Skessuhorn - 06.11.2019, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 20198
Barn hrapaði
AKRANES: níu ára gamalt
barn hrapaði að því er talið er
átta metra niður úr tré í Jör
undarholti síðdegis á sunnudag.
Barnið var flutt með sjúkrabíl á
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
á Akranesi til aðhlynningar.
-kgk
Frágangi
ábótavant
BORGARNES: Lögregla
hafði töluvert oft afskipti af at
vinnubílstjórum í liðinni viku
vegna ófullnægjandi frágangs á
farmi. Kom jafnvel til kyrrsetn
ingar vegna þessa, að sögn lög
reglu. einn ökumaður atvinnu
bifreiðar var stöðvaður á laug
ardagskvöld í Borgarnesi. Hann
ók á 82 km/klst. þar sem há
markshraði er 50 km/klst. Kom
þá í ljós að ástandi ökutækisins
var áfátt og frágangi farms auk
þess ábótavant. Ökumaðurinn á
yfir höfði sér 40 þúsund króna
sekt, að sögn lögreglu. -kgk
Veitt án leyfis
DALABYGGÐ: Tilkynnt var
um fjóra veiðimenn að skjóta
í leyfisleysi í landi Breiðabóls
staðar í vikunni sem leið. Sá
sem tilkynnti ætlaði að fara á
stúfana og reyna að ná mynd
um af bílum og taka niður bíl
númer. Sömuleiðis var lög
reglu tilkynnt um rjúpnaskyttur
í landi Sælingsdal sem landeig
andi kannaðist ekki við að hefðu
fengið leyfi til veiða. -kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
26. október - 1. nóvember
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 4 bátar.
Heildarlöndun: 39.862 kg.
Mestur afli: ebbi AK: 27.043
kg í fimm róðrum.
Arnarstapi: engar landanir á
tímabilinu.
Grundarfjörður: 5 bátar.
Heildarlöndun: 249.249 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
68.686 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 14 bátar.
Heildarlöndun: 232.899 kg.
Mestur afli: Tryggvi eðvarðs
SH: 47.011 kg í sex róðrum.
Rif: 10 bátar.
Heildarlöndun: 148.018 kg.
Mestur afli: Stakkhamar SH:
33.849 kg í fimm löndunum.
Stykkishólmur: 5 bátar.
Heildarlöndun: 136.454 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
90.128 kg í einni löndun.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Þórsnes SH - STY: 90.128
kg. 28. október.
2. Hringur SH - GRU:
68.686 kg. 30. október.
3. Runólfur SH - GRU:
60.259 kg. 28. október.
4. Sigurborg SH - GRU:
59.642 kg. 30. október.
5. Farsæll SH - GRU: 54.884
kg. 30. október.
-kgk
Eftirför á
Snæfellsnesi
SNÆFELLSNES: Lögreglan
á Vesturlandi veitti ökumanni
eftirför á Snæfellsnesi á mánu
dagsmorgun. eftirförin hófst
við Hótel Búðir rétt fyrir hálf
sjö að morgni og lauk ekki fyrr
en við afleggjarann að Laug
argerðisskóla þegar komið var
fram á áttunda tímann. Öku
maðurinn ók ekki hratt, var á
milli 50 og 70 km/klst. þar sem
hámarkshraði er 90 km/klst
en hegðun hans við aksturinn
var óeðlileg, að sögn lögreglu.
Hann sinnti ekki stöðvunar
merkjum lögreglu, fór ítrekað
yfir á rangan vegarhelming og
sveigði í veg fyrir lögreglu þeg
ar hún freistaði þess að komast
fram úr honum. Lögregla brá á
það ráð að setja út naglamottu
milli Miklaholtssels og Stóru
Þúfu, til að freista þess að stöðva
för ökumannsins, en hann náði
að sveigja framhjá mottunni og
eftirförin hélt áfram. Henni
lauk ekki fyrr en komið var að
afleggjaranum að Laugargerð
isskóla. Þá stöðvaði ökumaður
inn bifreið sína og var handtek
inn og færður á lögreglustöðina
í Borgarnesi. Maðurinn er ekki
grunaður um akstur undir áhrif
um áfengis eða fíkniefna, heldur
er talið að athæfið megi rekja til
hugsanlegra veikinda. Málið er
til rannsóknar. -kgk
Á ofsahraða
BORGARBYGGÐ: Ökumað
ur var stöðvaður á 157 km/klst.
á Vesturlandsvegi til móts við
Grenigerði ofan við Borgarnes
klukkan 13 síðastliðinn sunnu
dag, en leyfilegur hámarkshraði
er þar 90 km/klst. Var hraði bif
reiðarinnar mældur við almennt
umferðareftirlit. Ökumaður
inn á yfir höfði sér 230 þúsund
króna sekt og fær þrjá punkta
í ökuferilsskrá. er þetta mesti
hraði sem mældist í umdæmi
Lögreglunnar á Vesturlandi
þessa vikuna en töluvert mik
ið var um hraðakstur og önnur
umferðarlagabrot, að sögn lög
reglu. -kgk
Ekið á gangandi
AKRANES: ekið var á gang
andi vegfaranda þar sem hann
fór yfir Þjóðbraut á Akranesi á
mánudagsmorgun, laust eftir
kl. 8:00. Óhappið varð rétt hjá
lögreglustöðinni á Akranesi og
komu báðir saman á stöðina. Að
sögn lögreglu er ekki útlit fyr
ir að sá sem ekið var á hafi slas
ast alvarlega, en hann var engu
að síður færður á Heilbrigðis
stofnun Vesturlands á Akranesi
til skoðunar. -kgk
Fíkniakstur í
Andakíl
BORGARBYGGÐ: Ökumað
ur var stöðvaður á Borgarfjarð
arbraut til móts við Hreppslaug
um kl. 14:30 á sunnudag. Hann
var mældur á 119 km/klst. og er
þar að auki grunaður um akstur
undir áhrifum ávana og fíkni
efna. Málið er til rannsóknar.
Að sögn lögreglu er þetta fjarri
því að vera eina dæmið um ölv
unar eða fíkniefnaakstur í lið
inni viku. nokkuð var um slík
brot, einkum um helgina, sem
var óvenju erilsöm í umdæm
inu.
-kgk
Umhverfis og auðlindaráðuneytið
hefur samið við Borgarbyggð um
að útbúa bílastæði og salerni við
Glanna og Paradísarlaut í norður
árdal. Gríðarlegur fjöldi ferðafólks
sækir þessi náttúruundur heim á
hverju ári og algengt er á góðviðr
isdögum að þar séu bílastæði stapp
full. Í þessari framkvæmd legg
ur ríkið til 13 milljónir króna á
tveimur árum. Byggðarráð Borg
arbyggðar samþykkti samninginn á
fundi sínum 17. október sl. og vís
aði þeirri ákvörðun til staðfesting
ar í sveitarstjórn. Samningurinn er
hluti af landsáætlun um uppbygg
ingu innviða til verndar náttúru og
menningarsögulegum minjum.
Til stendur að byggja salernishús
úr timbrí á þessu ári og undirbúa
gerð 1.500 fermetra bílastæða. Á
næsta ári á svo að malbika bílastæð
ið og ganga frá því. Lokafrágangur
fer síðan fram vorið 2021. Land
ið er í einkaeigu. Landeigendum
verður falið verkið, en ber ábyrgð á
framkvæmdinni gagnvart ríkinu, en
landeigendur eignast mannvirkin
að framkvæmdum loknum.
kgk
Sóknaráætlun Vesturlands fyrir
árin 20202024 hefur nú verið birt í
samráðsgátt stjórnvalda til umsagn
ar til 14. nóvember nk. Um er að
ræða þróunaráætlun landshlutans
og felur í sér stöðumat Vesturlands,
framtíðarsýn, markmið og áherslur
til að ná fram þeirri framtíðarsýn.
Sóknaráætlun Vesturlands byggir
á fimm grunnþáttum; velferð, um
hverfi, samgöngum, menningu og
atvinnu. Þá voru allir þessir grunn
þættir tengdir við heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna. Í áætluninni
eru sett fram skýr mælanleg mark
mið og áherslur sem verða leiðar
ljós við val á áhersluverkefnum sem
og við úthlutun úr Uppbyggingar
sjóði Vesturlands.
Sóknaráætlunin var unnin á
tímabilinu mars til október á þessu
ári. Haldið var fjölmennt íbúaþing
þar sem Vestlendingum gafst kost
ur á að koma sínum sjónarmiðum
á framfæri. Samráðsvettvangur
Sóknaráætlunar Vesturlands kom
síðan að frekari vinnu við mótun
stefnunnar, en hann skipa fulltrú
ar frá sveitarfélögum, atvinnulífi,
menningarlífi, fræðasamfélaginu,
félagasamtökum og öðrum hags
munaaðilum.
niðurstaða vinnunnar er fram
tíðarsýn, markmið og áherslur
sem ætlað er að munu stuðla að
frekari vexti og framgangi á Vest
urlandi og gera landshlutann
samkeppnishæfari og betri bú
setukost.
mm
Sóknaráætlun Vesturlands
birt í samráðsgátt
Fossinn Glanni í Norðurá. Ljósm. úr safni.
Bæta aðstöðu við Glanna
og Paradísarlaut
Líkt og undanfarin ár gefur Þor
leifur Geirsson í Borgarnesi nú út
Borgarnesdagatalið. Þetta er tíundi
árgangur dagatalsins, en það prýða
þrettán ljósmyndir úr Borgarnesi
frá öllum mánuðum ársins. Fjór
tánda og aftasta blaðið inniheldur
svo myndaútskýringar. Myndirnar
á dagatalinu má skoða og fá nán
ari upplýsingar á vefslóðinni: www.
hvitatravel.is/dagatal
mm
Meðfylgjandi mynd prýðir júnímánuð.
Borgarnes dagatalið
2020 að kom út