Hugur og hönd - 01.06.1986, Blaðsíða 34
VÖXTUR OG VOR
Við hvert fótmál rifjast upp
sögulegar staðreyndir. I
gömlu hesthúsi á horni Skóla-
strætis og Amtmannsstígs stofnaði
Marteinn myndskeri myndlistarskóla
fyrir löngu síðan. En nú er ég á leið-
inni til hennar Steinunnar dóttur hans
en hún stofnaði keramikskóla í hlöð-
unni á Hulduhólum i Mosfellssveit ár-
ið 1967 og þar er enn heimili hennar,
vinnustofa og sölugallerí. Steinunn er
löngu landskunn fyrir verk sín, bæði
vandaða nytjahluti til brúks í okkar
daglega amstri á heimilum landsins og
verk í opinberri eigu. Kisa tekur á móti
mér við garðshliðið. Steinunn þarf að
hafa kött til þess að halda músunum
frá.
Garðurinn er augnayndi — um-
hverfislistaverk sem þau skópu í sam-
einingu Steinunn og maður hennar,
Sverrir heitinn Haraldsson listmálari.
Hér unnu þau með mold, möl, grasi
og grjóti — og teiknuðu með olíumöl.
Sólin skein og naprir vindar blésu.
Steinunn Marteinsdóttir er veðruð í
lífsins og listarinnar ólgusjó. Hefur
unnið við fag sitt leirlistina í rúman
aldarfjórðung. Fyrst hjá gamla Gliti,
áður en þeir fóru út í stóriðjuna, síðan
á eigin vinnustofu.
Nýlega var afhjúpað í húsi Krabba-
meinsfélags íslands — leitarstöð, verk
eftir Steinunni. Eins er stór vegg-
skreyting eftir hana í húsi Pósts og
síma við Ármúla.
„Mér finnst áhugavert og hvetjandi
að vinna verk inn í ákveðið rými“,
segir Steinunn, „sjá verkið sátt við
umhverfið og gagnkvæmt. Við getum
sem betur fer nefnt mörg dæmi um
þar sem vel hefur tekist til um fegrun
opinberra bygginga. Má þar nefna
verk Sigurjóns Ólafssonar í Búrfells-
virkjun, eins verk Leifs Breiðfjörð í
Fossvogskapellu. Við erum smám
saman að vakna til meðvitundar um
umhverfi okkar, finna vellíðan og stolt
þegar vel tekst til. Finna að umhverfið
getur veitt birtu og yl inn í gráma
hversdagsleikans og auðgað tilveruna.
Listskreytingasjóður ríkisins, sem
starfar samkvæmt lögum frá 1982,
hefur nú þegar haft jákvæð áhrif í
þessa átt. Hönnun mannvirkis og list-
skreytingar geta þannig haldist í hend-
ur frá upphafi. Myndlistarhugtakið
hefur á seinni árum fengið mun víð-
34
2.