Hugur og hönd - 01.06.1986, Side 39
umferð. Aukið er í á miðju hvers
prjóns og í lok hans með því að taka
upp band milli lykkja og prjóna í það
snúið. Þegar aukið hefur verið í 6 sinn-
um á þennan hátt eru 80 lykkjur á. í
7. skiptið er aðeins 4 lykkjum aukið í,
1 á hverjum prjóni, 84 lykkjur á. Eftir
eina umferð i viðbót eiga að vera
komnar 20 grænar umferðir frá síð-
asta munsturbekk. Nú er prjónaður
munsturbekkur, 20 umferðir grænar
og annar munsturbekkur. Þá er enn
prjónað með grænu og 7 lykkjur tekn-
ar úr í 1. umferð með því að prjóna 11.
og 12. hverjalykkju saman, 77 lykkjur
á. 2. umferð er slétt frá röngu og 3.
slétt frá réttu. Felldar eru nú af 8
lykkjur (prjónað slétt frá röngu), 16
næstu lykkjur prjónaðar sléttar og
geymdar, síðan eru felldar af þær
lykkjur sem eftir eru (53). Slitið frá.
Næst er prjónað langt eyrnaskjól,
sem jafnframt er annar endi trefils.
Fitjaðar eru upp 16 lykkjur með
grænu og síðan prjónað slétt í geymdu
lykkjurnar 16. Prjónað er í hring í
þessar 32 lykkjur, þar til komnar eru
20 umferðir frá síðasta munsturbekk.
Þá er prjónaður munsturbekkur og 20
umferðir grænar til skiptis, þar til
komnir eru 3 munsturbekkir. Eftir
þann síðasta eru 14 grænar umferðir
og síðan teknar 8 lykkjur úr í 2. hverri
umferð (2 á hverjum prjóni) þar til
eftir eru 8 lykkjur. Bandið er þá slitið
og dregið í gegnum lykkjurnar.
Gengið er frá öllum lausum endum,
garðarnir neðst á húfunni saumaðir
saman að aftan og opi innan á eyrna-
skjóli lokað. Síðast eru gerðar tvær
snúrur, um 20 cm langar, úr tvöföldu
bandinu (fjórfalt í snúrunum), fjórir
smáskúfar búnir til úr öllum litunum
(sjá leiðbeiningar) og festir á enda
snúranna, sem eru saumaðar um
miðju við trefilendana.
Vettlingar
Fitjaðar eru upp 40 lykkjur með
grænu og prjónaðir 2 garðar (3 um-
ferðir sléttar fram og tilbaka) og síðan
2 umferðir sléttar í hring á 4 prjóna.
Næst er prjónaður munsturbekkur og
síðan 9 umferðir grænar. í grænu um-
ferðunum eru 4 lykkjur teknar úr í 3.
hverri umferð (1 í byrjun hvers
prjóns), 28 lykkjur á. Þá eru prjónað-
ar 5 umferðir brugðningar, 1 lykkja
slétt og 1 brugðin, síðan aftur slétt
prjón og 4 lykkjum aukið í í 1. umferð,
32 lykkjur á. Eftir 10 umferðir sléttar
er mislitur spotti prjónaður í fyrir
þumalgat. Á hægra vettlingi er þumal-
spottinn prjónaður í 2.—6. lykkju á 3.
prjóni, á vinstri vettlingi er hann
prjónaður í 3.—7. lykkju á 2. prjóni.
Prjónaðar eru áfram 12 umferðir og
síðan tekið úr: 1. prjónn; 1 slétt, 2
saman og 5 sléttar. 2. prjónn; 5 sléttar,
1 óprjónuð, 1 slétt, óprjónuðu steypt
yfir og 1 slétt. 3. prjónn er eins og 1.
og 4. prjónn eins og 2. Eftir fyrstu úr-
tökuumferð eru prjónaðar 3 umferðir
sléttar, siðan 2 og 1, loks er tekið úr í
hverri umferð þar til eftir eru 4 lykkj-
ur, spottinn slitinn og dreginn í gegn-
um lykkjurnar.
Þumalspottinn er nú rakinn úr og 9
lykkjur settar á 3 prjóna. í 1. umferð
eru prjónaðar upp 2 lykkjur í hvoru
viki og 2 þeirra teknar úr aftur í 3. um-
ferð, 1 hvorum megin. Prjónaðar eru
12 umferðir, þá teknar úr 3 lykkjur,
prjónuð 1 umferð og síðan 2 teknar
saman þar til eftir eru 3 lykkjur. Spott-
inn slitinn og dreginn í gegn.
Garðaprjónið efst er saumað sam-
an og gengið frá lausum endum. Síð-
ast er gerður lítill skúfur og festur í
totuna. Húfa og vettlingar eru undin
upp úr volgu vatni og lögð slétt til
þerris.
Hönnun: Herborg Sigtryggsdóttir
Tákn:
Munsturbekkur r-r
Framhald af bls. 37
upp úr volgu vatni og lögð slétt til
þerris.
Skúfar
Undið er með öllum litum í húfunni
í einu utan um þveran eldspýtustokk,
svo oft að endarnir verði um 60 þegar
klippt hefur verið upp úr. Ef undið er
t.d. með 5 litum þarf að fara 6 sinnum
utan um stokkinn. Þráðunum er
smeygt ofan af stokknum og síðan
undið með aðallit nokkrum sinnum
inn í lykkjuna, allþétt. Þá er klippt
upp úr þannig að vafningurinn komi á
miðju, brotið saman um miðju og
aftur vafið fast með aðallit rétt neðan
við fyrri vafning. Ef bandið vill renna
í sundur er gott að snúa upp á það með
nálinni. Siðast er endinn dreginn und-
ir vafninginn með nál og skúfurinn
snyrtur með skærum.
Hönnun: Herborg Sigtryggsdóttir
Ljósmyndir: Kristján Pétur Guðnason.
Grænt nr 463
Appelsínugult nr 468
Gult nr 466
HUGUR OG HÖND
39