Skessuhorn - 20.11.2019, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 20. nóVeMBeR 201930
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvað hefur þú búið í mörg
um sveitarfélögum?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
María Antonia Rodrígues
Í þremur hér á Íslandi.
Árný Lind Árnadóttir
einu.
Líndís Sigurðardóttir
Í þremur.
Ársæll Rafn Erlingsson
Í fimm sveitarfélögum.
Helga S. Pétursdóttir
Tveimur.
Landsbankamót Sundfélags Akra-
ness var haldið í Bjarnalaug þriðju-
daginn 12. nóvember síðastliðinn.
Mótið er haldið ár hvert fyrir sund-
krakka tíu ára og yngri og strax að
því loknu fer fram uppskeruhátíð
sundmanna í Brekkubæjarskóla.
Alls kepptu 36 krakkar á mótinu
og syntu tvær greinar. „Margir
efnilegir og nýir sundmenn sýndu
að þeir hafa náð miklum fram-
förum í vetur og höfðu gaman af
því að sýna foreldrum og öðrum
áhorfendum árangur sinn,“ segir á
vef Sundfélags Akraness.
Að Landsbankamótinu loknu
hófst uppskeruhátíðin. Sundmað-
ur Akraness 2019 er Brynhild-
ur Traustadóttir. Hún vann silfur
í 200, 400, 800 og 1500 m skrið-
sundi á Íslandsmeistaramótin í 25
metra laug. Á Íslandsmeistara-
mótinu í 50 m laug vann hún þrenn
bronsverðlaun; í 200, 400 og 1500
m skriðsundi þar sem hún synti á
nýju Akranesmeti. Brynhildur er
fastamaður í landsliði Íslands og
vann brons á alþjóðlegu sundmóti
í Prag. Hún átti hraðasta sundið í
400 og 800 metra skriðsundi á bik-
armeistaramótinu og náði lágmarki
á norðurlandameistaramótið sem
fram fer í Færeyjum í byrjun des-
ember.
Á vef sundfélagsins segir að
Brynhildur sé mikil fyrirmynd
sem sé dugleg að hjálpa og hvetja
aðra áfram. enda kom Félagabik-
arinn, sem veittur er til minningar
um Arnar Frey Sigurðsson og Karl
Kristinn Kristjánsson, einnig í hlut
hennar að þessu sinni. „Brynhild-
ur er alltaf reiðubúin að aðstoða
aðra og er mikil fyrirmynd fyrir
yngri sundmenn liðsins,“ segir á
vef sundfélagsins.
Ingunnarbikarinn, sem veittur er
fyrir stigahæsta bringusund 12 ára
og yngri, kom í hlut Írisar Önnu
Ingvarsdóttur fyrir 100 m bringu-
sund á tímanum 1.39,16 sek.
Viðurkenningar fyrir bestu
ástundun og framfarir á árinu
hlutu Íris Arna Ingvarsdóttir, Al-
mar Sindri Glad Danielsson, Auð-
ur María Lárusdóttir, einar Mar-
geir Ágústsson, Lára Jakobína
Gunnarsdóttir og enrique Snær
Llorens.
Viðurkenningar fyrir stiga-
hæstu sundin hlutu Arna Karen
Gísladóttir fyrir 50 m skriðsund á
36,30 sek. í flokki meyja, Víking-
ur Geirdal fyrir 50 m skriðsund á
34,75 sek. í flokki sveina, Guðbjörg
Bjartey Guðmundsdóttir fyrir 50
m skriðsund á 28,12 sek í flokki
telpna, Kristján Magnússon fyrir
200 m skriðsund á 2.09,57 sek. í
flokki drengja, Ragnheiður Karen
ólafsdóttir fyrir 50 m bringusund á
35,02 sek. í flokki stúlkna, enrique
Snær Llorens fyrir 400 m skrið-
sund á 4.13,93 sek. í flokki pilta,
Sindri Andreas Bjarnason fyrir 400
m skriðsund á 4.14,42 sek. í karla-
flokki og Brynhildur Traustadóttir
fyrir 400 m skriðsund á 4.22,43 í
kvennaflokki.
kgk/ Ljósm. Sunfélag Akraness.
Skagamenn máttu sætta sig við tap
gegn Val B, þegar liðin mættust í 2.
deild karla í körfuknattleik á föstu-
dagskvöld. Leikið var á Akranesi.
Leikurinn var hraður og mikið
skorað, eins og svo oft áður í vetur
í leikjum Skagamanna. Þegar loka-
flautan gall höfðu gestirnir skorað
skorað 116 stig gegn 97 stigum ÍA
og höfðu því sigur.
Skagamenn hafa fjögur stig í ní-
unda sæti deildarinnar eftir sjö leiki,
tveimur stigum á eftir Reyni S og
tveimur stigum á undan Stál-úlfi,
sem á þó leik til góða í sætinu fyrir
neðan.
næst leika Skagamenn á föstudag-
inn, 22. nóvember, þegar þeir mæta
B-liði ÍR. Sá leikur fer einnig fram á
Akranesi. kgk/ Ljósm. úr safni/ jho.
Íslandsmótið í innanhússfótbolta,
eða Futsal, hófst um síðustu helgi.
Víkingur í ólafsvík tekur þátt í Fut-
salinu eins og áður og spilar liðið
að þessu sinni í D-riðli ásamt Krí-
unni og elliða en Björnin dró sig
úr keppni. Fór þessi fyrri umferð
riðilsins fram í Íþróttahúsi Snæ-
fellsbæjar sunnudaginn 17. nóvem-
ber. Strákarnir í Víkingi mættu vel
stemmdir og unnu báða leiki sína
með góðum mun, skorðu sex mörk
gegn elliða og fengu á sig tvö. Þeir
skorðu einnig sex mörk gegn Kríu
og fengu á sig eitt. Það var svo ell-
iði sem vann Kríuna í síðasta leik
riðilsins og endaði sá leikur 6 - 3.
Seinni umferð riðilsins fer fram 8.
desember í Fylkishöllinni í Reykja-
vík.
þa
Gestirnir höfðu sigur
Víkingur Ó byrjar vel í Futsal
Hluti hópsins sem fékk viðurkenningar fyrir stigahæstu sundin á árinu á uppskeruhátíðinni.
Brynhildur er sundmaður Akraness 2019
Brynhildur Traustadóttir, sundmaður
Akraness 2019, ásamt Kjell Wormdal
sundþjálfara.