Skessuhorn - 06.11.2019, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 201912
Guðmundur Sigvaldason hefur
óskað eftir að láta af störfum hjá
Golfklúbbnum Leyni á Akranesi
sem framkvæmdastjóri og hef
ur stjórn Leynis orðið við beiðni
hans. Frá þessu er greint í fréttatil
kynningu. Í samtali við blaðamann
Skessuhorns segist Guðmundur
nú liggja undir feldi vegna starfs
tilboðs sem honum hefur borist,
en væntir þess að starfa fyrir Leyni
út uppsagnartímann. „Ég viður
kenni það fúslega að það var erfið
ákvörðun að segja upp störfum hjá
þessum góða klúbbi sem Leynir
er. Hér hefur ýmislegt áunnist,
en á minni vakt hefur reksturinn
í raun tekið stakkaskiptum, félaga
fjöldi hefur aukist umtalsvert eða
yfir 30%, velta hefur þrefaldast
tímabilið 2013 til dagsins í dag og
afkoma klúbbsins er í dag í góðu
jafnvægi. eitt skemmtilegasta og
í raun mest krefjandi verkefnið
var þó undirbúningur, hönnun og
verkefnastjórn á byggingu nýrr
ar frístudamiðstöðvar. Þar lögðu
allir sig vel fram og húsið, völlur
inn og öll umgjörð um starf golf
klúbbsins er í dag til fyrirmyndar
á landsvísu. Ég er því bara stoltur
yfir hvernig til hefur tekist. Spil
aðir golfhringir á vellinum í sum
ar voru til að mynda tæplega 22
þúsund sem er gríðarleg aukning
frá fyrri árum. Þeir hafa verið í
kringum 1618 þúsund flest und
angengin ár, en voru 14 þúsund
í rigningarsumrinu í fyrra. Þessi
aukning nú hefði þó aldrei orð
ið nema fyrir þær sakir að gest
ir er ánægðir með völlinn og þá
aðstöðu sem hér er í boði,“ segir
Guðmundur.
Guðmundur tók við fram
kvæmdastjórn í Golfklúbbnum
Leyni 2013 og hefur leitt öfluga
uppbyggingu klúbbsins undan
farin ár. Hann stýrði eins og áður
sagði uppbyggingu nýrrar þúsund
fermetra frístundamiðstöðvar og
félagsaðstöðu Leynis sem tekinn
var í notkun í apríl á þessu ári.
„Tíminn hjá Golfklúbbnum hefur
verið afar gefandi og skemmtileg
ur og hefur verið gaman að vinna
fyrir félagsmenn Leynis. Ég er
þakklátur öllu því góða starfsfólki
og samstarfsfólki sem ég hef unn
ið með og er stoltur af þeirri upp
byggingu klúbbsins sem átt hefur
sér stað á minni vakt,“ segir Guð
mundur í samtali við Skessuhorn.
Þórður emil Ólafsson formaður
Golfklúbbsins Leynis kann Guð
mundi bestu þakkir fyrir störf hans
fyrir félagið. „Guðmundur hefur
starfað fyrir Golfklúbbinn Leyni í
sjö ár og verið lykilmaður í þeirri
uppbyggingu og öfluga starfi sem
unnið hefur verið hjá Leyni síð
astliðin ár. Samstarfið við Guð
mund hefur verið gott og hefur
reynsla hans og þekking reynst
klúbbnum gríðarlega vel á þessum
uppbyggingartíma. Stjórn Leynis
kann Guðmundi bestu þakkir fyrir
störf hans fyrir klúbbinn og óskar
honum velfarnaðar á nýjum vett
vangi,“ segir hann í tilkynningu.
mm
Frumkvöðlakeppninni Gullegg
inu lauk með verðlaunaafhend
ingu 25. október síðastliðinn. Þar
gerði teymið Statum sér lítið fyr
ir og hreppti verðlaun fyrir bestu
stafrænu lausnina. Teymið skipa
Vestlendingurinn edit Ómars
dóttir, ásamt þeim Hafdísi Sæ
land og Helgu Margréti Ólafsdótt
ur. Þær útbjuggu dómsal í sýndar
veruleika, sem ætlaður er þolend
um kynferðisofbeldis. Þar geta þol
endur stigið inn í sýndarveruleik
ann ásamt fagaðila og æft sig í að
stæðum sem minna á raunveruleik
ann. Hefur slíkt hvergi verið gert í
heiminum áður, eftir því sem best
er vitað. edit segir að hugmynd
in hafi kviknað þegar þær unnu að
lokaverkefni til B.S. gráðu í tölvun
arfræði við Háskólann í Reykjavík.
„Okkur langaði að gera eitthvað í
samstarfi við lögregluna en jafn
framt í sýndarveruleika. Við fór
um því á fund með Lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu og með þeim
fundum við út að þörfin væri mest
hjá þolendum kynferðisofbeld
is. Upp frá því fór boltinn að rúlla.
næst funduðum við með dómstjóra
Héraðsdóms Reykjavíkur, vorum
áfram í samskiptum við lögreglu og
sálfræðinga til að athuga hvort ein
hver grundvöllur væri fyrir þess
ari hugmynd og hvort þeir teldu að
hún myndi virka,“ segir edit í sam
tali við Skessuhorn. „Alls staðar var
mjög vel tekið í hugmyndina,“ seg
ir hún ánægð.
Upplifðu sömu
tilfinningu
Við tók rannsóknarvinna og þar
sem þær lásu rannsóknir á sýnd
arveruleika. Kom í ljós að hann
hefur reynst vel á öðrum sviðum,
til dæmis í meðferð við kvíða og
áfallastreitu. Þá var farið í að smíða
sýndarveruleikann. Það var gert
í Cadiu, gervigreindarsetri HR.
edit segir að það hafi á köflum ver
ið svolítið snúið. „Sýndarveruleik
inn er ekki bara dómssalurinn sjálf
ur, heldur erum við með sýndarver
ur inni í salnum, sem bregðast við
hreyfingum notandans, staðsetn
ingu og fleiru. Þannig að hann er
gagnvirkur. Smíðin var því dálítið
flókin á köflum,“ segir hún en bæt
ir því við að fyrir vikið sé sýndar
veruleikinn auðvitað raunverulegri.
„Við fórum í Héraðsdóm Reykja
víkur og mynduðum þann sal sem
oftast er notaður þegar dæmt er í
kynferðisbrotamálum. Síðan feng
um við sérfræðinga til að prófa
sýndarveruleikann; lögreglustjór
ann á höfuðborgarsvæðinu, dóm
stjóra og varadómstjóra Héraðs
dóms Reykjavíkur og sálfræðinga.
Allt fólk sem hefur komið í dóms
sal áður. Og það sem okkur fannst
merkilegast er að öll sögðust þau
hafa upplifað sömu tilfinningu og
við að koma raunverulega inn í sal
inn. Okkur þótti mjög áhugavert að
ná því fram,“ segir edit ánægð.
Einstakt á heimsvísu
eftir að hafa skilað inn lokaverk
efninu segir edit að það hafi vak
ið mikla athygli. Upp úr því ákváðu
þær að skrá hugmyndina í Gull
eggið og athuga hvort þær kæm
ust að. Þær gerðu það og gott bet
ur, hlutu verðlaun fyrir bestu staf
rænu lausnina eins og fram kom
hér að ofan. „Boltinn heldur síð
an áfram að rúlla því við erum ekki
hættar ennþá,“ segir hún. „Í janú
ar verða prófanir í sýndarveruleik
anum á vegum sálfræðideildar HR.
Mastersnemi mun þá gera prófun
á salnum með alvöru notendum,
raunverulegum þolendum kynferð
isbrota. Þá vonandi verður nytsemi
sýndarveruleikans staðfest og við
komumst að því hversu oft þolend
ur þurfa að fara í gegnum hann til
að vinna á kvíða fyrir dómsmálinu.
Þetta hefur mikið rannsóknargildi
fyrir greinar eins og sálfræðina, því
sýndarveruleiki hefur aldrei ver
ið notaður áður í þessu samhengi,
hvergi í heiminum,“ bætir hún við.
Vilja hjálpa samfélaginu
Auk þess segir edit að framund
an sé fundur með mikilvægum að
ila sem tengist málaflokknum, þar
sem rætt verður hvert framhaldið
gæti orðið. Hún vill þó ekki gefa
upp að svo stöddu hver það er.
„en allir sem við höfum rætt við
til þessa eru mjög spenntir að fá
þetta tæki í notkun og sjá nytsem
ina í því og gagnið sem það get
ur gert,“ segir hún. „ef allt geng
ur að óskum verður þetta vonandi
komið í notkun í kringum 2020 eða
2021. Vonandi verður hægt að setja
sýndarveruleikann upp á Bjarkar
hlíð, Stígamótum, Barnahúsi og
bara öllum stöðum sem þolend
ur kynferðisbrota leita til,“ segir
hún. „Þessi hópur þykir okkur hafa
gleymst einhvern veginn. Við eig
um til tækni sem getur hjálpað alls
konar fólki, en oft er tilhneiging
in hjá þeim sem eru í tæknigeir
anum að leita þangað sem pen
ingarnir eru. Þá vill það gerast að
aðrir gleymast. Markmiðið okk
ar er ekki að græða á þessu held
ur gera eitthvað sem hjálpar samfé
laginu,“ segir edit Ómarsdóttir að
endingu.
kgk/ Ljósm. aðsendar.
Guðmundur Sigvaldason er hér í nýju frístundamiðstöðinni við Garðavöll. Mál-
verk af vellinum og Akrafjalli eftir Bjarna Þór prýðir gafl byggingarinnar.
Guðmundur hættir að stýra Golfklúbbnum Leyni
Smíðuðu dómssal í sýndarveruleika
Ætlað að hjálpa þolendum kynferðisofbeldis
Edit Ómarsdóttir (fyrir miðju) ásamt þeim Helgu Margréti Ólafsdóttur (t.v.) og
Hafdísi Sæland (t.h.). Þær fengu verðlaun fyrir bestu stafrænu lausnina í frum-
kvöðlakeppninni Gullegginu.
Dómssalur í sýndarveruleika sem Edit, Helga og Hafdís smíðuðu. Sýndarveruleikinn er ekki aðeins dómssalurinn sjálfur, heldur eru þar sýndarverur
sem bregðast við hreyfingum notandans og fleiru.