Skessuhorn - 06.11.2019, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 201916
Þegar komið er inn á heimili þeirra
Önnu Sólrúnar Kolbeinsdóttur
og Friðriks Pálma Pálmasonar að
Kjartansgötu 18 í Borgarnesi má
strax og komið er inn um gættina
sjá að þar býr fólk sem þykir vænt
um heimilið sitt og þykir gaman að
nostra við það. Inni er hlýlegt og
smekklega innréttað.
Elskar gamalt og nýtt
Anna Sólrún tók vel á móti
blaðamanni og aðspurð segist hún
hún alltaf hafa haft mikinn áhuga
á innanhússhönnun. „Ég veit svo
sem ekki hvaðan þessi áhugi kem
ur. Það eru ekki margir í kringum
mig sem deila þessu áhugamáli fyrir
innanhússhönnun. Þetta hefur ein
hvern veginn alltaf blundað í mér.
Allavega, frá því ég man eftir mér,“
segir Anna Sólrún hugsi. „Það er
sérstaklega með tilkomu samfélags
miðla sem það hefur aldrei verið
jafn auðvelt fyrir mig að sækja inn
blástur. Til dæmis, þá eru sænskar
píur alveg svakalega duglegar við
að gera upp gamlar mublur, mála
þær og gera þær geðveikt flottar
á ný. Ég elska þessa hugmynd, að
nýta gamla hluti á heimilinu í sam
blandi við nýtt,“ bætir hún við.
Tilraunastarfsemi í
æskuherberginu
Anna Sólrún rifjar upp við blaða
mann innanhússhönnunar tilraun
ir sínar í barnæsku og getur ekki
annað en hlegið að því sem for
eldrar hennar gáfu grænt ljós á.
„Ég var stöðugt að raða upp á
nýtt inni í herberginu mínu og
endalaust að færa húsgögnin eitt
hvað til. Svo var ég alltaf að spyrja
mömmu hvort ég mætti mála her
bergið mitt. Ég fékk það nú yfir
leitt ekki í gegn, mömmu fannst
þá svolítið vesen á mér. Ég man
hins vegar eftir einu tilfelli þegar
ég fékk leyfi til að mála herbergið
mitt rautt. Þá var ég fimmtán ára
gömul og við erum að tala um að
ég málaði herbergið mitt eldrautt.
Ég fór eina umferð með rauðu
málninguna og ætlaði heldur betur
að láta það duga, nennti náttúrlega
ekki meiru,“ segir Anna Sólrún og
skellihlær. „Það voru auð vitað línur
út um alla veggi. Mamma tók þetta
ekki í mál og lét mig klára verkið,
sem ég gerði svo fyrir rest,“ bæt
ir hún kímin við. „Þau fengu svo
töluverðan frið þegar ég flutti að
heiman.“
Á hugmyndaskónum
Anna Sólrún segist stöðugt vera
að fá nýjar hugmyndir og að hver
geggjaða hugmyndin á eftir ann
arri komi upp í kollinn reglulega
en segir það á sama tíma ekki endi
lega alltaf gott. „Ég á það til að fá
geggjaða hugmynd og vaða beint í
að koma henni í framkvæmd. Svo
fer hugurinn á kreik á ný, ég fæ
nýja hugmynd og vil byrja strax að
koma henni í verk. Fljótlega, áður
en ég veit af, þá er ég með nokkur
ókláruð verkefni. Þetta er agalegt,
auðvitað á maður að klára eitt áður
en maður veður í annað. Ég verð
bara svo rosalega spennt þegar ég
fæ góða hugmynd og þá er erfitt að
stoppa sig af.“
Margt búið, en langur
er listinn
Húsið á Kjartansgötunni sem þau
Anna og Friðrik búa í ásamt börn
unum sínum tveimur, Ástdísi og
emil, hefur tekið töluverðum
breytingum síðan fjölskyldan flutti
inn, rétt fyrir jólin 2015. Húsið er
115 fermetrar að stærð, plús bíl
skúr. „Við erum búin að opna rým
ið svo að eldhúsið og stofan fái að
njóta sín betur. nú fáum við alla
þessa birtu frá stofuglugganum inn
í eldhúsið okkar. Við erum einnig
búin að taka baðherbergið alveg í
gegn ásamt því að umturna garðin
um úti og setja til dæmis grasblett
fyrir framan húsið og heljarinnar
pall sem er algjör draumur, sérstak
lega á sumrin,“ útskýrir Anna Sól
rún. Þrátt fyrir mörg kláruð verk
efni þá er listinn langur hjá Önnu
Sólrúnu og Friðriki. „Þvottahúsið
er alveg eftir, það er bara fokhelt
eins og er. Við eigum líka eftir að
skipta um glugga og klára að klæða
húsið að utan,“ bætir hún við.
Snúrulaus
sjónvarpsveggur
Anna Sólrún hefur virkilega gam
an af því að spreyta sig sjálf þeg
ar kemur að hönnun og sótti hún
sér innblástur frá Söru Dögg Guð
jónsdóttur, innanhússhönnuði, sem
hafði gert nokkrar útfærslur tengt
sjónvarpi, til dæmis hvernig eigi að
fela snúruflóðið sem fylgir flatsk
jáum í dag. Oftar en ekki reynast
allar þessar snúrur afskaplega hvim
leiðar ásjónar og því eru góð ráð
dýr. „Ég var staðráðin í að gera eitt
hvað sniðugt við sjónvarpsvegginn.
Mér finnst nefnilega svo leiðinlegt
þegar sjónvarpið er orðin einhver
mubla inni í herberginu af því sjón
vörp yfir höfuð eru mjög ljót. Með
þessari lausn verður þetta allt að
eins fallegra,“ útskýrir Anna Sólrún
og blaðamaður getur ekki annað en
tekið undir það, enda engar snúr
ur sjáanlegar í stofunni hjá þeim.
en hvernig gekk að gera þetta al
veg sjálf? „Hann Friðrik hjálpaði
mér, þetta var alveg 50/50 vinna frá
okkur báðum. Ég var búin að breyta
um skoðun ansi oft áður en við réð
umst loks í framkvæmdir. einn dag
inn, þá teiknaði ég þetta upp, til
kynnti Friðriki að ég væri búin að
redda pössun fyrir krakkana eina
helgina og að við værum að fara í
þetta verkefni, að byggja sjónvarps
vegginn. Við kláruðum vegginn að
mestu þessa tilteknu helgi, það er
einungis smá frágangur eftir,“ seg
ir Anna Sólrún ánægð að lokum en
hún stefnir jafnframt á að læra hús
gagnasmíði og á sér það markmið
að smíða nýtt eldhúsborð fyrir fjöl
skylduna. glh
Hefur alltaf haft mikinn áhuga á innanhússhönnun
Kíkt í heimsókn til Önnu Sólrúnar Kolbeinsdóttur í Borgarnesi
Anna Sólrún í eldhúsinu sínu á Kjartansgötunni.
Sjónvapsveggurinn sem Anna Sólrún
ásamt Friðriki kærasta sínum byggðu
eina helgina.
Markmiðið með sérsmíðuðum
sjónvarpsvegg var að hafa engar
snúrur sjáanlegar. Markmiðinu var svo
sannarlega mætt eins og sést hér.
Píanóið í stofunni er í sérstöku upp-
áhaldi hjá Önnu Sólrúnu.
Eins og sést hér er afar hlýleg og notaleg stemning í stofunni hjá Önnu Sólrúnu og Friðriki.
Anna Sólrún er afar lunkin og smíðaði þennan rúmgafl sjálf ásamt því að hand-
sauma áklæðið sem gefur svefnherberginu ákveðinn stíl.