Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.1986, Qupperneq 16

Hugur og hönd - 01.06.1986, Qupperneq 16
VARÐVEISLA MENNINGARARFSINS róun íslensks þjóðfélags hefur á undanförnum áratugum haft mikil áhrif á flesta lífshætti okkar. Hlutverk heimilanna hefur breyst. Hið aldagamla skipulag og hlutverk fjölskyldunnar hefur tekið stakka- skiptum. Sambúð þriggja eða fjög- urra kynslóða tilheyrir undantekning- um. Algengasta fjölskylduformið er að foreldri eða foreldrar búi með barni eða börnum sínum og þurfi þá auk heimilisstarfa og barnauppeldis að sinna hlutastarfi eða fullu starfi utan heimilisins til að afla nægilegra tekna til framfærslu fjölskyldunnar. Vinnu- álag á foreldrana verður þá oftlega mjög mikið og er oft og tíðum varla mögulegt að þeir geti sinnt öllum þeim uppeldisþáttum sem áður þóttu mikilsverðir og sígildir í uppeldi barna. Hlutverk skólanna hefur breyst jafnhliða þeim breytingum sem hér hefur verið tæpt á. Ýmsir þættir upp- eldis barnanna hafa færst frá heimil- unum til skólanna. Kennararnir þurfa nú, auk venjulegra kennslustarfa, að sinna ýmsum þroskaþáttum barna- uppeldis sem áður var sinnt á heimil- unum af foreldrum, öfum og ömm- um. Ábyrgð kennaranna og mikilvægi kennarastarfsins hefur aldrei verið meiri. Varðveisla menningararfsins hefur ávallt þótt mikil nauðsyn í fámennu þjóðfélagi okkar og reyndar leggja all- ar sjálfstæðar þjóðir mikla rækt við menningararf sinn, bæði í orði og verki. Tunga okkar, saga, bókmenntir og listir hafa verið og munu ætíð verða sterkt haldreipi í óendanlegri baráttu okkar fyrir sjálfstæði og sérstöðu ís- lenskrar þjóðar. Fyrir nokkrum áratugum þegar þjóðfélagsgerðin hér var einfaldari, atvinnuvegir fábreyttir og hefðbundn- ir að mestu, lærðu börnin á heimilun- um undirstöðuatriði þeirra vinnu- bragða sem algengust voru til fram- færslu viðkomandi fjölskyldu og nauðsynlegt var að kunna. Snemma vöndust börn á að skilja þýðingu og gildi vinnunnar, útsjónarsemi, vand- virkni og vinnusemi. Það er viðurkennt að íslendingar hafa alltaf trúað meira á gildi bók- náms en verknáms sem hefur ætíð ver- ið sett skör lægra í hugum flestra en sú þekking sem fæst með bóknámi. Sem betur fer er þetta mat að breytast nú á allra síðustu tímum. Verkmenning og verklegir þættir menningararfsins hafa á ýmsan hátt átt undir högg að sækja í grunnskól- um nú á síðari árum. Ekki er það þó ómerkara en áður að börn kynnist þeim atvinnuháttum og vinnubrögð- um sem þjóðfélagið hefur byggt á um aldir og hafa enn í dag mikið gildi. Ýmsir kennarar hafa, oft þrátt fyrir erfiðar aðstæður, reynt að gefa nem- endum sínum kost á að kynnast vinnubrögðum sem áður voru algeng- ir en eru nú æ sjaldgæfari. Einn þess- ara kennara er Margrét Jakobsdóttir Líndal sem kenndi í mörg ár við Laug- arnesskólann í Reykjavík. Hún lét af störfum snemma vetrar 1984. Margrét hafði þá i rúman áratug kennt tóvinnu við Laugarnesskóla auk hefðbundinn- ar hannyrðakennslu. Tóvinnukennsla Margrétar hefur vakið sérstaka athygli. Hugur og hönd falaðist því 16 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.