Skessuhorn - 20.11.2019, Síða 28
MIÐVIKUDAGUR 20. nóVeMBeR 201928
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Heildsalan Ozon er fyrsta fyrirtæk-
ið hér á landi sem hefur innflutning
á snyrtivörum sem innihalda virka
efnið CBD sem unnið er úr hampi.
Það er Sigurður Hólmar Jóhannes-
son, framkvæmdarstjóri Ozon og
sonur hans Viktor Snær sem standa
á bakvið innflutninginn á vörunum.
Sigurður kynntist CBD fyrst fyrir
nokkrum árum vegna dóttur sinn-
ar sem er með sjaldgæfan tauga-
sjúkdóm sem kallast AHC. „Þetta
er svo sjaldgæfur taugasjúkdóm-
ur að aðeins einn á móti milljón fá
hann. Þetta er ólæknandi sjúkdóm-
ur sem er oft kallaður móðir allra
taugasjúkdóma því hann hefur öll
einkenni allra annarra taugasjúk-
dóma,“ útskýrir Sigurður. „Við höf-
um prófað óteljandi lyf fyrir hana
sem flest virka ekkert en svo kynnt-
umst við CBD vörum fyrir nokkr-
um árum og uppgötvuðum þar hvað
þetta efni er stórkostlegt. Við fór-
um að kynna okkur hampinn betur
og komumst að því að þessi planta
er alveg mögnuð. Það er hægt að
vinna svo mikið úr henni sem ger-
ir okkur gott. Í kjölfarið fórum við
að flytja inn hampvörur og núna
nýlega var leyfður innflutningur á
snyrtivörum sem innihalda CBD
svo við byrjuðum að flytja þær inn
líka. Vonandi verður í framtíðinni
leyfilegt að flytja inn fæðubótaefni
með CBD,“ segir Sigurður.
CBD einstakt efni
Vörurnar sem Sigurður flytur inn
er hægt að kaupa í vefversluninni
www.hempliving.is auk þess sem
Apótek Vesturlands er fyrsta apó-
tek landsins til að setja vörurnar í
sölu. „Þetta eru gæðavörur sem eru
framleiddar af svissneska fyrirtæk-
inu Cibdol. Við erum með alls kon-
ar snyrtivörur; handáburð, vara-
salva, krem við exemi, psoriasis og
bólum. en þetta er bara það sem
við erum að byrja með og ætlunin
er að bæta við vörum,“ segir Sig-
urður. Spurður hvað sé frábrugðið
við vörur sem innihalda CBD seg-
ir hann það fyrst og fremst vera þá
einstöku virkni sem CBD hefur.
„CBD er efni sem bindur sig við
okkar mólikúl og örvar endurnýjun
frumna í líkamanum,“ svarar Sig-
urður og bætir því við að í líkama
okkar séu svokallaðir cb viðtakar
sem taka vel við þessu efni því það
sé náttúrulegt og líkaminn okkar
veit nákvæmlega hvernig hann get-
ur notað efnið, sem á ekki alltaf við
um efni sem búin eru til á tilrauna-
stofum.
Ekki vímugjafi
Þá tekur Sigurður fram að CBD sé
unnið úr iðnaðarhampi sem inni-
heldur aðeins örlítið brot af vímu-
efninu THC. „efnið sem gef-
ur fólki vímu er THC en í iðnað-
arhampi er aðeins um 0,3% THC
á móti um 15-30% sem er í mari-
juana. Svo þegar efnin í iðnaðar-
hampinum eru unnin meira þá er
hægt að taka út THC og í þessum
vörum er alveg búið að taka þennan
vímugjafa úr. Fólk tengir gjarnan
saman vörur með CBD og vímu-
efni og þess vegna hefur verið svona
erfitt að fá leyfi fyrir því að flytja
inn og selja vörur með þessu efni.
Kannabisplantan er bara svo marg-
breytileg og það er margt við hana
sem getur gert okkur mjög gott og
tengist vímugjafanum THC ekki
neitt,“ útskýrir Sigurður. arg
Hvað þýðir sagan um Brák fyrir
sjálfsmynd kvenna og hugmynd-
ina um kvenleika á Íslandi? Þetta
er ein af þeim spurningum sem
velt er upp í samsýningu elísabetar
Haraldsdóttur, Hörpu einarsdótt-
ur, Ingibjargar Huldar Halldórs-
dóttur og óskar Gunnlaugsdótt-
ur í Safnahúsinu í Borgarnesi, sýn-
ingu sem einfaldlega hefur feng-
ið titilinn Brák, eftir fóstru eg-
ils Skallagrímssonar. Þar gefur að
líta breitt svið listrænnar tjáningar;
leirlist, stór akrýl- og vatnslitaverk,
krosssaum, innsetningu og skúlp-
túr. Brák var uppi á 10. öld. en
hún horfði eins og nútímakonan
til fjallanna á Vesturlandi sem hafa
ekkert breyst í tímanna rás.
Konur Íslendingasagnanna eru
yfirleitt sjálfstæðar, megnugar og
viljasterkar. Samt eru þær oft í
fjötrum, ánauð, vegna þess að þær
eru konur. en það syrtir í álinn ef
konur eru líka þrælar, það er eins
og tvöföld ánauð. Þetta gætu ver-
ið hugrenningarnar tengdar sögu
Brákar.
Þrátt fyrir að erfitt sé að gera
sér í hugarlund hvernig Brák hef-
ur verið innanbrjósts, má vera að
þræðir fortíðarinnar myndi teng-
ingar til nútímakvenna á óbeinan
hátt og veki okkur þess vegna til
umhugsunar enn þann dag í dag.
en ambáttin eins og hún birtist á
sýningunni er auðvitað líka miklu
meira en bara þessi ímynd - hún er
styrkur, blíða, sorg og von og lætur
engan ósnortinn.
elísabet Haraldsdóttir er fædd
og uppalin í Reykjavík, er búsett
á Hvanneyri. Hún stundaði nám
við Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands og Universität der Angew-
andte Kunst í Vínaborg auk þess
að hafa kennsluréttindi frá LHÍ.
Hún hefur tekið þátt í fjöldamörg-
um einka- og samsýningum bæði
hérlendis og erlendis. elísabet
hefur verið í samstarfi um rekst-
ur Gallerís Langbrókar og Gall-
erís Meistara Jakobs auk stunda-
kennslu við Myndlista- og hand-
íðaskólann og kennslu og skóla-
stjórnun á Hvanneyri. Hún var
menningarfulltrúi á Vesturlandi í
13 ár, samhliða þess að sinna leir-
listinni.
Harpa einarsdóttir er fædd og
uppalin í Borgarnesi. Hún útskrif-
aðist sem fatahönnuður úr LHÍ
árið 2005 og starfar sem listamað-
ur undir nafninu Ziska. Hún hef-
ur unnið við margvísleg skapandi
verkefni í gegnum árin og haldið
nokkrar einkasýningar á verkum
sínum og tekið þátt í fjölda sam-
starfsverkefna og listahátíða. Harpa
hefur einnig starfað við kvik-
myndagerð og búningahönnun en
einbeitir sér nú alfarið að myndlist
og hönnun fyrir MYRKA.
Ingibjörg Huld Halldórsdóttir
er fædd og uppalin í Borgarnesi og
Stafholtstungum. Hún lærði arki-
tektúr og skipulag í Lyon í Frakk-
landi og við Listaakademíuna í
Kaupmannahöfn, en hefur ein-
beitt sér að listsköpun síðustu ár.
Hún hefur tekið þátt í fjölmörg-
um einka- og samsýningum í Dan-
mörku og hér heima. Ingibjörg
vinnur með faldar eða bannaðar
tilfinningar, skömm, misnotkun
og fráhverfingu í myndverkum
sínum.
ósk Gunnlaugsdóttir er fædd og
uppalin í Reykjavík með annan fót-
inn í Grímsnesinu. Hún lauk BA í
myndlist frá Listaháskóla Íslands
og starfar nú sem myndlistakona
í Reykjavík. ósk vinnur með mál-
verkið sem miðil á óhefðbundinn
hátt. Blandar saman hefðbundnum
burðarefnum málverksins og silki-
prentsins. Leysir hörinn undan
klöfum hins tvívíða forms blind-
rammans, stífar hann og mótar þar
til hann verður að sínu eigin burð-
arvirki. Beygður, bugaður, beygl-
aður, kraminn, kreystur og knús-
aður fær hörinn þrívítt form sem
verður jafnvel að skúlptúr.
Opnun sýningarinnar verður
laugardaginn 23. nóvember klukk-
an 13.00.
-fréttatilkynning
Apótek Vesturlands er fyrsta apótekið til að taka í
sölu CBD vörurnar frá Cibdol
CBD vörur frá Cibdol fást í Apóteki Vesturlands.
Sigurður Hólmar Jóhannesson hjá
Ozon.
Samsýning kvenna með tengingu við Borgarfjörð