Skessuhorn - 11.12.2019, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 11. DeseMbeR 20192
Það þarf vart að minna á að jólin
eru alveg að koma en þó er gott
að minna fólk á að engum þarf að
leiðast í aðdraganda hátíðarinnar.
Það er margt skemmtilegt í gangi
í landshlutanum og má þar sem
dæmi nefna Jólagleði í Garðalundi,
jólaball á Hótel Glym, jólatónleika
í Stykkishólmskirkju og fleira. Upp-
lýsingar um fleiri viðburði má sjá í
döfinni hér aftar í blaðinu.
Á morgun er útlit fyrir norðlæga
átt 13-18 m/s og snjókomu eða él,
en þurrt að kalla á Suður- og Suð-
vesturlandi. Frost á bilinu 2-10
stig. Á föstudag er spáð norðlægri
átt og köldu veðri. Sgöku él norð-
antil á landinu en að mestu bjart
sunnanlands. Á laugardag er spáð
norðaustlægri eða breytilegri átt
og víða bjart með köflum en stöku
él norðvestanlands um kvöldið.
Herðir frekar á frosti. Á sunnudag
er útlit fyrir norðaustlæga átt og
él á víð og dreif og frost 2-12 stig,
kaldast í innsveitum. Á mánudag
er spáð áframhaldandi norðanátt
og snjókomu eða él. en úrkomulít-
ið á sunnanverðu landinu.
Á vef Skessuhorns voru lesendur
spurðir hvort þeir sendi jólakort í
ár. Flestir, eða 58%, ætla að sleppa
því. 26% sögðust ætla að senda
nokkur jólakort og 16% ætla að
senda mörg kort í ár.
Í næstu viku er spurt:
Hvað er það besta við jólin?
Þráinn Ólafsson lætur af störfum
á áramótum eftir 45 ára starf sem
slökkviliðsmaður, þar af 14 ár sem
slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akra-
ness og Hvalfjarðarsveitar. Þráinn
er Vestlendingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Jólablaðið
í næstu viku
VESTURLAND: Miðviku-
daginn 18. desember kemur
Jólablað skessuhorns út. Það
er stærsta blað ársins hjá útgáf-
unni og jafnframt síðasta tölu-
blað ársins. Vegna umfangs eru
lesendur hvattir til að senda
efni tímanlega inn til birtingar,
á netfangið skessuhorn@skessu-
horn.is. Þarf það að berast í síð-
asta lagi föstudaginn 13. des-
ember. sömuleiðis þurfa aug-
lýsingapantanir að berast fyr-
ir sama tímafrest. Netfangið
er: auglysingar@skessuhorn.is
og síminn sem fyrr 433-5500.
Fyrsta tölublað á nýju ári kemur
svo út 8. janúar 2020. -mm
Ölvun við akstur
HVALFJSV: Ökumaður missti
stjórn á bíl á Vesturlandsvegi til
móts við Lyngholt með þeim
afleiðingum að bíllinn valt og
loftpúðar sprungu út. Tilkynn-
ing barst neyðarlínu skömmu
fyrir kl. 18 og fór lögreglubíll
og sjúkralið frá Akranesi á vett-
vang. Þar hitti lögreglan öku-
manninn sem vitist vera und-
ir áhrifum áfengis. Gengið var
úr skugga um að ökumaður-
inn væri ómeiddur og hann svo
handtekinn og farþegi í bíln-
um var fluttur með sjúkrabíl á
HVe. -arg
Kúabændur sam-
þykktu endur-
skoðun
LANDIÐ: Mikill meirihluti
kúabænda, eða 76% þeirra sem
kusu um samkomulag bænda og
stjórnvalda um endurskoðun
nautgripasamnings, samþykktu
samkomulagið. Atkvæða-
greiðslu lauk á miðvikudag-
inn í liðinni viku. Ríflega 22%
bænda höfnuðu samkomulag-
inu. „Já“ sögðu 447 eða 76%.
„Nei“ sögðu 132 eða 22,5%.
Níu tóku ekki afstöðu. ef að-
eins eru teknir þeir sem afstöðu
tóku þá var samkomulagið sam-
þykkt með 77,2% atkvæða. Á
kjörskrá voru 1.332 en atkvæði
greiddu 588, eða 44,1%. At-
kvæðagreiðslan fór fram með
rafrænum hætti en upplýsingar
um samkomulagið eru aðgengi-
legar á vef bændasamtakanna,
bondi.is.
-mm
Veðurhorfur
BOSE
NC 700 ÞRÁÐLAUS HEYRNARTÓL
• Allt að 20 klst. rafhlöðuending
• Google Assistant
• Útiloka umhverfishljóð
7942970100 7942970300 7942970400
52.895
EÐA 4.967 KR. Í 12 MÁNUÐI
Á 0% VÖXTUM - ALLS 59.606 KR. - ÁHK 24.15%
ný varaheyrnartólin á elko.is
þú færð öll bestu
sendum
um land
allt
Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar
var til síðari umræðu í sveitarstjórn
á fundi hennar 26. september síð-
astliðinn.
Áætlað er að rekstrarafgangur
samstæðu A og b hluta verði 123,5
milljónir króna. eigið fé sveitar-
félagsins í árslok er áætlað að verði
3.147,9 milljónir króna og hand-
bært fé í árslok 979,9 milljónir. Af-
borganir langtímalána eru áætlað-
ar 6,5 milljónir á næsta ári, en ekki
er ráðgert að taka ný langtímalán á
árinu.
Útsvarsprósenta var ákveðin
13,69%, sem er talsvert undir há-
marksútsvari sem er 14,52%.
Lóðarleiga í þéttbýli verður 1,0%
af fasteignamati. Álagning fast-
eignaskatts í A flokki verður 0,4%
af fasteignamati og lækkar úr
0,44% frá fyrra ári. Í b flokki verð-
ur hún 1,32% af fasteignamati og
1,65% í C flokki. Gjalddagar fast-
eignaskatts og fasteignagjalda verða
átta talsins, frá febrúar til og með
september og þjónustuskrár hækka
miðað við vísitöluhækkanir, þó
aldrei meira en 2,5% sbr. lífskjara-
samningana svokölluðu.
kgk
Við bakkahvamm í búðardal stend-
ur yfir bygging á fimm íbúða rað-
húsi. Fyrirtækið Hrafnshóll ehf.
stendur að framkvæmdunum sem
hófust um miðjan nóvember.
„Þetta verður einingahús sem mun
rísa nokkuð hratt svo þetta ætti ekki
að taka langan tíma,“ segir Þórður
Már sigfússon, skipulagsfulltrui í
Dalabyggð. stefnt er að því að íbúð-
irnar verði að mestu tilbúnar þegar
steinunn Inga Óttarsdóttir hef-
ur verið skipuð í embætti skóla-
meistara Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á Akranessi. Greint var frá
þessu á föstudag. steinunn er skip-
uð af svandísi svavarsdóttur, sett-
um mennta- og menningarmála-
ráðherra í málinu. skipunartím-
inn er fimm ár, frá og með 1. janú-
ar næstkomandi. Fjórar umsóknir
bárust um embættið þegar það var
auglýst.
steinunn Inga er starfandi fram-
kvæmdastjóri Félags framhalds-
skólakennara og var áður áfanga-
stjóri bóknáms við Menntaskólann
í Kópavogi. Hún hefur meistara-
próf í hagnýtri menningarmiðlun,
diplóma í vettvangsnámi í stjórnun
framhaldsskóla, diplóma í mann-
auðsstjórnun, MA í íslenskum bók-
menntum, M.Paed í íslensku og
lauk kennaraprófi b.ed. árið 1991.
kgk
Raðhús í byggingu í Búðardal
líður á næsta vor eða í byrjun sum-
ars. Hrafnshóll ehf. úthlutar tveim-
ur íbúðum og hinar þrjár verða í
eigu Dalabyggðar, en þær tengj-
ast landsbyggðarverkefni Íbúða-
lánasjóðs. „Tvær íbúðir á vegum
Hrafnhóls eru þegar komnar í al-
menna auglýsingu á fasteignamark-
aðnum. sveitarfélagið hefur fund-
ið fyrir miklum áhuga á íbúðunum
og Hrafnshóll hefur sýnt áhuga á
að koma að öðru svona verkefni í
búðardal ef eftirspurn verður mik-
il,“ segir Þórður.
Í raðhúsinu verða þrjár minni
íbúðir, um 75 fermetrar að stærð,
og tvær stærri, um 90 fermetrar.
„Það er alltaf gaman þegar farið er
í svona framkvæmdir og uppbygg-
ingu í litlu sveitarfélagi eins og okk-
ar,“ segir Þórður og bætir því við að
í deiliskipulaginu sem var samþykkt
fyrir byggingu hússins séu fleiri
lóðir í bakkahvamminum skipu-
lagðar undir íbúðarhúsnæði. „Það
er því alveg nóg af lóðum tilbúnar
í búðardal hafi fólk áhuga á að
byggja. eftir áramót gerum við ráð
fyrir að annað deiliskipulag öðlist
gildi með fleiri lóðum, við borgar-
brautina sem er miðsvæðis í bæn-
um. Það er því alveg nóg af bygg-
ingarlóðum hjá okkur,“ segir Þórð-
ur að endingu.
arg/ Ljósm. kgk.
Raðhús er að rísa við Bakkahvamm í Búðardal.
Steinunn Inga stýrir FVA
Búist við afgangi frá rekstri
Frá Hvalfirði. Ljósm. úr safni.