Skessuhorn - 20.11.2019, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 20. nóVeMBeR 2019 25
Um miðjan október fór hópur
úr Grunnskólanum í Borgarnesi
í heimsókn til Spánar í tengslum
við erasmus+ verkefnið enjoyable
Maths sem er samstarfsverkefni
fjögurra landa. Auk okkar og Spán-
verjanna eru Tékkar og Sikileying-
ar með í verkefninu.
Í hópnum voru níu nemendur
úr 8. bekk og þrír kennarar. eft-
ir langan ferðadag komum við til
Antiquera sem er í Andalúsíu á
Spáni. Bærinn er í um 550 m hæð
og þar búa rúmlega 40 þúsund íbú-
ar. nemendur gistu á spænskum
heimilum. Samstarfsskólinn heitir
IeS Pinter José María Fernández
og þar eru kringum 900 nemendur.
Við mættum í skólann á hverj-
um morgni og vorum í skipulagðri
dagskrá mest allan daginn. Meðal
þess sem gert var voru ýmis stærð-
fræðiverkefni í skólanum og utan,
ratleikur um Antiquera, heimsókn
í fornu hellana (aincent dolmens)
sem eru rétt hjá skólanum og heim-
sókn til el Torcal de Antequera sem
er fjallgarður úr steinum.
einnig heimsóttum við nærliggj-
andi borgir s.s. Malaga, Córdoba
sem er jafnfjölmenn og allt Ísland,
og Granada.
Síðasta daginn var elduð risa pa-
ella í skólanum og allir borðuðu,
okkur fannst maturinn þarna mjög
ólíkur því sem við eigum að venj-
ast og flestum nemendunum fannst
hann ekki góður, nema Jóhannesi.
Það er frábært að fá að taka þátt
í svona verkefni, ferðast á framandi
staði, kynnast nýju fólki, nýjum sið-
um og venjum. Þó allir væru ekki
jafnheppnir með heimili fannst öll-
um ótrúlega gaman að taka þátt
í þessu verkefni. Við fórum öll út
fyrir þægindarammann þessa vik-
una og upplifðum alls konar, svona
verkefni eykur m.a. víðsýni og um-
burðarlyndi fyrir öðru fólki, siðum
þeirra og venjum. Auk þess sem við
erum mun betri í ensku eftir ferð-
ina en áður.
Aðalheiður Ella Ásmundsdóttir
Nína Björk Hlynsdóttir
Guðrún Alda Ólafsdóttir
Atli Freyr Ólafsson
Oddný Eyjólfsdóttir
Aníta Björk Ontiveros,
Hinrik Úlfarsson
Jóhannes Þór Hjörleifsson
Valborg Eva Bragadóttir.
Höfundar eru nemendur í 8. bekk
GB
Það var ekki laust við að spennu
gætti meðal gesta sem mættir voru
í Bíóhöllina á Akranesi síðastlið-
ið föstudagskvöld. Framundan var
frumsýning Skagaleikflokksins á
söngleiknum Litlu Hryllingsbúð-
inni, stærsta verkefni sem hið gam-
algróna leikfélag hafði ráðist í svo
árum og jafnvel áratugum skiptir.
Frést hafði að stemningin meðal
leikara og annarra sem þátt tóku í
uppfærslunni hefði verið góð, fyrst
í húsnæði aflagðrar Sementsverk-
smiðju við Mánabraut, en undir
það síðasta á fjölum Bíóhallarinn-
ar. Valinn maður hafði fengist til
að skipa hvert rúm og góður andi
hafði svifið yfir vötnum þær átta
viku sem æfingar og uppsetning á
verkinu höfðu staðið yfir. Valgeir
Skagfjörð var fenginn til að leik-
stýra og margir sem til hans þekkja
vita að hans styrkleiki er að laða
fram það besta í hverri manneskju.
Á föstudagskvöldið var svo komið
að stund sannleikans. Þegar tjald-
ið var dregið frá og fyrsti takturinn
var sleginn.
Verkið um Litlu Hryllingsbúð-
ina er eftir þá Howard Ashman og
Alan Menken en íslensk þýðing
þess var í höndum grínarans Gísla
Rúnars Jónssonar. Sjálfur meist-
ari Megas þýddi svo söngtextana.
Sögusviðið er lítil blómabúð sem í
upphafi verksins má muna má fífil
fegurri. en það átti eftir að breyt-
ast. Músnik gamli sem rekur búð-
ina er við það að fara að loka, þar
sem viðskiptin eru lítil sem eng-
in. Hjá honum starfar hins vegar
tökubarnið Baldur, dáðadrengur
sem jafnframt er aðal sögupers-
óna í verkinu. Hann tekur í fóstur
plöntu nokkra sem ekki er öll þar
sem hún sýnist. Plantan fer fyrst að
nærast, vaxa og dafna, þegar henni
er gefið mannablóð og að endingu
er hún orðin verulega heimtufrek.
Auk blómabúðarinnar er sögusvið-
ið gatan og persónur sem þar haf-
ast við. Leikar færast einnig á tann-
læknastofu. Stúlkan sem starfar við
hlið Baldurs í blómabúðinni er hin
aðal sögupersónan. Hún á ógeð-
felldan kærasta sem kemur við sögu
og er tannlæknir. Ég verð að segja
að ég er þakklátur fyrir hversu ólík
persóna sá sem tannlækninn leik-
ur, er utan sviðs, enda starfar hann
mér við hlið virka daga! en í verk-
inu spila einnig stúlkurnar í göt-
unni stórt hlutverk auk fjölda ann-
arra. Meðal þeirra götusópari, sem
í mínum huga er þessi senuþjófur
sem allar góðar leiksýningar hafa
til að bera, en einnig Stebbi vinur
minn og svo einfaldlega allir hinir.
Tónlist skipar stóran sess í upp-
færslu á Litlu hryllingsbúðinni. Í
leikmyndinni er hljómsveit komið
fyrir á efra sviði og gátu áhorfendur
þannig fylgst með Birgi Þórissyni
og hans mönnum allan tímann. Þar
var einnig Orri Jónsson sem ljáði
plöntunni rödd sína á afar trúverð-
ugan hátt. Plöntunni sjálfri stýrðu
hins vegar tveir aðrir og var sam-
leikur þeirra allra frábær. en verk
sem þetta væri lítils virði án söngs
og þar fær Skagaleikflokkurinn
fimm stjörnur.
Aðalhlutverkin eru í höndum
þeirra Heiðmars eyjólfssonar, sem
leikur Baldur, og Láru Magnús-
dóttur sem fer með hlutverk Auð-
ar. Bæði eru afar góð í túlkun sinni
bæði í söng og leik og ekki síður
söngdívurnar sem fylgja sögupers-
ónum eftir nær alla sýninguna; þær
Ingibjörg ólafsdóttir, Katrín Val-
dís Hjartardóttir, Aldís eir Val-
geirsdóttir og Halla Jónsdóttir. All-
ir stóðu sig með prýði í hlutverk-
um sínum, dansi og túlkun. Alltof
langt mál yrði að nefna alla sem að
verkinu standa, enda koma að þess-
ari uppfærslu hátt í fimmtíu ein-
staklingar. Aðalatriðið fannst mér
að allir stóðu sig vel.
Það er því skemmst frá því að segja
að sýning Skagaleikflokksins var af-
burða góð skemmtun. Á frumsýn-
ingu var aldrei hnökra að finna og
eiginlega fannst mér hábölvað þeg-
ar sýningin var á enda, lokatónarnir
höfðu verið slegnir og halda skyldi
heim í kvöldhúminu. Sjálfur tók ég
margsinnis þátt í uppfærslu leikrita
á árum áður og veit vel hversu mikil
vinna liggur að baki uppsetningu af
þessu tagi. Mér finnst aðdáunarvert
hversu vel Gunnar Sturla Hervars-
son og hans fólk í Skagaleikflokkn-
um tókst upp í þessari metnaðar-
fullu uppfærslu. Hvet ég því alla
sem vettlingi geta valdið að kaupa
miða sér miða og láta ekki menn-
ingarviðburð af þessu kaliberi fram
hjá sér fara. Verkið fær einfaldlega
fimm stjörnur hjá mér, annað væri
ósanngjarnt. Magnús Magnússon.
Erasmus+ heimsókn til Antiquera á Spáni
Hópurinn ásamt fararstjórum.
Þarna er Baldur algjörlega búinn að missa tökin á plöntunni Auði II.
Ljósm. Gunnar Viðarsson.
Litla Hryllingsbúðin frumsýnd í Bíóhöllinni
Fimm stjörnu sýning sem allir ættu að sjá
Valgeiri Skagfjörð var klappað lof í lófa eftir frumsýningu, en hér er hann ásamt
leikurum á sviði Bíóhallarinnar.
Lára Magnúsdóttir í hlutverki Auðar
og Heiðmar Eyjólfsson í hlutverki
Baldurs. Ljósm. Gunnar Viðarsson.
Tannlæknirinn og söngdífurnar í einu atriða í sýningunni.
Ljósm. Gunnar Viðarsson.