Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1986, Side 54

Hugur og hönd - 01.06.1986, Side 54
Heimilisiðnaðarskólinn r Avetri komanda, 1986—87, verður Heimilisiðnaðarskól- inn starfræktur á sama grundvelli og áður með mislöngum námskeiðum í hinum ýmsu handíða- greinum. Flest námskeiðin eru kvöld- námskeið, fer kennslan oftast fram frá kl. 20—23. Á nokkrum námskeiðum hefst kennslan um kl. 17 og stendur yfir í 2—3 klst. Nemendur mæta 1—3 sinnum í viku eftir því hvert námskeið- ið er. Á þessu sést að nýting húsnæðis- ins er lítil að deginum en það er bein afleiðing af því að næg aðsókn hefur ekki fengist á morgun- og dagnám- skeið og virðist engin breyting í aðsigi á því. Hugmyndir um aukna nýtingu húsnæðis hafa komið fram en eru enn á umræðustigi. Skipulag námskeiða er þannig að lögð er áhersla á að veita undirstöðu- þekkingu í hverri námsgrein, s.s. á hægustum handtökum, vönduðu efni og áhöldum og, eftir því sem tök eru á, þáttum úr sögu greinarinnar. Jafn- framt er leitast við að opna augu nem- enda fyrir samræmi lita og forms og gildi góðrar hönnunar í allri fram- leiðslu. Lengstu námskeiðin eru í almenn- um vefnaði, 99 kennslustundir. Þar er m.a. reynt að leggja áherslu á uppsetn- ingu með því að hver nemandi setur upp 2—4 sinnum mismunandi vefi og vefur niður. Mörg framandi heiti, orð og orðasambönd eru notuð um og í vefstólum og vefnaði. Tengist fagið þannig beint og óbeint íslensku máli og menningarsögu. Þetta getur reynd- ar átt við margar fleiri greinar, því að í skólanum er leitast við að varðveita gömul íslensk vinnubrögð á sviði heimilisiðnaðar og finna þeim jafn- framt stað í nútímanum. Má þar nefna greinar eins og tóvinnu, baldýringu, jurtalitun, tréskurð, spjaldvefnað, knipl, þjóðbúningasaum o.fl. Þó fæstar þessara greina séu kenndar annars staðar en í Heimilisiðnaðar- skólanum gengur oft misjafnlega að ná inn nægum nemendafjölda. Heim- ilisiðnaðarskólinn leggur þó áfram metnað sinn í að halda við þessum þjóðlegu greinum. Við skólann starfa á hverjum vetri 12—15 stundakennarar, áhugasamir 54 og vel menntaðir. Inntökuskilyrði til náms í skólanum eru engin og engar kröfur gerðar til prófa. Vottorð um námið eru afhent þeim sem óska og hafa nýst mörgum sem viðurkenning á aukinni fagþekkingu eða sem þáttur í námi á list- og verkmenntabrautum framhaldsskóla. Skólinn er allvel búinn tækjum, á öll nauðsynleg verkfæri fyrir hverja grein, svo að nemendur þurfa ekki að taka með sér annað en smááhöld eins og nálar, prjóna, skæri og málbönd. Efni að einhverju marki er einnig fyrir hendi í skólanum. Efni í fyrsta sýnis- horn er oftast innifalið í kennslu- gjaldi. Nemendafjöldi á hverju nám- skeiði er aldrei meiri en 10, í sumum greinum eru aðeins 8 og í einu 6 (þjóð- búningasaum). í fyrra voru haldin samtals 35 nám- skeið og sóttu þau 270 nemendur. Kennarar voru 12 auk skólastjóra. Eftir aðalfund 1986 varð sú breyting á skólanefnd að Elínbjört Jónsdóttir, sem setið hefur í skólanefnd og verið formaður frá upphafi, vék þaðan, mátti ekki sitja lengur samkvæmt lagabókstafnum. Hildur Sigurðar- dóttir handavinnukennari hvarf einn- ig úr skólanefnd. í þeirra stað komu Hildur M. Sigurðardóttir smíðakenn- ari og Ragnheiður Thorarensen handavinnukennari. Þórir Sigurðsson tók að sér formennsku í nefndinni. Sigríður Halldórsdóttir NÁMSKEIÐ HEIMILISIÐNAÐAR- SKOLANS VETURINN 1986- -1987 Prjón 4. Tauþrykk 7. okt.—11. nóv. 1. Sokka- og 5. Tauþrykk 3. mars—7. apríl vettlingaprjón 6. nóv.—4. des. 6. Tréskurður 8. sept.—6. okt. 2. Hyrnur og sjöl 23. febr.—23. mars 7. Tréskurður 8. okt.—5. nóv. 3. Prjóntækni 8. sept.—13. okt. 8. Tréskurður 10. nóv.—8. des. 4. Prjóntækni 27. okt.—1. des. 9. Tréskurður 7. jan.—4. febr. 5. Prjóntækni 5. jan.—9. febr. 10. Tréskurður 9. mars—6. apríl 6. Dúkaprjón 5. febr.—5. mars 11. Tréskurður 22. apríl—20. maí Vefnaður 1. Myndvefnaður 2. Myndvefnaður 3. Myndvefnaður 9. sept.—11. nóv. 25. nóv.—10. febr. 3. mars—19. maí 12. Tóvinna 13. Leðursmíði 14. Leðursmíði Saumur 2. febr.—23. mars 4. okt.—22. nóv. 7. febr.—28. mars 4. Vefnaður börn 11. okt.—29. nóv. 1. Bótasaumur 14. okt.—2. des. 5. Vefnaður börn 7. febr.—28. mars 2. Bótasaumur 13. jan.—3. mars 6. Vefnaður byrj. 8. sept.—27. okt. 3. Tuskubrúðugerð 14. okt.—4. nóv. 7. Vefnaður byrj. 3. nóv.—12. jan. 4. Tuskubrúðugerð 11. nóv.—2. des. 8. Vefnaður byrj. 19. jan.—9. mars 5. Tuskubrúðugerð 13. jan.—3. febr. 9. Vefnaður byrj. 16. mars—14. maí 6. Tuskubrúðugerð 10. febr.—3. mars 10. Brugðin bönd 8. okt.—12. nóv. 7. Baldýring 18. sept.—13. okt. 11. Spjaldvefnaður 5. febr.—26. mars 8. Þjóðbúninga- 12. Vefnaðarfræði 6. okt.—24. nóv. saumur 3. okt.—5. des. 13. Vefnaðarfræði 19. jan.—9. mars 9. Þjóðbúninga- Ýmis námskeiö 10. saumur Fatasaumstækni 6. febr.—10. apríl 1. okt.—29. okt. 1. Jurtalitun 9. febr.—5. mars 11. Fatasaumstækni 12. nóv.—10. des. 2. Knipl 11. okt.—29. nóv. 12. Fatasaumstækni 14. jan.—11. febr. 3. Knipl 7. febr.—28. mars 13. Fatasaumstækni 4. mars—1. apríl HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.