Skessuhorn - 11.12.2019, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓbeR 2019 19
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Þaktúður•
Hurðastál•
Áfellur•
Sérsmíði•
Viðgerðir•
Málmsuða•
www.blikkgh.is • blikkgh@blikkgh.is • Akursbraut 11b • 431-2288
FJÁRÖFLUNAR BINGÓ FYRIR
ÚTSKRIFTARFERÐ,
NEMENDA FVA
Jóla
1 SPJALD 1000KR
2 SPJÖLD 1500KR
3 SPJÖLD 2000KR
MÁNUDAGINN 16
DESEMBER
KLUKKAN. 19:00
Í SAL FVA
VEITINGAR
VERÐA TIL SÖLU Á
STAÐNUM
FULLT AF
FRÁBÆRUM
VINNINGUM
slökkviliðsins meira en átta þúsund
íbúar og um 500 sumarbústaðir eru
í Hvalfjarðarsveit. Iðnaðarsvæðið á
Grundartanga er síðan sér kapítuli
út af fyrir sig. starfssvæði slökkvi-
liðsins er stórt að flatarmáli og á
góðum sumardegi gætu verið allt
að ellefu þúsund manns innan þess,
ef allt er talið. Þá eru ótalin Hval-
fjarðargöng, sem meira en sjö þús-
und bílum er ekið um á hverjum
degi að jafnaði,“ segir slökkviliðs-
stjórinn. „Óskastaðan er að slökkvi-
lið Akraness og Hvalfjarðarsveit-
ar verði gert að atvinnuslökkvliliði
fyrr en síðar. Miðað við umfangið
þá tel ég að það væri rétt, bæði með
tilliti til íbúafjölda, áhættuþátta og
stærð svæðisins,“ segir hann.
One Seven byltingin
Aðspurður segir Þráinn að stærstu
atburðirnir í tíð sem slökkviliðs-
stjóri hafi báðir átt sér stað árið
2013. Annars vegar þegar Magn-
ús sH brann í skipasmíðastöð Þor-
geirs og ellerts í júlí og hins veg-
ar þegar Trésmiðja Akraness brann
nánast til kaldra kola í septem-
ber. „Þetta voru tveir stórbrunar
á Akranesi á þessu eina ári,“ segir
Þráinn. spurður um mestu breyt-
ingarnar sem hafi orðið í þróun og
búnaði þarf slökkviliðsstjórinn ekki
að hugsa sig um. „Tilkoma One
seven dælukerfanna, sem hófst
hjá okkur þegar við fengum lítinn
bíl með slíkum búnaði árið 2008,
er eitthvert mesta framfaraskref í
slökkvistarfi í lengri tíma. Nýlega
létum við setja svona kerfi í Volvo
dælubílinn okkar og höfum því tvo
bíla með svona kerfum og eitt laust
kerfi,“ segir hann. „Undanfarinn
áratug höfum við æft okkur mikið
og prófað okkur áfram með þenn-
an búnað. Hann er gríðarlega góð-
ur þegar barist er við gróðurelda,
getur kælt rennandi ál, kraumandi
magnesíum og er góður til að berj-
ast við olíuelda líka. Hann hef-
ur gefist mjög vel í húsbrunum og
nú er svo komið að við notum One
seven kerfin til að takast á við um
95% af öllum okkar viðfangsefn-
um. Þegar íbúðarhús á skagabraut-
inni brann í fyrra, þar sem logaði út
um glugga, vorum við milli 12-15
mínútur að slökkva í öllu með þess-
um búnaði. Þetta svínvirkar,“ seg-
ir Þráinn.
Erfitt að ákveða
að hætta
Þráinn varð 67 ára fyrr á árinu og
telur að nú sé góður tími til að stíga
til hliðar. Hann segir að honum
hafi þótt erfitt að taka ákvörðun um
starfslokin. „Þessu var fyrst velt upp
fyrir meira en ári síðan en endan-
leg ákvörðun var tekin í júní í sum-
ar. Það var erfitt skref að taka þessa
ákvörðun, fannst mér, en núna er
ég bara farinn að telja niður dag-
ana, eins og krakkarnir að bíða eft-
ir jólunum,“ segir hann og brosir.
„Núna finnst mér þetta góður tími
til að stíga til hliðar eftir 14 ár sem
slökkviliðsstjóri. Nú er lag að end-
urnýja og fá ferskt blóð í starfið til
að takast á við þær miklu breytingar
sem eru í vændum,“ bætir hann við.
„Ég hins vegar ætla að setjast nið-
ur 31. desember þegar klukkan slær
tólf á miðnætti og fá mér koníak,“
segir Þráinn léttur í bragði. „Hér
hef ég verið vakinn og sofinn, á
bakvakt meira og minna allar helg-
ar ársins. Þetta er mjög bindandi og
virkilega krefjandi, en samviskan er
þannig að maður reynir að sinna því
eftir allra bestu getu. Þó við höfum
reynt að vinna hér þannig að menn
komist í frí og geti hvílt sig þá er
of mikið álag sem fylgir þessu, það
verður bara að segjast eins og er,“
segir slökkviliðsstjórinn.
Ætla að njóta lífsins
en nú styttist í að álaginu verði
létt af Þráni og nýr maður taki við
stöðunni. Á nýju ári vaknar Þráinn
og þarf ekki lengur að leiða hug-
ann að eldvarnareftirliti, forvarn-
arfræðslu eða slökkvistarfi nema
hann langi til þess. Hvað tekur við
hjá Þráni eftir starfslokin? „Ég ætla
að slökkva á boðkerfinu. Ég held að
það verði mestu viðbrigðin að það
verði ekki hægt að ná í mig allan
sólarhringinn, allan ársins hring,“
segir hann og brosir. „Ég og Helga
Jóna, konan mín, erum jafngöm-
ul, bæði 67 ára. Hún hættir líka að
vinna á áramótum og þá höfum við
góðan tíma fyrir okkur. Við eigum
þrjár dætur og átta barnabörn og
ætlum bara að njóta þess að vera til
og gera bara það sem okkur lang-
ar til að gera á meðan við getum,“
segir Þráinn Ólafsson að endingu.
kgk
Slökkviliðsstjórinn með slönguna í fanginu þegar verið var að prófa Volvo
dælubíl slökkviliðsins, sem þá var nýbúið að útbúa svokölluðum One Seven
búnaði. Ljósm. úr safni/ kgk.
Trésmiðja Akraness brennur haustið 2013. Þráinn segir að tveir stærstu
atburðirnir í hans tíð sem slökkvliðsstjóri hafi báðir átt sér stað þetta ár. Annars
vegar trésmiðjubruninn og hins vegar þegar Magnús SH brann í skipasmíðastöð
Þorgeirs og Ellerts í júlí. Ljósm. úr safni/ mm.
Einbýlushús á Skagabraut á Akranesi brann á síðasta ári. Þar segir Þráinn að One
Seven búnaðurinn hafi komið að mjög góðu gagni. Ljósm. úr safni/ mm.