkefni því án þeirra hefði
þetta aldrei verið hægt. en bæði er
tímafrekt og dýrt er að senda svona
listaverk um langan veg. Kostnað
ur er kominn í tæpar átta milljónir
króna. enn er tekið á móti styrkjum
til verkefnisins og hægt að leggja
inn á reikning: 019015380046 kt.
6610902009.
eins og áður sagði sá Þorgeir
ehf. um að koma styttunni á sinn
stað, Ragnar og Ásgeir sáu um að
flytja styttuna í skip í Reykjavík og
til baka aftur án endurgjalds. Aðr
ir sem studdu slysavarnadeildina
Helgu Bárðurdóttur voru: Samtök
sveitarfélaga á Vesturlandi, Snæ
fellsbær, Guðmundur Kristjánsson,
nónvaða, Kristinn J. Friðþjófsson,
Baldur Jónsson, Auður Grímsdótt
ir, Apótek Ólafsvíkur, Skarðsvík,
Sandbrún, Breiðavík, Litlalón, Út
nes Hjallasandur, KG fiskverkun,
Þorgeir ehf. og Frakt flutnings
miðlun.
þa
Krani og bíll frá Þorgeiri ehf. hífði styttuna á sinn stað við Sjómannagarðinn.
Styttan Jöklarar er komin að
nýju á stall sinn
Aðalheiður og Albína eftir að styttunni hafði verið komið fyrir á stallinum.