Skessuhorn - 20.11.2019, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 20. nóVeMBeR 201910
Borgarbyggð var í Landsrétti á
föstudag sýknuð af kröfu um bóta-
skyldu Húsa og lóða ehf. Þar með
staðfesti Landsréttur dóm Héraðs-
dóms Vesturlands frá því í febrúar
síðastliðnum.
Fyrirtækið krafðist þess að bóta-
skylda yrði viðurkennd vegna tjóns
sem hlaust af byggingarleyfi sem
gefið var út 16. september 2016,
fyrir nýbyggingum við Borgar-
braut 57 og 59 og úrskurðarnefnd
umhverfis- og auðlindamá la felldi
síðan úr gildi 23. desember sama ár.
Sá úrskurður hafi gert það að verk-
um að tafir yrðu á framkvæmdum
við nýbygginguna með tilheyrandi
tjóni. Borgarbyggð krafðist frávís-
unar, en sýknu til vara.
Í dómi Landsréttar segir að skil-
málar aðal- og deiliskipulags hafi
verið báðum aðilum aðgengileg-
ir og hafi mátt vera þeim kunnir,
þar með taldar þær takmarkanir
sem voru á landsnotkun lóðarinn-
ar. „Með því að hefja framkvæmdir
á grundvelli byggingarleyfisins tók
áfrýjandi þá áhættu að látið yrði
reyna á gildi þess og gat ekki geng-
ið út frá því að úrlausn mögulegra
ágreiningsefna vegna þess félli
honum í hag,“ segir í dómnum. Þá
beri að líta til þess að áfrýjanda hafi
verið unnt að halda framkvæmd-
um áfram þann tíma sem bygg-
ingarleyfið var í gildi, sem hafi
verið ívilnandi fyrir hann. Þá verði
ekki séð að ákvörðun um veitingu
byggingarleyfis og afgreiðsla þess
hjá byggingarfulltrúa hafi verið
með þeim hætti að stofna sveitar-
félaginu bótaskyldu. „Hinn áfrýj-
aðir dómur skal vera óraskaður
um sýknu stefnda, Borgarbyggð-
ar, af viðurkenningu á bótaskyldu
gagnvart áfrýjanda, Húsi og lóðum
ehf.,“ segir í dómsorði Landsréttar.
Málskostnaður var felldur niður.
kgk
Gunnlaugur Auðunn Júlíusson
fráfarandi sveitarstjóri í Borgar-
byggð kveðst aðspurður í samtali
við Skessuhorn líta glaður um öxl,
eftir þrjú og hálft ár í starfi sveitar-
stjóra. Hann kveðst þakklátur fyr-
ir að hafa fengið að kynnast íbúum
í starfi og leik, en um leið er hann
leiður yfir að þannig hafi farið í
liðinni viku að sveitarstjórn ósk-
aði ekki lengur eftir starfskröft-
um hans. „Auðvitað er það svo að
kjörnir fulltrúar ráða för. Þeir axla
hina pólitísku ábyrgð og eru æðstu
stjórnendur milli kosninga. Það
voru þeir sem kusu að láta leiðir
okkar skilja. Ég tek hatt minn og
staf en mín bíða einfaldlega nýjar
áskoranir og önnur verkefni hvar
sem þau verða. Ég hætti störfum
fyrir þetta góða samfélag í Borg-
arbyggð glaður í bragði og þakk-
látur fyrir að hafa fengið að kynn-
ast héraðsbúum á nýjan leik,“ seg-
ir Gunnlaugur, en hann er eins og
margir lesendur þekkja Rauðsend-
ingur að uppruna og fetaði meðal
annars menntaveginn við Bænda-
skólann á Hvanneyri. eftir það
hefur hann sem dæmi verið sveit-
arstjóri á Raufarhöfn en lengstan
starfsaldur á hann hjá Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga. Í stuttu spjalli
við blaðamann nefnir Gunnlaug-
ur meðal annars það sem stendur
hæst eftir árin þrjú og hálft.
Þakklátur
samstarfsfólkinu
Gunnlaugur leggur áherslu á að
samstarf hafi verið gott við lykil-
stjórnendur í sveitarfélaginu Borg-
arbyggð. „Ég hef nú kvatt flesta
stærri vinnustaði í sveitarfélaginu,
fannst það eðlilegt og rétt að þakka
fyrir það sem vel hefur gengið og
heimsótti því í liðinni viku þessa
flottu staði. Ég hef átt gott sam-
starf við sveitarstjórn og nefni
sérstaklega þær Halldóru Lóu
Þorvaldsdóttur og Lilju Björgu
Ágústsdóttur oddvita í núverandi
sveitarstjórn. Ég gæti vart hugsað
mér betra og traustara samstarf og
sömuleiðis hefur það verið prýði-
legt við Guðveigu eyglóardótt-
ur oddvita Framsóknarflokks í nú-
verandi minnihluta. einnig átti
ég prýðisgott samstarf við odd-
vita þeirrar sveitarstjórnar sem
réði mig til starfa vorið 2016. Þá
vil ég einnig sérstaklega nefna gott
samstarf við reynsluboltann Finn-
boga í Hítardal. Við þetta fólk hef
ég átt eins gott samstarf og hægt
er að hugsa sér,“ segir Gunnlaug-
ur. Hann hyggst nú taka sér frí í
mánaðartíma eða svo, en gott sam-
fellt frí kveðst hann ekki hafa tek-
ið frá því hann hóf störf í Borgar-
byggð í maí 2016.
Virkur í samskiptum
við íbúa
„Ég hef lagt áherslu á að sinna starfi
mínu af heilindum, meðal annars
með því að leggja áherslu á að rækta
tengsl við íbúana, þá sem ég starfa í
umboði fyrir. Hef lagt mig fram um
að sækja mannamót og menningar-
viðburði af ýmsu tagi og finnst það
einfaldlega tilheyra. Að óbreyttu
hefði því verið framundan að sækja
að minnsta kosti ein fimm til sjö
þorrablót í upphafi árs,“ segir hann
og brosir. Hann neitar því ekki að
við slíkar aðstæður sé það kostur að
finnast þorramatur góður. „Sá skóli
sem ég hef fengið af veru minni í
héraðinu er ekki síst sá að í Borgar-
byggð er ótrúlega öflugt félags- og
menningarlíf. Það kom mér raun-
ar á óvart í hversu miklum blóma
það er. Hér eru einnig gríðarlega
öflugar menningarstofnanir og ég
held að ekki sé hallað á neinn þó
ég nefni í því samhengi Snorrastofu
og Reykholtskirkju annars vegar og
Landsnámssetrið í Borgarnesi hins
vegar. Þar fara fram sýningar, tón-
leikar, fyrirlestrar og fræðasam-
komur af ýmsu tagi, menningar-
samkomur sem ramma vel inn hin
sterku tengsl sem Borgfirðingar
hafa við bakgrunn sinn.“
Þrjú stór verkefni
að raungerast
Aðspurður um hvað standi upp úr á
þeim þremur og hálfa ári sem hann
hefur stýrt Borgarbyggð, svar-
ar Gunnlaugur: „Ég er þakklátur
fyrir svo margt. ekki þó síst að nú
eru að raungerast þrjú stór verk-
efni sem skipta íbúa og samfélagið
allt alveg gríðarlega miklu máli.
Þá á ég við stækkun og endurbæt-
ur á Grunnskólanum í Borgarnesi,
bygging nýs leikskóla á Kleppjárns-
reykjum en ekki síst er ljósleiðara-
væðing sveitarfélagsins hafin. Hún
er nauðsynleg upp á alla framþró-
un og tækifæri komandi tíma. Allt
eru þetta mikilvæg verkefni og for-
senda fyrir því að hér verður áfram
lífvænlegt og gott að búa.“
Kallar eftir skýringu
Aðspurður um hverja hann telur
ástæðu þess að honum hafi nú verið
sagt upp störfum, vill Gunnlaugur
ekki ræða að sinni, en segir: „Upp-
sögnin kom mér mjög á óvart en á
þessum tímapunkti vil ég ekki ræða
það. Tel bæði rétt og eðlilegt að
sveitarstjórn skýri þann þátt máls-
ins og mun ég óska formlega eftir
skýringum fyrir uppsögninni.“
Hvergi nærri hættur
Gunnlaugur kveðst hlakka til að
takast á við þau verkefni sem hann
á eftir að taka sér fyrir hendur. eins
og margir þekkja er hann fremsti
langhlaupari sem Ísland hefur átt
og slíkir gefast trauðla upp þótt
móti blási. Hann kveðst aðspurður
langt frá því hættur á vinnumark-
aði. „Ég hef fulla starfsorku og hef
auk þess gaman af því að vinna.
Mín bíða því vafalítið skemmti-
leg verkefni og þótt svona hafi far-
ið hér, er ég ekki hættur þátttöku
á vinnumarkaði, öðru nær. Ég vil
að endingu nota þetta tækifæri og
færa lesendum, einkum þó íbúum
í Borgarbyggð, bestu þakkir fyrir
afar ánægjuleg samskipti og kynni á
undanförnum árum,“ segir Gunn-
laugur A Júlíusson að endingu.
mm
Borgarbyggð 57
og 59 þegar fram-
kvæmdir voru langt
komnar vorið 2018.
Ljósm. úr safni.
Borgarbyggð sýknuð af kröfu um bótaskyldu
Er þakklátur Borgfirðingum fyrir gott
samstarf og ánægjuleg kynni
Gunnlaugur A Júlíusson fráfarandi sveitarstjóri lítur yfir farinn veg
Gunnlaugur A Júlíusson.