Skessuhorn - 06.11.2019, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 201914
Tónlistarhátíðin HeimaSkagi var
haldin á Akranesi síðastliðið föstu
dagskvöld. Hátíðin var haldin í
tengslum við menningarhátíðina
Vökudaga sem lauk svo á sunnu
daginn. Á HeimaSkaga komu fram
sex tónlistarmenn sem voru með
tvenna tónleika hver á sex mismun
andi stöðum í bænum. Tónleik
arnir voru haldnir í heimahúsum,
í Bárunni brugghúsi og Akranes
kirkju. Tónleikagestir gátu þannig
rölt á milli staða og lék veðrið við
þá þessa fallegu kvöldstund. Upp
selt var á HeimaSkaga hátíðina og
var víða fullt út úr dyrum á tón
leikastöðunum. Góð stemning var
á hátíðinni sem heppnaðist mjög
vel.
arg
elísa Valdís einarsdóttir, snyrti
fræðinemi og Skagakona, kynnt
ist ilmkjarnaolíum fyrir tæplega ári
þegar hún fór á kynningu. Í kjölfar
ið fór hún að nota olíurnar í dag
legu lífi og fann að þær höfðu góð
áhrif. „Í snyrtifræðináminu kynntst
ég olíunum enn frekar og fór að
hafa meiri áhuga á þeim og áhrifum
þeirra. Ég keypti mér olíur og fór
að nota þær daglega. Ég nota þær
mest tengt líðan en líka til að hressa
upp á andrúmsloftið hjá mér,“ segir
elísa í samtali við Skessuhorn. ný
lega kynntist hún olíublöndu frá
doTeRRA sem má nota við höf
uðverkjum og mígreni. „Það hef
ur hingað til reynst mér vonum
framar,“ segir hún en doTeRRA
er vörumerki sem hún þekkir sjálf
best og er að selja. elísa er fædd og
uppalin á Akranesi þar sem hún bjó
til 18 ára aldurs. Þá flutti hún til
Reykjavíkur í þrjú ár og kom svo til
baka með barn og mann. Hún var
að ljúka námi í snyrtifræði síðast
liðið vor og er að klára samnings
tíma á snyrtistofu í Reykjavík en
stefnir á að vinna á Akranesi í fram
tíðinni.
Olíur til að minnka
bólgur og verki
Ilmkjarnaolíur hafa mismunandi
virkni á okkur eftir tegundum og
segir elísa það einnig skipta máli
hvernig þær séu notaðar. „Maður
á ekki að setja hreinar olíur beint
á húðina, nema þá einstaka olíur
sem má bera á iljarnar,“ segir el
ísa og bætir því við að á iljunum sé
ráðlagt að setja olíurnar því þar er
greið leið inn í blóðrásina og áhrif
in koma fyrr fram. „Annars bland
ar maður olíum alltaf út í grunnolíu
í ráðlögðum hlutföllum, sem getur
til dæmis verið kókosolía eða aðr
ar hlutlausar olíur. Það má líka setja
nokkra dropa út í body lotion eða
önnur krem fyrir líkamann,“ seg
ir elísa. Hún segist nota olíurnar
mikið í rakatæki sem hún er með á
heimilinu sem getur verið gott til að
lífga upp á andrúmsloftið en einn
ig er hægt að fá olíur fyrir róandi
og slakandi andrúmsloft, til dæmis
fyrir svefninn. „Olíurnar má nota á
líkamann bæði fyrir andlegan líðan
og staðbundið til að minnka bólg
ur og verki. Vissar doTeRRA olíur
er svo hægt að taka inn, til dæm
is í hylkjum eða með því að setja
einn eða tvo dropa í vatnsglas, en
þær olíur eru 100% hreinar og án
allra aukaefna,“ segir elísa og bætir
því við að hún þekki ekki til annarra
vörumerkja og geti því ekki segt til
um hvort þær megi taka inn. „Það
væri hægt að nota sítrónu eða app
elsínuolíur til að bragðbæta vatn en
svo eru sumar olíur sem er hægt að
taka inn til að stuðla að heilbrigð
ari meltingu,“ útskýrir elísa. „Fyr
irtækið doTeRRA er ekki einungis
með ilmkjarnaolíur. Þau framleiða
einnig ýmis fæðubótaefni, vítamín
og aðrar lífstílstengdar vörur.“
Olíurnar líka fyrir börn
Í byrjun árs fór hún sjálf að selja
ilmkjarnaolíur eftir pöntunum og
heldur kynningar fyrir fólk. Hún
segir ilmkjarnaolíur henta vel fyr
ir alla og ekki síður fyrir börn en
fullorðna. „Ég kynnti olíurnar fyr
ir stráknum mínum sem er að verða
sex ára og hann elskar þær. Ég er
með svona krakkapakka af olíum
sem eru í rollon flöskum. Það eru
þynntar olíur sem eru merktar
þannig að þær höfði til krakka. Þá
geta þau valið olíur sem henta þeim
út frá því hvernig þeim líður hverju
sinni,“ segir elísa og bætir því við
að þau mæðgin hafi bæði gaman að
því að grúska í olíum saman. Fyrir
þá sem hafa áhuga á að kynna sér
betur olíurnar eða panta hjá elísu
er hægt að hafa samband við hana
í gegnum Facebook síðuna doterra
ilmkjarnaolíur – elísa. Þar er einn
ig hægt að kynna sér vöruúrval og
fylgjast með því sem hún er að gera.
arg/ Ljósm. aðsendar
Elísa setur olíur gjarnan í rakatæki til að lífga upp á andrúmsloftið eða til að slaka
á fyrir svefninn.
Ilmkjarnaolíur fyrir líkamlega og andlega heilsu
Elísa Valdís Einarsdóttir notar ilm-
kjarnaolíur daglega fyrir bæði andlega
og líkamlega heilsu.
Góð stemning á Heima-Skaga tónlistarhátíðinni
Þessar skemmtu sér vel á tónleikum í Bárunni brugghúsi.
Friðrik Dór með tónleika heima hjá Lilju og Guðna. Á tónleikum heima hjá Pálma og Elfu við Grundartún.
Jónas Sig með tónleika í Haraldarhúsi.
Jónas Sig í Akraneskirkju.Valgeir Guðjóns vakti mikla lukku í Bárunni brugghúsi.
Góð stemning í Haraldarhúsi.Fólk var almennt ánægt með viðburðina. Hér eru nokkrir á rölti milli viðburða.