Skessuhorn - 20.11.2019, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 20. nóVeMBeR 2019 31
Kylfingurinn Bjarki Pétursson úr
Borgarnesi komst ekki í gegnum
niðurskurðinn á lokastigi úrtöku-
móts fyrir evrópumót karla. Loka-
hringurinn var leikinn á mánu-
dag. Bjarki var fyrir lokahringinn á
tveimur höggum yfir pari og þurfti
því á mjög góðum hring að halda til
að komast í gegnum niðurskurðinn,
sem miðaðist við fjögur högg und-
ir pari. Bjarki fór síðasta hringinn
á einu yfir pari. Hann lauk því leik
samtals á þremur yfir pari og komst
ekki áfram að þessu sinni. kgk
Skallagrímur tapaði naumlega gegn
Hetti, 92-89, í æsispennandi leik í
1. deild karla í körfuknattleik á
mánudagskvöld. Leikið var austur
á egilsstöðum.
Heimamenn byrjuðu leikinn með
látum og leiddu með tíu stigum eft-
ir fjögurra mínútna leik. Þá tóku
Skallagrímsmenn við sér, minnk-
uðu muninn snarlega og voru að-
eins þremur stigum á eftir þeg-
ar upphafsfjórðungurinn var úti,
27-24. Höttur leiddi með nokkrum
stigum framan af öðrum leikhluta,
en þegar leið nær hálfleiknum tóku
Borgnesingar forystuna. Þeir kom-
ust mest sjö stigum yfir seint í leik-
hlutanum en Höttur lauk fyrri hálf-
leik með góðri rispu svo aðeins
munaði einu stigi í hléinu. Borg-
nesingar leiddu, 46-47.
Skallagrímsmenn höfðu yfir-
höndina í þriðja leikhluta. Þeir
komust í sjö stiga forskot þegar
komið var fram yfir hann miðjan,
en heimamenn náðu að minnka
muninn í fjögur stig fyrir lokafjórð-
unginn. Þar gerði Höttur ítrekað
atlögu að forystu Skallagríms, en
Borgnesingar stóðu hvert áhlaupið
á fætur öðru af sér. Þegar rétt rúm
mínúta lifði leiks leiddi Skallagrím-
ur með einu stigi, þegar heima-
menn settu niður þriggja stiga skot
og tóku forystuna. Þeir skoruðu
næstu tvær körfur til viðbótar áður
en Borgnesingar náðu að svara og
tókst þannig að stela sigrinum á
lokamínútunni. Lokatölur voru
92-89, Hetti í vil.
Kristján Örn ómarsson var
stigahæstur í liði Skallagríms með
20 stig og hann tók fimm fráköst að
auki. Davíð Guðmundsson skoraði
14 stig, Kenneth Simms skoraði 13
stig og tók ellefu fráköst, Marinó
Þór Pálmason skoraði 13 stig, tók
sjö fráköst og gaf fimm stoðsend-
ingar, Isaiah Coddon skoraði ellefu
stig, Kristófer Gíslason var með tíu
stig og fimm fráköst, Arnar Smári
Bjarnason og Ásbjörn Baldvinsson
skoruðu þrjú stig hvor og Hjalti Ás-
berg Þorleifsson skoraði tvö.
eysteinn Bjarni Ævarsson skor-
aði 20 stig og tók sjö fráköst fyrir
Hött og Matej Karlovic skoraði 20
stig einnig. David Guardia Ramos
skoraði 19 stig og tók átta fráköst,
Dino Stipcic skoraði 13 stig, tók
sex fráköst og gaf átta stoðsending-
ar og Marcus Jermaine Van skoraði
tólf stig og tók 16 fráköst.
Borgnesingar verma botnsæti
deildarinnar með tvö stig, jafn
mörg og Snæfell og Sindri í sætun-
um fyrir ofan en eiga leik til góða
á Snæfellinga. næsti leikur Skalla-
gríms er gegn Sindra í Borgarnesi á
morgun, fimmtudaginn 21. nóvem-
ber.
kgk/ Ljósm. úr safni/ Skallagrímur
Snæfellingar þurftu að lúta
í gras gegn Breiðabliki,
116-85, þegar liðin mættust í
1. deild karla í körfuknattleik
á mánudagskvöld. Leikið var
í Kópavogi.
Blikar voru mun öflugri
í upphafsfjórðungnum og
náðu snemma leiks afgerandi
forystu. Snæfell kom aðeins
til baka seint í leikhlutanum
en heimamenn áttu lokaorðið
og leiddu með 14 stigum þeg-
ar leikhlutinn var úti, 30-16.
Heimamenn juku forskot sitt
hægt en örugglega í öðrum
fjórðungi og leiddu með 25
stigum í hléinu, 65-40.
Áfram breikkaði bilið milli
liðanna efitr hléið. Blik-
ar héldu áfram að bæta við
í þriðja fjórðungi og voru
komnir 34 stigum yfir áður en
hann var úti, 94-60. Snæfell-
ingar áttu sinn besta leikhluta
í þeim fjórða en það hafði lít-
ið að segja. Blikar sigruðu
með 116 stigum gegn 85.
Brandon Cataldo var at-
kvæðamestur í liði Snæfells
með 30 stig og ellefu fráköst.
Anders Gabriel Andersteg
skoraði 18 stig og Ísak Örn
Baldursson var með 14 stig.
Benjamín ómar Kristjáns-
son, Pavel Kraljic og Aron
Ingi Hinriksson skoruðu sjö
stig hver og Viktor Brimnir
Ásmundarson var með tvö
stig.
Árni elmar Hrafnsson
skoraði 25 stig, tók fimm frá-
köst og gaf sex stoðsending-
ar í liði Breiðabliks. Larry
Thomas var með 19 stig,
tólf fráköst og sjö stoðsend-
ingar, Sveinbjörn Jóhann-
esson skoraði 13 stig, Alex
Rafn Guðlaugsson skoraði
ellefu og Dovydas Strasuns-
kas skoraði tíu stig og tók sex
fráköst.
Snæfellingar sitja eftir leik-
inn í áttunda sæti, með jafn
mörg stig og Skallagrím-
ur í sætinu fyrir neðan og
Sindri í sætinu fyrir ofan, en
hafa leikið einum leik meira
en Borgnesingar og tveim-
ur meira en Hornfirðingar.
næsti leikur Snæfells er úti-
leikur gegn Vestra föstudag-
inn 29. nóvember næstkom-
andi. kgk/ Ljósm. úr safni/ sá.
Körfuknattleiksdeild Skallagríms
hefur samið við Spánverjann Franc-
isco Garcia um að taka að sér yfir-
þjálfun yngri flokka hjá félaginu.
Francisco mun halda utan um allt
faglegt starf innan deildarinnar,
bæði hvað varðar þróun leikmanna
sem og þjálfara, ásamt því að sinna
einstaklingsþjálfun og þjálfa yngri
flokka Skallagríms. Samið var við
Francisco til þriggja ára.
Francisco á að baki fjölbreyttan
þjálfaraferil. Hann hefur þjálfað
bæði meistaraflokka og yngri flokka
í heimalandinu Spáni. Hann þjálf-
aði í fjögur ár í úrvalsdeild kvenna
á Spáni og hefur einnig starfað sem
þjálfari í Danmörku og Finnlandi.
Auk þess hefur hann þjálfað lands-
lið Indlands og U14 og U18 ára
landslið kvenna á Spáni.
Á Facebook-síðu Skallagríms
er haft eftir Francisco að hann sé
spenntur að takast á við nýja áskor-
un. Hann hafi alltaf verið þeirrar
skoðunar að styrkur hvers íþrótta-
liðs byggi á sterku yngri flokka starfi
og hann muni reyna að leggja sitt af
mörkum á þeim vettvangi. Hann
sér fram á uppbyggingu í yngri
flokka starfinu. Reynt verði að búa
til leikmenn fyrir meistaraflokkslið
Skallagríms. Slíkt muni kosta tíma,
þolinmæði og vinnusemi.
Jafnframt er haft eftir Pálma Þór
Sævarssyni, formanni yngri flokka
ráðs Skallagríms, að hann sé ánægð-
ur með komu Franciscos til félags-
ins. Hann hafi kynnst Francisco
ágætlega í gegnum árin og segir að
þar fari léttur og skemmtilegur fír
með mikla reynslu og ástríðu fyrir
leiknum. „Það er gríðarlega stórt
skref fyrir okkur að fá svona mann
inn í yngri flokka starfið til lengri
tíma og byggja ofan á þá flottu upp-
byggingu sem verið hefur hjá okkur
undanfarin ár,“ segir Pálmi.
kgk
Víkingur ó. hefur samið að nýju
við enska knattspyrnumanninn
James Dale og gildir samningur-
inn út keppnistímabilið 2020. Jam-
es er 25 ára gamall og leikur stöðu
miðjumanns. Hann kom til Víkings
í maí síðastliðinum og lék með liði
ólafsvíkinga í 1. deild karla síðasta
sumar. Þótti hann standa sig vel og
hefur félagið því samið við hann að
nýju. „Stjórn knattspyrnudeildar
Víkings ó. lýsir yfir mikilli ánægju
að hafa tryggt sér þjónustu hans eitt
ár til viðbótar,“ segir á Facebook-
síðu félagsins.
kgk
Ungmennafélag Grundarfjarð-
ar tók á móti Ými í fyrstu deild
kvenna í blaki fimmtudaginn 14.
nóvember síðastliðinn. Liðin voru
í sitthvorum hluta deildarinnar
en Ýmir er við toppinn á meðan
Grundarfjörður er í neðri hlutan-
um. Ljóst var frá byrjun að heima-
menn ætluðu að selja sig dýrt og
byrjuðu af miklum krafti. Grund-
firsku stelpurnar komust í 9-2 áður
en gestirnir tóku við sér og náðu að
jafna hrinuna 9-9. Liðin skiptust
svo á að leiða en UMFG tókst svo
að lokum að sigra 25-21 og kom-
ast í 1-0 í leiknum. Í annarri hrinu
var nokkuð jafnræði með liðunum
en gestirnir höfðu þó yfirhöndina í
restina og unnu aðra hrinu 25-20
og jöfnuðu þar með leikinn 1-1. Í
þriðju hrinu voru Ýmiskonur með
yfirhöndina allan tímann og leiddu
nokkuð örugglega. Þeirri hrinu
lauk með 25-16 sigri gestanna og
þær því komnar með forystu 2-1
í leiknum. Í fjórðu hrinu komu
Grundfirðingar grimmari til leiks
og var hrinan í járnum allt til loka
en heimamönnum tókst að jafna
metin 2-2 með því að sigra fjórðu
hrinuna 25-21 og því þurfti odda-
hrinu til að fá úrslit. Oddahrinan
var í járnum allan tímann þangað
til í lokin er gestirnir voru komnir
í 14-10 og þurftu því aðeins 1 stig
til að sigra leikinn. Heimamenn
reyndu hvað þær gátu og náðu
að minnka muninn í 14-12 en þá
náðu Ýmisstúlkur að skora síðasta
stigið og sigruðu því í æsispenn-
andi viðureign 3-2 og skutust því
í toppsætið.
Ungmennafélag Grundarfjarð-
ar er í 9. sæti af 12 og leggur land
undir fót um næstu helgi og fer
norður til að etja kappi við Völsung
á Húsavík 23. nóvember og dag-
inn eftir halda þær á Siglufjörð og
sækja lið BF heim. Það verður því
nóg um að vera um næstu helgi hjá
liðinu. tfk
Bjarki komst ekki áfram
James Dale í leik með liði Ólafsvíkinga í sumar. Ljósm. Víkingur Ó.
James Dale áfram
hjá Víkingi
Borgnesingar rændir sigrinum
Körfuknattleiksþjálfarinn Francisco
Garcia.
Francicso Garcia ráðinn
yfirþjálfari yngri flokka
Æsispennandi blakleikur í Grundarfirði
Einstefna í Kópavoginum