Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1967, Síða 14

Hugur og hönd - 01.06.1967, Síða 14
stofnaður haustiö 1879 á Undirfelli í Vatnsdal, og var þar eitt ár. Næsta skólaár er honum komið fyrir á Lækjamóti í Víðidal og tók þá Elín Briem við forstöðukonu- starfinu við Kvennaskóla Húnvetninga. - Hún var eins og allt viturt fólk, kröfu- hörð og ströng við sjálfa sig. Eftir þá reynzlu, sem hún hafði fengið við kennsluna, fannst henni ýmislegt á skorta, hún venti því sínu kvæði í kross og snaraði sér út yfir pollinn. Fór til Kaupmannahafnar og settist í skóla Nathalie Zahle, er þá fór mikið orð af og dvaldi þar í tvo næstu vetur. — Vorið 1883 kom Elín heim aftur og tók við stjórn Kvennaskóla Húnvetninga, sem þá var nýlega fluttur að Ytri-Ey á Skagaströnd. Var það mikið lán fyrir skólann að fá svo vel menntaða konu til forustu, gáfaða hugsj ónakonu, sem allt vildi leggja í sölurnar fyrir skólann sinn. — Enda gerði hún brátt garðinn frægan. - Fyrsta vorið, sem próf voru haldin við skólann á Ytri-Ey, gáfu prófdómendur skólanum þann vitnisburð, að framfarir í skólanum hafi verið mjög miklar og vert sé að minnast þess með sérstöku lofsorði. - Og síðar þóttu það sannindi um Eyjarskóla, að öllum kom hann til nokkurs þroska. — Elín Briem stjórnaði skólanum með miklum myndarskap til vorsins 1895. Það vor giftist hún Sæmundi Eyjólfssyni cand. theol. kennara í Rvík, en hjónaband þeirra varð skamm- vint, ári síðar missti hún mann sinn. - Ekki lá Elín á liði sínu þó hún kæmi til Rvíkur eftir 12 ára erfitt starf við skólann á Ey. Hún stofnaði fyrsta húsmæðra- skóla landsins 1897 og stjórnaði honum fyrstu árin. Hún fékk frændkonu sína Hólmfríði Gísladóttur í lið með sér, var hún fyrst kennari við skólann, en tók við stjórninni þegar Elín hvarf aftur norður fyrir fjöllin og tók á ný við stjórn Kvenna- skóla Húnvetninga 1901, er þá skólinn fluttur að Blönduósi og hefur hann staðið þar síðan. Á þessum árum skrifar Elín Kvennafræðarann. Var það kærkomin bók húsfreyjunum og ennþá er leitað til hans, einkum ef um ísl. matargerð er að ræða.

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.