Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.1986, Qupperneq 24

Hugur og hönd - 01.06.1986, Qupperneq 24
það sem eftirlíkingaiðnað og þarfir at- vinnulífsins hafa ekki verið inni í myndinni. Gagnrýni, sem skapast í kringum fagskóla, er því ekki til. Af- leiðingin er almennt tómlæti og van- hæfni til þess að velja og hafna og móta persónulega víðsýni. Myndlist — hönnun Kyrrstaða er sama og afturför. Hver er þá leiðin fram á veg? Með tölvu- og myndbandatækni, sem nú er að verða almenningseign, opnast áður óþekkt- ar leiðir til fræðslu, fjarkennslu sem náð gæti til hins breiða fjölda og ef- laust á eftir að koma öllum greinum sjónmennta til góða, ekki síst textíl- greinum eins og prjóni og vefnaði. Þannig gætum við byggt upp fram- haldsnám með ákveðnu markmiði, sem virkjað gæti metnað fólks og gef- ið réttindi í atvinnulífinu. Svo er það Myndlista- og handíðaskólinn. Þang- að sækir fólk með hæfileika og áhuga á hönnunargreinum og stefna hans er í mótun. Vökustaurar nútimans Hin svonefnda íslenska lopapeysa var sú vörutegund sem best seldist í verslun Islensks heimilisiðnaðar, sam- kvæmt ársskýrslu 1985. Nú er það staðreynd að enginn getur framfleytt sér af þeim launum sem greidd eru fyr- ir handprjón á íslandi. Vélarnar hafa fyrir löngu leyst handprjónið af hólmi í þeim skilningi. Fólk kaupir innflutt gæðagarn fráþróuðum iðnríkjum, af- mælt eftir tísku árstíðarinnar og upp- skrift með í pakka, fyrir 4 þúsund krónur og prjónar sjálft. En hand- prjónaða íslenska lopapeysan er seld á tvö þúsund krónur. Það lifir heldur enginn textílhönnuður af þvi að vinna tilraunavinnu á eigin vinnustofu. Dæmið gengur ekki upp. Við erum ennþá á vökustaurastiginu. Hugað að hönnun í Kuopio Þessi áhugaverðu málefni voru til umfjöllunar á 19. þingi norrænu heimilisiðnaðarfélaganna sem grein- arhöfundur sótti í Kuopio í Finnlandi 1.—3. júlí s.l. en yfirskrift þingsins var: „Vöruþróun í heimilisiðnaði, frá hugmynd til framleiðslu? Um efnið var fjallað í fyrirlestrum, með sýning- um allra aðildarlandanna, hópum- ræðum og víðtækri útgáfu- og kynn- ingarstarfsemi. Finnar hafa sem kunnugt er náð mjög langt í hönnun og staðfestu þeir það rækilega á þessu þingi. Greinarhöfundur sat fund rit- nefndafulltrúa frá heimilisiðnaðar- blöðum allra aðildarlandanna og var þátttakandi í umræðuhópi þar sem fjallað var um hönnun og heimilisiðn- að. Finnland, Svíþjóð og Noregur sýndu öll vélunna muni á sýningum sínum og var míkið rætt um notkun véla við heimilisiðnað. Hver metur gæðin? Fram kom gagnrýni á heimilisiðn- 4. aðarfélögin vegna tortryggni og skiln- ingsleysis gagnvart nýjungum, ekki síst vélunum. Rætt var um gæðamat og gæðamerki á vörum sem seldar eru í verslunum félaganna, sérstaklega var rætt um gæðamat á hráefni. Heimilis- iðnaðarfélög Finna, Norðmanna og Svía hafa samstarf við ullarverksmiðj- ur sem framleiða það garn sem þau selja og var árangur af því samstarfi sýndur á sýningum landanna. 24 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.