Skessuhorn - 20.11.2019, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 20. nóVeMBeR 201924
Pstiill - Geir Konráð Theódórsson
Það kemur fyrir að ég efist um að
ég sé hérna í níger í alvöru. Stund-
um held ég að þetta sé allt einn
stór draumur, ég muni bara vakna
heima í Borgarnesi og átta mig á
því að ég er enn og aftur orðinn of
seinn í vinnuna. Hvernig getur það
verið raunverulegt að ég sé í jakka-
fötum að horfa á bandarískan land-
gönguliða skera tertu með sverði
einn daginn en annan dag er ég
rembast með prjóna við að borða
ólöglegan asna?
Hvort sem þetta er draumur eða
raunveruleiki þá man ég vel eftir
því að áður en ég kom hingað til
nígers þá lét kærastan mig vita að
ég yrði að kaupa jakkaföt, okkur var
nefnilega boðið með góðum fyrir-
vara í 244 ára afmælisveislu land-
gönguliða deildarinnar hjá banda-
ríska hernum. Þessi árlega veisla
er víst fínasti viðburðurinn hérna
í höfuðborginni og ballið sem allir
bíða eftir, og því alveg eðlilegt að
kærastan væri að óska þess að við
myndum mæta þangað fín og flott.
en þið sem kannist við mig í Borg-
arnesi, og hafið kannski hitt mig
á áramótum eða við einhverskon-
ar fínan viðburð heima, þá er lík-
legt að ég hafi náð með monti að
benda á og troða inn í samræðurnar
að ég passa enn í fermingarjakka-
fötin mín, sem eru fyrir tilviljun
einnig einu jakkafötin mín. Þessi
sama montræða fór þó ekki vel í
mína heittelskuðu og þegar ég leit-
aði stuðnings og skilnings til vina
og vandamanna, og sagði að ég ætti
nóg af fínum fötum, þá hristi fólk
bara hausinn. Þau minntu mig á að
ég hefði notað eldrauðar útivistar-
buxur, hvíta skyrtu af eldri bróð-
ur mínum og blátt vesti sem fínan
klæðnað þegar vesalings kærastan
bauð mér árið áður út í óperuna í
Boston. Það kom mér á óvart að
allir voru sammála um að kominn
væri tími fyrir 33 ára gamlan aula
að kaupa sér ný fín föt.
Meirihlutinn hefur kannski rétt
fyrir sér og ég keypti því ný föt áður
en ég fór út. Það var vel þess virði
að gera sig fínan fyrir þessa veislu
því þetta var einstök upp-
lifun á ákveðinni hlið sam-
félagsins hér í landi. Póli-
tískar, trúarlegar, félags-
legar og efnahagslegar að-
stæður hérna í níger eru
gríðarlega flóknar og ég tel
mig hafa hvorki menntun
né nægjanlega reynslu til að
greina ýtarlega frá þeim hér.
eina sem ég get sagt er að
það er erfitt að lýsa tilfinn-
ingunni við að ganga í nýj-
um jakkafötum yfir heitar
sandiþaktar götur, framhjá
bláfátæku fólki og svo inn
í fínasta hótel borgarinnar
þar sem lúxusveisla erlendra
hermanna bíður í loftkæld-
um sal. Það voru mér í huga auð-
vitað margar erfiðar siðferðisleg-
ar spurningar, en ég er líka bara
mannlegur, að horfa á kærustuna
mína í glæsilegum kjól og vera tekið
fagnandi af fínasta fólki borgarinn-
ar kom mér til að brosa og á endan-
um gleyma siðferðislegu erfiðleik-
unum. Ég er kannski hræsnari en
það er stundum bara svo innilega
freistandi að njóta stundarinnar og
þeirra forréttindanna sem ég upp-
lifi hérna. Stundum vill maður bara
njóta og drekka kampavín, borða
sverðskornar kökusneiðar og dansa
fram á nótt með landgönguliðum
og stúlkunni sem maður elskar.
Það kemur mér á óvart hve auð-
velt það var fyrir sérkennilega síð-
hærða Borgnesinginn að blanda
geði við fína fólkið eftir að hann
var kominn í jakkaföt. Breski kon-
súllinn gat ómögulega borið fram
nafnið mitt, konunni sinni til mik-
illar skemmtunar, og ég á endan-
um sagði að þetta væri allt í góðu
og að ég myndi svara fjölbreyttu
nafnakalli, það mætti vera hvers-
konar óargadýra urr, svo lengi sem
það væri greinilegt rúllandi “Rrrr”
í endann. Þetta þótti honum að
minnsta kosti eftirminnilegt því
nokkrum kampavínsglösum síðar
heyrði ég hávært urr. Það kom frá
breska herramanninum sem kall-
aði á mig og dróg mig inn í hóp
heiðursgesta veislunnar, og síð-
an kynnti hann mig auðvitað fyrir
þeim öllum sem Herra GRRRRR!
Ég veit ekki hvort það var urrið,
jakkafötin eða Borgnesingasjarm-
inn, en þetta leiddi til þess að mér
var boðið í sérstakt lúxus bjórkvöld
með bandaríska sendiherranum
síðar í vikunni. Það var einstaklega
skemmtilegt að ræða við hann og
það gladdi mig mikið að komast
að því að hann spilaði Dýflissur og
dreka hlutverkaspilið á yngri árum.
Ég veit ekki alveg hvað mér gekk til
með að gera hlutverkaspil að fyrsta
umræðuefninu við sendiherrann,
en það braut ísinn fyrir gesti bjór-
kvöldsins og allir virtust skemmta
sér vel. en líklegast er ég að upp-
hefja sjálfan mig of mikið hérna í
þessum skrifum. Það að fá
að vera hluti af þessum við-
burðum hefur líklegast ekk-
ert með mig að gera, heldur
er ég bara svo heppinn að fá
að fylgja kærustunni minni
þangað sem henni er boð-
ið. Hún hefur verið hérna í
næstum heilt ár, heillað alla
upp úr skónum og búin að
eignast vini í næstum öllum
af þeim fjölbreyttu hópum
sem til eru hér í niamey.
Ég væri eins og fiskur á
þurru landi, eða hreinlega
bara Íslendingur í eyði-
mörkinni, ef hún hefði ekki
kynnt mig fyrir öllu því sem
níger hefur upp á að bjóða.
Meira að segja hefur hún tengsl við
ólögleg athæfi sem leynast hérna í
borginni. Ég er sonur fyrrum yfir-
lögregluþjóns þannig að mér stóð
ekki alveg á sama þegar ýjað var að
því að brjóta lögin án þess að út-
skýra það nánar. en svo komst ég
að því að okkur var bara boðið í
matarboð hjá kínversku vinafólki
okkar og að glæpurinn væri sá að
aðalrétturinn kvöldsins væri steikt-
ur asni. nei, ég er ekki að meina að
Kínverjarnir ætluðu að bera fram
myrtan hasshaus, heldur er þetta
dýrið asni. Asnar eru mikið notaðir
sem dráttardýr hérna í borginni en
samkvæmt trúarhefðum íslams er
það forboðið eða „haram“ að borða
asnakjöt, og því formlega ólöglegt
að slátra þeim til manneldis hérna
í níger. Mörgum Kínverjum þyk-
ir þó fátt betra en vel eldað asna-
kjöt og því laumast þeir til að slátra
nokkrum öðru hverju, en bara fyr-
ir sérstök leynileg tilefni. Hæfi-
leikaríka kærastan talar reiprenn-
andi kínversku og var því auðvitað
búin að heilla Kínverjasamfélagið
hérna nógu vel til að vera boðið í
leynilegu tilefnin. Asnar eru fínir á
bragðið bara eins og hrossakjöt, en
kjúklingaklærnar komu mér hins
vegar skemmtilega á óvart.
Það er svo sannarlega fjölbreyti-
legt líf hérna í borginni, fólk frá
hinu ýmsu ættflokkum landsins sem
og Vestur-Afríku eru hérna í bland
evrópubúa, Ameríkana, Araba,
Indverja og Kínverja. Aftur kom-
um við að þessum flóknu aðstæð-
um sem felast í því að þessi fyrrum
nýlenda er orðin bitbein stórvelda,
en ef við lítum framhjá pólitíkinni
þá er þetta allt bara fólk. Það er
svo áhugavert að upplifa öll þessi
menningarheimabrot hérna í eyði-
mörkinni og ég hef verið svo lán-
samur að eiga góðar stundir með
ótrúlega ólíku fólki. Við erum ólík
en við erum öll mennsk. Þegar ég
hef rætt hér við fólk, innlent sem
erlent, og spurt hvað það vilji helst,
þá hefur svarið næstum alltaf ver-
ið hið sama. næstum allir hafa ein-
faldlega bara viljað eiga góða stund
með vinum og vandamönnum.
Ég er kannski einfaldur Borgnes-
ingur en þetta finnst mér vera bjart-
sýni kjarninn í fjölmenningunni og
það kemur mér til að brosa.
Geir Konráð Theódórsson
Höf. er Borgnesingur sem elti
ástina til heitasta lands Afríku,
borðar steiktan asna en er samt alls
enginn asni.
Síðdegis á föstudaginn bauð versl-
unin Ljómalind í Borgarnesi, í sam-
starfi við ýmsa framleiðendur sem
þar selja vörur, gestum að koma í
smakkdag. Í boði voru allskyns
krásir sem framleiddar eru í lands-
hlutanum. Má þar nefna krækling,
osta og ís, súkkulaði, nautakjöt,
sveitabjúgu og margt fleira. Margir
litu við meðan ljósmyndari Skessu-
horns staldraði við og var góður
rómur gerður að vöruvali og þess-
ari nýbreytni í skammdeginu. Við
leyfum myndum að tala sínu máli.
mm
Smakkdagur í Ljómalind
Fjölmenning og ólöglegir asnar í Níger