Hugur og hönd - 2019, Síða 65
2019 HUGUR OG HÖND 65
Uppskrift 1
Tækni: Íslenskt glit á fjögur sköft og þrjú skammel.
Stærð: 50 x 50 cm.
Uppistaða: Hör 8/2, 8/4 eða bómull 12/6. Hægt er að
nota bómull eða hör í uppistöðuna, allt eftir því hvað
er til hverju sinni en mikilvægt er að þráðurinn sé
sterkur því töluvert mæðir á honum.
Ívaf: Einband, spólað tvöfalt, bæði í einskeftu og
í munstur en einnig er hægt að nota kambgarn í
munstrið eða hvort tveggja.
Skeið: 30/10, einn þráður í hafald og einn þráður í
tönn, tveir þræðir í tvær tennur á jöðrum til styrktar,
3 þr/cm.
Breidd í skeið: 50 cm.
Þráðafjöldi: (50 x 3) + 4 = 154 þræðir. Fjórir þræðir
eru til styrktar og því þræddir með tveimur fyrstu og
tveimur seinustu þráðunum í höföld og skeið. Hag-
stæðara er að rekja 160 þræði vegna þess að þá eru 39
glitspor á breiddina í uppistöðunni. Hér er þó betra að
láta það munstur sem á að vefa ráða ferðinni og ef það
stendur ekki á oddatölu þá þurfa glitsporin heldur
ekki að standa á oddatölu.
Fyrirdragafjöldi á cm: 8–10 þræðir í einskeftu
og u.þ.b. 4 glitumferðir/cm. Vendin er þannig að
glitsporið liggur ofan á einskeftunni, líkt og það sé
saumað í vefinn. Þar sem hér er um ívafsbrekán að
ræða þá er uppistaðan alveg hulin. Á milli glitumferða
eru 2–3 einskeftuumferðir, allt eftir smekk.
Slöngulengd: Hún ræðst af því hvað á að vefa + 75 cm í
framhnýtingar og afvikur. Þó er ráðlegt að setja ekki
upp minna en 3 metra í einu.
H e l s t u i n n d rá t t a r m u n s t u r f y r i r í s l e n s k t g l i t s e m h é r þ e k k j a s t .