Hugur og hönd - 01.06.1986, Síða 46
JAKKI MEÐ
VÖFFLUPRJÓNI
Stcerð: 38—42.
Efni: „Álafoss-flos“ sem er laust
spunnið band, 90% ull og 10%
angórageitarull (móhár). 300 g hvítt
og 300 g svart. 2 tölur.
Prjónar: Langir prjónar nr 4 og 5.
Prjónfesta: 10x10 cm vöffluprjón á
prjóna nr 5 = 12 lykkjur, þ. e. 1 cm =
1,2 lykkja, og 36 umferðir (18 umferðir
teljanlegar á röngu), þ. e. 1 cm = 3,6
umferðir. 10x10 cm garðaprjón á
prjóna nr 4 = 15 lykkjur og 30 um-
ferðir (15 garðar).
Ath. Vöffluprjón, sem er á bol, gef-
ur mun betur eftir en garðaprjón á lín-
ingum. Því þarf ekki að hafa færri
lykkjur á líningum heldur einungis
finni prjóna.
Vöffluprjón: Lykkjufjöldi þarf að
vera deilanlegur með 4.
1. umferð (ranga): 1 lykkja slétt (jað-
arlykkja), *1 lykkja slétt, slegið upp á
prjóninn, næsta lykkja tekin óprjón-
uð og farið inn í lykkjuna eins og eigi
að bregða*. Endurtekið frá *að* og
endað á 1 lykkju sléttri (jaðarlykkju).
2. umferð (rétta): 2 lykkjur sléttar,
*bandið tekið óprjónað sem fyrr, 2
lykkjur sléttar*. Endurtekið frá *að*
og endað á 2 lykkjum sléttum.
3. umferð: 1 lykkja slétt, *slegið upp á
prjóninn, 1 lykkjatekinóprjónuðsem
fyrr, band og lykkja prjónuð slétt
saman*. Endurtekið frá *að* og endað
á 1 lykkju sléttri.
4. umferð: 1 lykkja slétt, *2 lykkjur
sléttar, bandið tekið óprjónað sem
fyrr*. Endurtekið frá *að* og endað á
1 lykkju sléttri.
5. umferð: 1 lykkja slétt, *band og
lykkja prjónuð slétt saman, slegið upp
á prjóninn, 1 lykkja tekin óprjónuð
sem fyrr*. Endurtekið frá *að* og end-
að á 1 lykkju sléttri.
2., 3., 4. og 5. umferð eru endurteknar.
I— 18cm —(— 17cm 1— 18 cm
Garðaprjón: Prjónað slétt frá réttu og
röngu.
Bak: Allir útreikningar eru sýndir inn-
an sviga. (59 cm X 1,2 = 70 + 2jað-
arlykkjur = ) 72 lykkjur fitjaðar upp
með svörtu á prjóna nr 4. Prjónaðar
eru 6 umferðir garðaprjón, þá vöfflu-
prjón með hvítu á prjóna nr 5, 29 cm
mælt frá uppfitjun. Handvegur:
Felldareru af (5 cm X 1,2 =)61ykkjur
hvorum megin, 60 lykkjur á. Hand-
vegur er prjónaður upp 24 cm. Garða-
prjón er prjónað yfir (18 cm X 1,2 =)
21 lykkju á hvorri öxl, 4 umferðir. Fellt
af á öxlum. 18 miðlykkjur eru geymd-
ar.
Hægraframstykki: (45 cm x 1,2 = 54
+ 2 jaðarlykkjur =) 56 lykkjur fitj-
aðar með hvítu á prjóna nr 4. Garða-
prjón prjónað — hnappagat er gert í
3. umferð þannig: Prjóna 36 lykkjur,
46
HUGUR OG HÖND