Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1986, Blaðsíða 45

Hugur og hönd - 01.06.1986, Blaðsíða 45
lagt slétt til þerris. Ef garnið er mjög hált, t.d. silki, er æskilegt að bleyta sýnishornið tvisvar til þess að fá ná- kvæmari útkomu. Sýnishornið sem hefur fallegustu áferðina er síðan not- að til að mæla prjónfestu og út frá henni er reiknaður lykkju- og um- ferðafjöldi. Dæmi: Prjónað er sýnishorn fram og aftur úr ullargarni á prjóna nr. 5, með munstri sem í eru 4 lykkjur (vöffluprjón). Prjónað er eins og fyrra dæmið hér á undan segir til um. Lykkjur eru taldar á 10 cm, þær reyn- ast 12, þ.e. 1,2 lykkja á 1 cm. Eins eru taldar umferðir á 10 cm, sem reynast vera 36, þ.e. 3,6 umferðir á 1 cm. Gott er að byrja að reikna út lykkjur og um- ferðir á bakstykki. Yfirvídd peysu skal vera 118 cm. 118 : 2 = 59 cm er hálf yfirvídd 59 x 1,2 = 70 lykkjur 70 -r 2 (jaðarlykkjur) = 68 lykkjur 68 : 4 (lykkjur í einu munstri) = 17 munstur. Síddin er ákveðin 55 cm, sem er fremur stutt peysa, þar af eru 3 cm í líningu neðst og 2 cm í garðaprjón efst á öxlum. Munstrið prjónast því 50 cm. 50 X 3,6 = 180 umferðir. Oftast er brugðning eða líning af einni eða annarri gerð neðst á peysum og framan á ermum. Prjóna skal brugðninguna á 1—2 númerum fínni prjóna en notaðir eru á bolinn. Oftast eru hafðar faérri lykkjur en í yfirvídd- inni. Fer sá lykkjufjöldi eftir því hversu þétt brugðningin á að vera og einnig eftir prjónaðferð og grófleika garnsins. Nokkuð hæfileg útaukning ofan við brugðningu á bol er á bilinu 12—14 lykkjur á hverjar 100 lykkjur. Jafnar úrtökur og útaukningar (t.d. á ermum) reiknast út frá umferða- fjölda. Dæmi: Prjónfesta á 10x10 cm er 12 lykkjur og 36 umferðir (vöffluprjón). Ermi skal vera 42 cm löng: 42 x 3,6 = 151 umferð. Víddin ofan við brugðn- ingu er 26 cm: 26 X 1,2 = 32 lykkjur. Víddin efst er 52 cm: 52 x 1,2 = 62 lykkjur. Þá eru auknar í: 62 -=- 32 = 30 lykkjur jafnt upp ermina (þ. e. 2 lykkjur eru auknar í sömu umferð á undirermi 15 sinnum). I (151 umferð : 15 =) 10. hverri umferð er aukið í. Þegar framstykki er prjónað skal styðjast við útreikninga sem gerðir voru á bakstykki. Þvi er mjög gott að hafa bakstykkið fullprjónað áður en byrjað er á framstykki. Það auðveldar að staðsetja vasa, reikna út hálsmálið o.s.frv. Vanda þarf vel allan frágang á prjónlesi, þ.e. ísetningu erma, sam- setningu og líningar. Góður frágangur skiptir fullt eins miklu máli og vel prjónuð flík. Að lokum hygg ég að lesendur geti verið mér sammála um að prjónið er heillandi handmennt — að lykkja garnið um sjálft sig og búa þannig til voð sem hefur verið okkur ylgjafi og augnayndi um aldir og mun verða um ókomna tíð. Ragna Þórhallsdóttir 1. Nærmynd af vöffluprjóni. Ljósmynd: Kristján Pétur Guðnason. Suöurveri Stigahlíö 45—47 Pósthússtræti 13 viö Austurvöll Sími 12392 hugur og hönd 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.