Hugur og hönd - 01.06.1986, Síða 25
5.
Menning og handverk
Svo var það umræðan eilífa um
handverkið og verðmæti þess í sjálfu
sér. Hvað er það sem borgar sig að
vinna í höndunum í dag og í samfélagi
framtíðarinnar? Hvað er það sem
tölvuvæddur iðnaður getur ekki fram-
leitt fljótt og ódýrt?
Hin fræga finnska textíllistakona
Kirsti Rantanen hefur starfað sem
hönnuður fyrir finnska heimilisiðnað-
inn. Hún var fyrirlesari á þinginu í
Kuopio ásamt landa sínum Bertel
Gardberg, en þau hafa bæði sýnt verk
sín hér á landi. Kirsti Rantanen ræddi
um hlutverk heimilisiðnaðarins og
það að færa verkmenninguna fram á
veg, varðveita hefðina á réttan hátt og
að skilja hana rétt.
Það er ekki hefð að stæla gamlar
fyrirmyndir eða að nota þau efni
sem maður heldur að séu hin réttu.
Hefð er ekki heldur eitthvert gam-
alt skraut og að ummynda það á
rangan hátt er næstum barnalegt.
Hefð er eitthvað miklu dýpra. Hún
er hluti af því hvernig við lifum, töl-
um, syngjum og gleðjumst, grátum
og hlæjum. Hún verður að koma
fram í því sem við gerum. Við verð-
um að skapa nýja hefð núna, í dag,
til þess að gefa komandi kynslóð-
um mynd af okkur sjálfum og sam-
tíma okkar.
Þarfir okkar og aðstæður í okkar
hrjóstruga landi munu áfram kalla á
stöðuga endurnýjun og endurmat.
Nýtt líf — ný hönnun.
Hulda Jósefsdóttir
Heimildir
Textílfélagið 1985.
Hulda Jósefsdóttir: „Norræn prjónahefð
og prjónarannsóknir", Húsfreyjan, 3. tbl.
1985.
Stickat och virkat i Nordisk Tradition.
Österbottens Museum, Vasa, 1984.
Elsa E. Guðjónsson: „Um prjón á Islandiþ
Hugur og hönd 1985.
Dr. Anna Sigurðardóttir: Vinna kvenna í
1100 ár, Kvennasögusafn Islands, Reykja-
vík 1985, bls. 358.
6.
Dr. Stefán Aðalsteinsson: „íslenska ullin,“
Búnaðarrit, 69. árg. 1956, bls. 465—499.
Dr. Stefán Aðalsteinsson: „Litaerfðir í ís-
lensku sauðféþ íslenskar landbúnaðar-
rannsóknir, 2. árg. 1970, bls. 3—135.
Dr. Stefán Aðalsteinsson: „Yfirlit um
rannsóknir á ull og gærum.“ Ráðunauta-
fundur 1986, bls. 56—68.
Inga Pihlhjerta: Vár hemslöjd, sérútgáfa
1986, viðtal við Kirsti Rantanen.
3. Frá sumarsýningu á Kjarvalsstöðum
1981.
4. Kápa, 1979.
5. Tárið, 1983. Hugmynd að kirkjukrossi,
120x34 cm.
6. Á Sprengisandi, 1984. 140x90 cm.
Verkin eru hönnuð og handprjónuð af
greinarhöfundi úr ull í sauðarlitunum frá
íslensku ullarverksmiðjunum.
Ljósmyndir: Leifur Þorsteinsson nr 3 og 4.
Kristján Pétur Guðnason nr 5 og 6.
25