Hugur og hönd - 01.06.1986, Side 36
TOPPHÚFUR OG
VETTLINGAR
Þrjár stœrðir: 1—2, 3—5 og 6—8 ára.
Efni: „Álafoss-flos“ sem er 90% ull
og 10°7o angórageitarull (móhár). Fæst
í 50 g hnotum. Fyrir 1—2 ára þarf um
100 g af gulu nr 466 og hluta úr hnot-
um af litum nr 427, 468 og 462. Fyrir
3—5 ára þarf 100 g af bleiku nr 462 og
hluta úr hnotum af litum nr 427, 463,
468 og 466. Fyrir 6—8 ára þarf 100 g
af bláu nr 427 og hluta úr hnotum af
litum nr 463, 462, 466 og 468.
Prjónar: Sokkaprjónar og hring-
prjónn nr 3 Zi.
Prjónfesta: 10x10 = 19 lykkjur og 26
umferðir.
Húfur
Bent skal á strax, að þegar 3 tölur
koma hver á eftir annarri, á sú fremsta
við minnstu húfuna og sú aftasta við
þá stærstu. Byrjað er á toppinum, eins
fyrir allar stærðir. Fitjaðar eru upp 6
lykkjur með aðallit, skipt á 3 prjóna
og prjónað í hring. í 2. umferð er
lykkju aukið í hverja, 12 lykkjur á.
Rétt er til glöggvunar að setja merki
við upphaf umferðar, t.d. öryggisnál
eða mislitan spotta. Nú er 6 lykkjum
aukið í í 4. hverri umferð, á miðju
hvers prjóns og í lok hans. Útaukning-
in er gerð með því að taka upp band
milli lykkja og prjóna í það snúið.
Þegar aukið hefur verið í á þennan
hátt samtals 10-10-11 sinnum frábyrj-
un eiga að vera 66-66-72 lykkjur á og
komnar 38-38-42 umferðir.
Nú er byrjað á tvíbandaprjóni,
stjörnum. Rétt er að vekja athygli á,
að þar sem útaukningar koma milli
stjörnuraða breytist innbyrðis afstaða
stjarnanna frá einni röð til annarrar. Á
munsturteikningunum er sýnt hvernig
byrja á hverja röð. í 39.-39.-43. umferð
er byrjað á að prjóna stjörnurnar eftir
munstri I-II-III og, eins og þar sést,
koma 2 einlitar umferðir (í grunnlit)
milli stjörnuraða. Enn er aukið í 2-3-3
sinnum. Það er gert í seinni einlitu
umferðinni eftir fyrstu 2-3-3 stjörnu-
raðirnar (í 44. og 50.-44. 50. og 56.-48.
54. og 60. umferð). Útaukningin kem-
ur eins og áður á miðju hvers prjóns
og í lok hans. Eftir 50-56-60 umferðir
eru 78-84-90 lykkjur á. Næstu 10 um-
ferðir eru prjónaðar án útaukninga
eftir munstrum og 2-3-3 einlitar um-
ferðir að auki. Síðan eru prjónuð
eyrnaskjól og tunga fram á ennið.
Eyrnaskjól, hægra tnegin: Prjónað
er slétt frá réttu 22-24-25 lykkjur, snú-
ið við, bandinu brugðið um prjóninn
(það er gert hér eftir í hvert sinn sem
snúið er við), 17-19-19 lykkjur brugðn-
ar, snúið við, 16-18-18 lykkjur sléttar,
snúið við, 15-17-17 brugðnar, snúið við
o.s.frv. þar til ein lykkja er brugðin,
oddalykkjan. Slitið frá. Nú er rétt að
taka hringprjóninn og geyma á hon-
um lykkjur og bönd meðfram eyrna-
36