Skessuhorn - 20.11.2019, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 20. nóVeMBeR 2019 17
Sjúkraliðar/hópstjórar óskast
Dvalarheimili aldraðra Stykkishólmi óskar eftir að
ráða sjúkraliða eða sjúkraliðanema við aðhlynningu
frá og með 15. janúar 2020.
Unnið á tvískiptum vöktum og aðra hvora helgi.
Starfshlutfall er samkomulag.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu
Stykkishólmsbæjar, www.stykkisholmur.is og á
skrifstofu Stykkishólmsbæjar.
Umsóknum má skila undirritaðri á Dvalarheimili
aldraðra, Skólastíg 14, 340 Stykkishólmur eða á
netfangið krishan@stykkisholmur.is.
Allar nánari upplýsingar á staðnum eða
í síma 433-8165 alla virka daga.
Kristín Hannesdóttir
Forstöðumaður Dvalarheimilis aldraðra
Stykkishólmi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Stykkishólmsbær
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Bæjarstjórnarfundur
1303. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn
í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn
26. nóvember kl. 17:00.
Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og
kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta
á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á facebooksíðu
Akraneskaupstaðar.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Framsókn og frjálsir í Frístundamiðstöðinni, •
mánudaginn 25. nóvember kl. 20:00.
Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18 •
mánudaginn 25. nóvember kl. 20:00.
Sjálfstæðisflokkurinn að Kirkjubraut 8, •
laugardaginn 23. nóvember kl. 10:30.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Styrktarsjóður íþrótta- og
menningarverkefna
Opnað fyrir umsóknir
Akraneskaupstaður auglýsir eftir styrkumsóknum til menningar-
og íþróttaverkefna á árinu 2020.
Við mat og afgreiðslu styrkja til menningarverkefna verður lögð
sérstök áhersla á að styðja við verkefni sem vinna að markmiðum
Menningarstefnu Akraness. Við mat og afgreiðslu styrkja til íþrótta-
verkefna verður lögð áhersla á að styrkja verkefni sem efla íþróttastarf
á Akranesi.
Úthlutunarreglur og umsóknareyðublað má finna
á www.akranes.is
Umsóknarfrestur er til og með 16. desember.
Á fimmtudaginn í síðustu viku voru
30 ár liðin frá því Framköllunar-
þjónustan í Borgarnesi var stofnuð.
Það eru hjónin Svanur Steinarsson
og elfa Hauksdóttir sem stofnuðu
og eiga Framköllunarþjónustuna
og fögnuðu þau stórafmælinu með
að bjóða gestum og gangandi upp
á veitingar í versluninni. Framköll-
unarþjónustuna má rekja til Akra-
ness en fyrir 30 árum var Svanur að
hugsa um að fjárfesta í sínum eigin
framköllunartækjum því hann vildi
fara í eigin fyrirtækjarekstur. Þá
frétti hann af því að ólafur Árna-
son, ljósmyndari á Akranesi, væri
að hætta störfum. „Ég hafði því
samband við hann og keypti tæk-
in hans og opnaði Framköllunar-
þjónustuna hér í Borgarnesi,“ seg-
ir Svanur.
Framkallar enn filmur
Margt hefur breyst hjá Fram-
köllunarþjónustunni á þessum 30
árum en í upphafi voru þau fyrst og
fremst að framkalla myndir af film-
um en í dag eru myndirnar flest-
ar stafrænar. „Við tókum alveg 15
stór ár í filmuframköllun en svona
um 1997-1998 fór digital að byrja
og tæknin breyttist hratt eftir það.
Filmuvinnslan seig hratt niður og
digital er eiginlega alveg búið að
taka yfir,“ segir Svanur en bæt-
ir því við að hann framkalli enn
eina og eina filmu. „Ég er enn með
filmuvélina gangandi, þó það borgi
sig nú ekki. Ég framkallaði til að
mynda fimm filmur í gær. en svo
það borgi sig að halda filmuvél-
inni gangandi þyrfti ég að fram-
kalla allavega 20 filmur á dag. Ég
ætlaði að hætta með filmuframkall-
anir í fyrra en það voru nokkrir sem
vildu það alls ekki svo ég hef þrjósk-
ast við að hafa vélina í gangi,“ seg-
ir Svanur. Þá segir hann framköll-
unarvinnuna töluvert öðruvísi með
tilkomu stafrænna mynda. „Þetta
hefur auðveldað okkur mikið. Til
að framkalla filmur þarf maður að
kunna allt litrófið vel en maður sér
myndirnar bara negatívar en ekki í
réttum litum. Svo þarf að framkalla
hverja mynd nokkrum sinnum til
að ná réttri lýsingu á henni. Það var
því mikill pappír sem fór bara í rusl-
ið. núna sér maður myndirnar allar
í réttum litum á tölvuskjá og getur
stillt allt áður en maður prentar svo
það er 100% nýting á pappírnum,“
segir hann.
Aukin áhersla
á umhverfisvernd
Fyrst var Framköllunarþjónustan
til húsa við Borgarbraut 11 en flutti
árið 1998 í núverandi húsnæði við
Brúartorg 4. Þar hefur verslun-
in tekið miklum breytingum en
samhliða framkölluninni hafa þau
Svanur og elfa verið með um-
boðssölu af ýmsum vörum í gegn-
um árin. Þau byrjuðu á því að selja
fyrst og fremst vörur sem tengjast
ljósmyndum beint, myndaramma,
myndavélar og annan búnað auk
þess sem Svanur hefur verið að
bjóða upp á passamyndatöku. Spurð
hvort fólk sé enn að láta framkalla
myndir eins og áður segir elfa það
hafa breyst mikið. „Já, fólk er enn
að láta framkalla en á annan hátt.
Í dag erum við með allar myndirn-
ar okkar í símanum og fólk er helst
að láta framkalla stærri myndir eða
myndir á striga eða álplötur. Það er
ekki lengur að láta framkalla allar
myndirnar sínar til að eiga, þetta er
bara í símanum,“ segir elfa. Þá hafa
þau Svanur og elfa verið að auka
áherslu á umhverfisvernd í Fram-
köllunarþjónustunni og hafa þau
til að mynda hætt að bjóða upp á
plastpoka og halda sig aðeins við
bréfboka. „Það hefur verið mik-
ið átak í þessu hér í Borgarbyggð
og við höfum reynt að taka þátt
og höfum minnkað plastið eins og
við getum,“ segja þau. Þar að auki
bjóða þau núna upp á allar vörur í
taupokum. „Svona í tilefni afmælis-
ins ákváðum við að gefa öllum sem
versla hjá okkur fjölnota poka undir
vörurnar á meðan birgðir endast,“
segir elfa.
Bættu nýlega við
prjónavörum
Í Framköllunarþjónustunni er hægt
að fá alls konar gjafavörur og hús-
búnað, úr, myndavélafylgihluti
auk þess sem á síðasta ári byrj-
uðu þau að selja prjónavörur og
garn. „Konan hefur aðeins verið
að breyta þessu í gjafavöruversl-
un,“ segir Svanur og horfir á elfu
sem brosir á móti. „Við tókum til
að mynda inn garn fyrir stuttu því
það bara vantaði hér í Borgarnesi,“
bætir Svanur við. Þau segjast allt-
af hafa reynt að fylgja tíðarandan-
um hverju sinni og bjóða upp á þá
þjónustu sem þau telja vanta í hér-
aðinu. „Við höfum alltaf haldið
okkar stiki með framkallanir en svo
lagað okkur að breyttum aðstæðum
í gegnum tíðina. Þegar við finnum
eftirspurnina reynum við að svara
því,“ segja þau.
arg
Af tilefni 30 ára afmælis Framköllunarþjónustunnar fá allir viðskiptavinir
vörur sínar í fjölnota poka á meðan birgðir endast. Hér afgreiðir Elfa Fanneyju
Hannesdóttur.
Framköllunarþjónustan
í Borgarnesi þrjátíu ára
Svanur Steinarsson og Elfa Hauksdóttir buðu til veislu hjá Framköllunarþjónust-
unni á fimmtudaginn.
Þóra Sif og Sara Dögg Svansdætur ásamt Ólafíu Ellu Guðnadóttur kíktu í afmælis-
veisluna.