Hugur og hönd - 01.06.1986, Síða 50
HEIMILISIÐNAÐARÞING
ÍFINNLANDI 1986
Norrænt heimilisiðnaðarþing,
það 19. í röðinni, var haldið í
Kuopio í Finnlandi 1.—3. júlí
s.l. Þessi þing eru haldin þriðja hvert
ár en dagskrá þeirra undirbúin á
tveimur stjórnarfundum sem haldnir
eru milli þinga.
Þingið fór fram í tónlistar- og ráð-
stefnuhúsi, nýju og fallegu, sem var
tekið í notkun fyrir tæpu ári. Er óhætt
að segja að öll aðstaða fyrir sýningar
og fundi hafi verið mjög góð. Að
venju var hvert land með sýningu á
sínum heimilisiðnaði. Finnar fengu
arkitekt til að skipuleggja sýningar-
svæðið og að margra dómi fékkst með
því fallegri og samstæðari sýning en
oft áður á þessum þingum.
Danir sýndu muni úr horni og beini
og „Hedebo“saum. Færeyingar komu
með ýmiss konar bönd, gerð með mis-
munandi aðferðum og sýndu hvernig
þau eru notuð, t.d. á þjóðbúningum
þeirra. Aðalverkefni finnska félagsins
voru munir úr skinnum og steinum
sem þeir leggja áherslu á i sínum heim-
ilisiðnaði um þessar mundir. Heimilis-
iðnaðarfélag íslands sýndi ullarflíkur
með útprjóni (gataprjóni), gamlar og
50
nýjar. HÍ sýndi einnig muni unna úr
hrosshári. Þeir elstu voru fengnir að
láni úr Þjóðminjasafninu, en sá
nýjasti, ofið veggteppi, gert síðast lið-
inn vetur. Noregur var með 4 verkefni.
Flókagerð, munstrað vélprjón, ýmiss
konar hnífa og trémuni, fagurlega
gerða. „Nýr fatnaður byggður á gam-
alli hefð“ var yfirskriftin á aðalverk-
efni sænska félagsins. Útkoman var
mjög áhugaverður og fallegur klæðn-
aður. Stór hluti sýninganna var sam-
einaður í eina farandsýningu sem fer
til allra Norðurlandanna og verður hér
í maí 1987.
Hér verða nefnd nokkur atriði úr
dagskrá þingsins. Eftir hátíðlega þing-
setningu, að morgni 1. júlí, voru flutt
tvö mjög fróðleg erindi um þróun og
hönnun í heimilis- og listiðnaði. Það
gerðu háskólakennararnir Bertel
Gardberg og Kirsti Rantanen. Seinna
sama dag voru sýningardeildirnar
kynntar með stuttum erindum og
myndasýningum. Næsta dag störfuðu
6 umræðuhópar um fyrirfram ákveð-
in málefni.
Eins og kom fram í Hug og hönd
1985 var íslandi úthlutað að hafa fram-
sögu og stjórna þeim hópi sem ræddi
um kennslumál. Hildur Sigurðardótt-
ir annaðist það verkefni. Daginn eftir
sögðu stjórnendur umræðuhópanna
frá því helsta sem fram hafði komið.
Síðan voru almennar umræður.
Þinginu lauk með hófi 3. júlí, þar
sem Svíþjóð tók við formennsku í
norrænu heimilisiðnaðarsamtökun-
um fyrir næstu 3 árin. í hófinu voru 5
manns sæmdir æðsta heiðursmerki
finnska félagsins. Það voru þau Per
Vale, formaður frá Noregi, Ingegárd
Oskarsson, formaður sænska sam-
bandsins, Stefán Jónsson, fyrrverandi
formaður H.Í., Folmer Bukh, skóla-
stjóri, Kerteminde, og Ib Solvang,
starfsmaður danska heimilisiðnaðar-
félagsins. Þetta fólk hefur allt starfað
árum saman að heimilisiðnaðarmál-
um í sínu heimalandi og einnig verið
virkt í norrænu samstarfi.
Næsta þing verður haldið í Svíþjóð
1989 á Hótel Selma Lagerlöf í Verma-
landi.
Jakobína Guðmundsdóttir
1. Frá sýningu á norrænu heimilisiðnaðar-
þingi í Kuopio í Finnlandi 1986.
Ljósmynd: Kristín J. Schmidhauser.
HUGUR OG HÖND
I