Hugur og hönd - 01.06.1986, Síða 6
1.
ÞRIR GULLSMIÐIR
Oft er talað um handverks-
menn annars vegar en hins
vegar um listamenn. Og ekki
þykir sjálfsagt að þetta tvennt geti átt
við um sömu persónuna. En á verk-
stæði einu í höfuðborginni eru starf-
andi 3 listamenn sem jafnframt eru
snilldar handverksmenn. Þar vinnur
hver þeirra sjálfstætt að smíðum úr
góðmálmi. Og það sem þarna er skap-
að er sérstætt, enda einstakt að þrír
gullsmiðir, sem hver um sig hefur sinn
persónulega stíl, vinni saman eins og
hér er gert. Afrakstur starfa þeirra er
að finna í tveimur verslunum í Reykja-
vik, við Pósthússtræti 13 og í Suður-
veri við Stigahlíð, þar sem verkstæðið
er einnig til húsa.
Verslanirnar og fyrirtækið bera
nafnið Jens og eigandinn er Jens
Guðjónsson gullsmiður, sem löngu er
orðinn vel þekktur fyrir hönnun sína í
gull- og silfursmíði. Gullsmiðirnir
tveir, sem með honum starfa, eru Jón
Snorri Sigurðsson og Hansína Jens-
dóttir. Þau eru stjúpsonur Jens og
6
dóttir hans og þrátt fyrir ungan aldur
eru þau þegar orðin viðskiptavinum
og listunnendum vel kunn. Samstarfið
er með ágætum og öll leggja þau af
mörkum fullan vinnudag og dugir
ekki alltaf til, því að þegar verkstæði
er rekið og eftirspurn eftir framleiðsl-
unni er töluverð verður að vera til úr-
val hinna ýmsu gripa.
Sérsmíði eða fjöldaframleiðsla
Miklar breytingar hafa orðið á gull-
smíði hérlendis undanfarna áratugi.
íslenska víravirkið var svotil allsráð-
andi lengi vel og varla sást annað. Á
eftirstríðsárunum fór að örla á breyt-
ingu og efnismeiri gripir komu á
markað. Ástand í markaðsmálum hef-
ur hér áhrif eins og annars staðar. Þeg-
ar olíuverð hækkar, hækkar jafnframt
verð á hráefni. Þar sem gull og silfur
eru dýrir málmar hefur þetta að sjálf-
sögðu áhrif á notkun þeirra. Efnis-
minni gripir komast þá í tísku í kjöl-
farið. Við verðlagningu smíðisgripa
verður vinnukostnaður meiri en efnis-
kostnaður og handverkið leggst þar af
leiðandi niður að miklu leyti. Menn
hætta að smíða og innflutningur á
fjöldaframleiddum gripum eykst.
Síðasta olíukreppa hefur haft sín
áhrif svo að undanfarið hafa litlir
skartgripir verið allsráðandi, grannir
hringir, smáir eyrnalokkar o.s.frv. Og
aragrúi af ódýrum innflutningi verið á
boðstólum. Þetta reynir verulega á
gullsmiði sem skapandi einstaklinga.
Þeir eru og verða háðir því hvað selst
af smíðisgripum þeirra. Og eins og
gefur að skilja er ekki unnt að verð-
leggja handunna muni eins og vélunna
fjöldaframleiðslu. Nú er olíuverð
aftur lækkandi og áhrifin þegar að
koma i ljós: Skartgripirnir fara aftur
ört stækkandi.
Jens og Jón Snorri segja frá þvi að
á þeim tuttugu árum, sem þeir hafi
starfað saman, hafi þeir notið þess að
menn séu smám saman að átta sig á
því að gullsmíði sé listgrein. Lands-
menn eru stöðugt að læra betur að
meta góða hönnun og vandað hand-
HUGUR OG HÖND