Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1986, Page 19

Hugur og hönd - 01.06.1986, Page 19
urinn, sem er á hvítum, fremur smá- gerðum língrunni, er sumpart úr hvítu língarni, sumpart úr mislitu silki, og allur tvíhliða eins og algengast var á handlínum, enda þurftu bæði borð að vera nokkurn veginn jafnvæg. Hand- lína þessi er nú í Þjóðminjasafni ís- lands, þangað komin 1898 frá Kristínu Vídalín Jakobsson,8 konu Jóns Jakobssonar, þáverandi forstöðu- manns safnsins og síðar landsbóka- varðar. Var Kristín afkomandi Hólm- fríðar í fimmta lið,l) og mun handlín- an hafa varðveist með ættinni alla tíð þar til hún fór á safnið. II Handlínan, sem ber skrásetningar- töluna 4524 í safninu, er 58 X 62 cm að stærð. Utan um hana á fjóra vegu er saumað hvítt 1 cm breitt línknipli; innan við það er um 0,3 cm breiður faldur, og ber hvergi á jaðri. Léreftið er nær jafnþráða, með um 18 þræði á cm þvert yfir dúkinn (í uppistöðu?), en 16—17 þræði á cm langsum eftir honum (í ívafi?). Innan við faldinn er á fjóra vegu saumaður bekkur með úr- raks- og úrskurðarsaumi með hvítu língarni; er bekkurinn 5,4 cm breiður til hliðanna, en 5,8 cm til endanna. Fimm ferhyrndir reitir eru á handlín- unni innan við línsaumaða bekkinn: fjórir hornreitir 8,6 X 7,6cmaðstærð og miðreitur 12 x 11,5 cm. Eru þeir saumaðir með nokkrum gerðum af krosssporum, yfir þrjá grunnþræði með silkigarni i fjórum litum: ljós- bláu, bláu, grænu og ljósmóleitu, lík- lega rauðu upphaflega. Munstur horn- reitanna eru stílfærð blóm og hjartar- dýr ásamt skrautbekkjum, en í mið- reitnum er stilfært blómamunstur sett átta fuglum, og auk þess upphafsstaf- irnir fyrrgreindu, sinn í hverju horni. Einfaldur bekkur úr stakstæðum tví- hliða krosssporum umlykur miðreit- inn, stafirnir eru saumaðir með flat- saumi eftir þræði, en nokkrir smá- krókar í skrautbekkjum hornreitanna eru með holbeinsaumi (tvöföldu þræðispori). Fjórir mislitir skúfar eru á handlínunni, unnir úr hör- og silki- garni, þétt settu hnútum; eru skúfarn- ir teknir saman og tengdir, hver við sitt horn, rétt innan við faldinn, með böndum saumuðum úr silki með kappmelluspori. III Eins og sagt var í upphafi eru kross- sporin á handlínunni sérstæð, ef ekki raunar einstæð. Virðist mega greina alls þrjár mismunandi gerðir, en þó með afbrigðum (I a og b, II a og b og III a og b). Á rétthverfunni, þ. e. miðað við falda og bókstafi á dúknum, líkj- ast tvær fyrsttöldu gerðirnar fljótt á litið einna helst gamla íslenska kross- saumnum (fléttusaumi),'» en reyndust við nánari athugun vera náskyldar svonefndum montenegrískum kross- saumi." Þriðja gerðin, einkum fyrra afbrigði hennar, er hvað líkust ítölsk- um krosssaumi.12 Ranghverfa allra sporanna er að sjá sem rétthverfa venjulegra krossspora, nema hvað bein spor liggja ýmist milli þeirra eða utan með einni hliðinni; á einu af- brigðinu (I b) er þó efri leggurinn í krossinum auk þess tvísaumaður. Munsturfletir allir eru með gerð I, unnir að langmestum hluta með af- brigðinu I a, en á nokkrum stöðum hefur þéttara afbrigðið I b verið not- að. Kann það jafnvel að hafa orðið til af þeirri ástæðu að sumt af útsaums- silkinu var það smátt að nauðsynlegt hefur þótt að taka aukaspor til þess að fylla betur flötinn. Þá eru allflestar langar einfaldar beinar sporaraðir einnig saumaðar með aðferð I a. Að- 2. ferð II a virðist einungis hafa verið viðhöfð í tveimur einföldum röðum í einu horni dúksins, efst til hægri mið- að við miðreit, og aðferð II b í einni einfaldri röð, vinstri Ijósmóleitu þver- álmu miðmunstursins. Aðferð III a er að finna í hinum þremur krossálmum miðreitsins, sem og í ýmsum styttri beinum röðum, en aðferð III b í ská- röðum með stökum sporum. Við gerð skýringarmyndanna var sú aðferð viðhöfð að líkja nákvæmlega eftir sporunum í saumi og teikna síðan upp þann gang er gaf rétta útkomu og reyndist hagkvæmastur í framkvæmd. Ekki þótti ástæða til að draga upp fullkomna skýringarmynd af afbrigð- um I b og II b. í fyrra tilvikinu er hálfu 1. Handlína Þorbjargar Magnúsdóttur saumuð af dóttur hennar, Hólmfríði Páls- dóttur. Frá öndverðri 18. öld. Úrraks- saumur, úrskurðarsaumur og nokkrar gerðir af tvíhliða krosssaumi. Lín- og silki- garn í hörléreft. Stærð 58x62 cm. Þjms. 4524. Ljósmynd: Kristján Pétur Guðnason. 2. Miðhluti handlínunnar. Stærð útsaums 12,6x11,8 cm. Ljósmynd: Krisíján Pétur Guðnason. HUGUR OG HÖND 19

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.