Skessuhorn - 20.11.2019, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTóBeR 2019 19
Þriðjudaginn 26. nóvember næst-
komandi stendur Snorrastofa fyrir
kvölddagskrá kl. 19:30 í Bókhlöð-
unni, þar sem mörkuð verða lok
Reykholtsverkefnisins. Það hef-
ur verið undir stjórn Snorrastofu
í 20 ár, allt frá árinu 1999. Reifað
verður hvert mat sé hægt að leggja
á verkefnið og hver framtíð verk-
efna í sama dúr geti orðið. Reyk-
holtsverkefnið er þverfaglegt, al-
þjóðlegt miðaldarannsóknarverk-
efni á sviði bókmennta, fornleifa-
fræði, landafræði og sagnfræði. Það
leiddi saman fjölda fræðimanna og
var þátttakendum ætlað að glíma
við sömu viðfangsefni, Snorra
Sturluson, ævi og störf og Reykholt
í tíð hans. Sameiginlegur rammi
verkefnisins varð hugtakið „mið-
stöð“ og hvernig Snorri hafi mótað
þá miðstöð í Reykholti. Fornleifa-
rannsóknir í Reykholti hafa vakið
mesta athygli verkefnisins, sem var
annars afar fjölþætt og hefur vakið
umræður á mörgum sviðum. Um
það vitnar m.a. margháttuð útgáfa
innan ramma verkefnisins um bók-
menntir, sögu og náttúru, auk forn-
leifa. Á samkomunni verður kynnt
ný bók Guðrúnar Sveinbjarnar-
dóttur, Reykholt í ljósi fornleif-
anna og fram fara pallborðsumræð-
ur þar sem litið verður til fortíðar
og framtíðar.
Fyrst flytur Guðrún Sveinbjarn-
ardóttir fyrirlesturinn, Reykholt
í ljósi fornleifanna og að honum
loknum verða umræður undir stjórn
Bjarna Guðmundssonar á Hvann-
eyri, sem lengi sat í stjórn Snorra-
stofu. Í umræðunum taka þátt
Benedikt eyþórsson sagnfræðing-
ur, egill erlendsson landfræðingur,
Guðrún Gísladóttir landfræðing-
ur, Guðrún nordal forstöðumaður
Stofnunar Árna Magnússonar í ís-
lenskum fræðum, Guðrún Svein-
bjarnardóttir fornleifafræðingur og
Helgi Þorláksson sagnfræðingur.
Aðstandendur Reykholtsverkefn-
isins bjóða til kaffiveitinga á þessum
ánægjulegu tímamótum og enginn
aðgangseyrir verður innheimtur.
Ástæða er til að vekja athygli á að
kvöldið hefst klukkan hálf-átta.
-fréttatilkynning
Þessi mynd Collingwoods prýðir nýju bók Guðrúnar Sveinbjarnardóttur fornleifa-
fræðings.
Reykholtsverkefnið gert upp á
samkomu í Snorrastofu
getum alltaf leitað til kennaranna
ef það vakna spurningar.“
Óákveðið hvar ferðin
muni enda
eins og fyrr segir seldu Ása og
Hallgrímur húsið sitt og búslóð
áður en þau fóru og spurð hvort
það hafi ekki verið erfitt að segja
skilið við allar eigur sínar neita þau
því. „Við tókum frá eitthvað smá-
dót sem okkur þykir vænt um og
komum því í geymslu en annað
seldum við, gáfum eða fórum með
í Búkollu. Þetta eru bara hlutir. en
það sem stendur okkur næst bíður
eftir nýju heimili með okkur,“ segir
Ása og brosir. Sjálf eru þau aðeins
með allra nauðsynlegustu hlutina
með sér á ferðalaginu. „Við erum
bara með handfarangur og lentum
einmitt í smá veseni því við erum
vön að ferðast um evrópu þar sem
má hafa 10 kíló í handfarangri. Hér
í Asíu má bara hafa 7 kíló svo við
þurftum að minnka í töskunum
okkar. Við erum því bara með það
allra nauðsynlegasta, mest föt. Og
svo verðum við bara að reyna að
vera dugleg að nota þvottaaðstöð-
ur á hótelum og nýta vel það sem
við erum með,“ segja þau. Spurð
hvar þau ætli að búa að ferðalaginu
loknu horfa þau hvort á annað í smá
stund og segja svo að það verði bara
að koma í ljós. „Við höfum í raun
ekki ákveðið svo langt fram í tím-
ann. Við erum ekkert viss um að við
viljum koma aftur til Íslands strax
til að búa þar. Gætum alveg hugsað
okkur að finna annað land til að búa
í en það er ennþá allt óráðið og við
vitum í raun ekkert hvað tekur við
þegar þetta ferðalag tekur enda,“
segja þau að endingu. Fjölskyldan
heldur úti bloggsíðunni icetravell-
ers.com fyrir þá sem hafa áhuga á
að fylgjast með ferðalaginu.
arg/ Ljósm. aðsendar
Krakkarnir á syðsta punkti Asíu.
Ása fékk að elda fyrir fjölskylduna í eldhúsi í Chiang Mai í Tælandi.
Systurnar að skoða kisu á kattakaffi-
húsi í Xi‘an í Kína.