Skessuhorn - 11.12.2019, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 11. DeseMbeR 201922
Á miðvikudaginn í síðustu viku var
jólalegt andrúmsloft á brákarhlíð í
borgarnesi þegar íbúar komu sam-
an og skáru út laufabrauð. Á með-
an gæddu íbúar sér á piparkökum,
mandarínum, jólaglöggi og jólaöli
og Vignir sigurþórsson spilaði jóla-
tónlist. Davíð Árnason, íbúi á brák-
arhlíð, sagðist ekki hafa alist upp
við laufabrauðsgerð en hann hann
og konan hans tóku þennan sið upp
þegar þau fóru að búa. „sauma-
klúbbur konunnar kom alltaf heim
til okkar og við skárum út saman.
Við mennirnir þeirra fengum að
vera með líka,“ segir Davíð og hlær.
Þá sagðist Davíð vera ánægður með
þessa stund á brákarhlíð. „Þetta er
svo notalegt og ég dáist að starfs-
fólkinu hér sem leggur sig alltaf
fram við að gera eitthvað svona fyr-
ir okkur,“ segir hann.
Magnús Guðbjarnarson frá
straumfirði var að skera út laufa-
brauð í fyrsta skipti. „Ég hef aldrei
gert þetta áður og kann þetta ekk-
ert,“ segir hann og hlær, en bætir
við að það sé gaman að fá að prófa
þetta. Guðríður Jónsdóttir lærði
að gera laufabrauð þegar hún var í
húsmæðraskóla á Varmalandi árið
1946. „Ég var ekki alin upp við
þetta. en á Varmlandi var forstöðu-
kona að norðan og hún kenndi
okkur að gera laufabrauð. Ég gerði
svona fyrir mömmu og henni þótti
þetta svo gott svo að ég hélt því
áfram,“ segir Guðríður sem hélt
áfram að steikja laufabrauð fyrir
jólin alla sína búskapartíð. arg
Laufabrauðsgerð á Brákarhlíð
Davíð Árnason bakaði laufabrauð með saumaklúbbi konunnar á sínum tíma.
Magnús Guðbjarnarson var að skera út sín fyrstu laufabrauð í síðustu viku.
Guðríður Jónsdóttir lærði að gera laufabrauð þegar hún var á Varmalandi 1946.
Starfsfólk á Brákarhlíð var í jólaskapi.
Vignir söng og spilaði jólalög.
Það fengu allir jólaglögg eða jólaöl í glas.
Sumir gæddu sér á mandarínum.