Skessuhorn - 06.11.2019, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 6. nÓVeMBeR 201922
Árlegur basar og kaffisala var haldin
í Brákarhlíð í Borgarnesi síðastlið
inn föstudag. Þar voru seldir mun
ir sem heimilisfólk í Brákarhlíð hef
ur framleitt í félagsstarfinu og iðj
unni. Allur ágóði af sölunni verður
notaður til efnis og búnaðarkaupa
í vinnustofuna. Margir gerðu sér
ferð í Brákarhlíð og heilsuðu upp
á heimilisfólk og nældu sér í fallegt
handverk. Meðfylgjandi myndir tók
Gunnhildur Lind Hansdóttir.
arg/ Ljósm. glh
Veturnætur voru haldnar í þriðja
sinn á Byggðasafninu í Görð
um á Akranesi fimmtudagskvöld
ið 31. október. Upptaktur að há
tíðinni var svo síðdegis þegar börn
bönkuðu upp á í húsum í hverfum
bæjarins og buðu grikk eða gott á
hrekkjavökudeginum. Að minnsta
kosti 1.600 manns mættu á byggða
safnið til að fylgjast með hrylli
legum skrímslum og afturgöngum
sem sköpuðu hrollvekjandi stemn
ingu á safninu þetta kvöld. Að sögn
Sigríðar Línu Daníelsdóttur, eins
skipuleggjanda viðburðarins, var
kvöldið afskaplega vel heppnað.
„Við erum ótrúlega þakklát fyr
ir að hafa Grundaskóla með okk
ur í þessu, það er dýrmætt að eiga
slíka vini á safninu og án þeirra væri
þetta ekki hægt,“ segir hún ánægð
í samtali við Skessuhorn. Byggða
safninu var breytt í draugahús þessa
kvöldstund og var þar ýmislegt við
bjóðslegt að sjá. „Við vorum með
margar líkkistur, alls konar viðbjóð
í formi líffæra og svo var ýmislegt
sem leyndist í myrkrinu hjá okkur,“
segir Sigríður. Aðspurð segir hún
Veturnætur vera komnar til að vera.
„Það kom upp umræða um að þetta
væri kannski í síðasta skipti sem við
myndum halda þessa hátíð. en svo
er þetta bara svo vinsælt og í raun
orðin árlegur viðburður sem fólk
gerir ráð fyrir. Það kemur því ekki
annað til greina en að við höldum
þessu áfram,“ segir hún að endingu.
arg/ Ljósm. Byggðasafnið Görðum.
Vel heppnaðar Veturnætur á Byggðasafninu
Þeir voru frekar illa farnir þessir sjómenn.
Þessi unga stelpa var ógnvekjandi að
sjá.
Ýmsar ógnvekjandi verur voru á
ferðinni á byggðasafninu.
Margar líkkistur voru á safninu, ekki
tómar!
Árlegur basar í Brákarhlíð á föstudaginn
Spjallað saman yfir kaffibolla.
Borð og fleira fallegt á heimilið.
Vignir Sigurþórsson tók lagið.
Fallegt handverk fyrir jólin.
Litríkt og fallegt handverk.
Hægt var að kaupa fjölbreytt handverk.
Maður er manns gaman. Kaffisalan var opin og þar var m.a. hægt að fá sér vöfflur með sultu og rjóma.